Morgunblaðið - 31.07.1985, Side 1

Morgunblaðið - 31.07.1985, Side 1
56 SIÐUR STOFNAÐ 1913 169. tbl. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ugandæ Nýja stjórnin sætir gagnrýni Kampala, 30. júlí. AP. '—* ^ & FYRRVERANDI forseti Uganda, Godfrey Binaisa, og leiðtogar skæruliða gagnrýndu í dag Tito Otello hershöfðingja, og hina nýju herforingjastjórn í landinu. Nýju valdhafarnir héldu fund í dag með yfirmönnum hersins og bankastjórum um leiðir til að koma á jafnvægi í Uganda. Stjórn Otellos skipaði í dag helstu stuðningsmönnum Obotes forseta, sem var sviptur völdum á ' laugardag, í hernum, leyniþjón- ustunni og embættismannakerf- inu að gefa sig fram, og er búist við því að þeir verði teknir hönd- um. Binaisa, fyrrverandi forseti, hafði fagnað byltingu hersins á laugardag, en honum snerist hug- ur í dag og hvatti hann til þess að hinni nýju stjórn yrði steypt af stóli. Helstu leiðtogar skæruliða, sem höfðu barist gegn stjórn Obotes, gagnrýndu einnig nýju stjórnina fyrir að hafa þá ekki með í ráðum við valdatöku hersins. f tilkynningu skæruliða segir að valdaránið hafi hvorki verið fram- ið með vitund né samþykki þeirra. Japanar aflétta viðskiptahömlum Tókýó, 30. jólí. AP. SKÝRT var frá því í Japan í dag að stjórnin hefði ákveðið að auka frjálsræði í viðskipt- um með því að veita erlend- um ríkjum aukinn aðgang að mörkuðum þar í landi. Þessi ákvörðun siglir í kjölfar vaxandi gagnrýni ýmissa vest- rænna ríkja á stefnu japönsku stjórnarinnar í viðskiptamálum, en viðskiptajöfnuður Japana á síðasta ári var jákvæður um sem svarar 45 milljörðum dollara. Yasuhiro Nakasone forsætis- ráðherra tilkynnti stefnubpeyt- ingu stjórnarinnar á frétta- mannafundi í dag, en samkvæmt ákvörðuninni lækka innflutn- ingstollar og settar verða nýjar reglur, sem eiga að auðvelda inn- flytjendum að koma vöru sinni á markað í Japan. Nakasone sagði að tilgangur- inn með ráðstöfunum stjórnar- innar væri að tryggja frjálsa verslun í heiminum og hamla gegn hvers konar haftastefnu í viðskiptum. Hér átti hann einkum við nokk- ur frumvörp, sem lögð hafa verið fram í bandaríska þinginu um að sporna við innflutningi japanskr- Nakasone, forsætisráðherra Japan. ar vöru með viðskiptahöftum. Vöruskiptajöfnuður Bandaríkj- anna við Japan var óhagstæður um 36,8 milljarða dollara í fyrra. { tilkynningu bandarísku stjórnarinnar segir að ákvörðun Japana geti haft jákvæð áhrif, ef litið sé til langs tíma, en óvíst sé hvort hún leysir ágreininginn í viðskiptum landanna. f Símamynd/AP George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Eduard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, hittust í fyrsta sinn á ráðherrafundinum í Helsinki í gær. Hér sjást utanríkisráðherrarnir koma til hádegisverðarboðs finnska utanríkisráðherrans. Shultz og Shevardnadze munu eiga með sér fund í dag. Utanríkisráðherrar risaveldanna: Harðar ásakanir á Helsinki-fundi HeUnki, 30. júlí. Pri Birni Bjnrnnsyni. UTANRÍKISRÁÐHERRAR Bandaríkjanna og Sovétríkjanna skiptust á skeytum hér í Helsinki í dag. Vopnin, sem þeir heittu, voru ólfk. George Shultz rakti mannréttindabrot Sovétmanna, en Eduard Shevardnadze sakaði Bandaríkjamenn um að hafa brotið Helsinkisáttmálann, meðal annars með áformum um varnarkerfi í geimnum. ráðgert að þeir hittist á fundi Shultz og Shevardnadze. Sjá frétt um Helsinki-fundinn á bls 25. Ráðherrarnir voru þó sammála um að fundur æðstu manna Sov- étríkjanna og Bandaríkjanna í Genf, í nóvember næstkomandi, ætti að geta skilað árangri. Shev- ardnadze varaði menn við því að halda að það væri vænlegt til árangurs að hóta Sovétmönnum því að við þá yrði samið „af styrk- leika“. Shultz hvatti til þess að þjóðirnar hæfu það alvarlega verk að leysa ágreiningsmál sín og ná samningum báðum til hagsbóta, sem tækist ekki án þolinmæði og þrautseigju. Athygli manna beinist mjög að Kduard Shevardnadze þar sem þetta er fyrsta ferð hans utan Sov- étríkjanna síðan hann tók við embætti utanríkisráðherra. Hann er ekki svipmikill maður og flutti ræðu sina tilbrigðalítið og sá sem ekki skilur rússnesku er dómbær á það. Nanuli Shevardnadze er með eiginmanni sínum hér. I ferð sem farin var með öllum eiginkonum utanríkisráðherranna í dag beind- ist athygli ljósmyndara mjög að henni. Virtist Nanuli kunna því vel, ekki síður en bóndi hennar í fundarsalnum. í fyrramálið, miðvikudag, er Skæruliðar gera stór- árás á flugstöð í Kabul lul>m»h>H 30 nili *P ^ ^ IsUunabad, 30. jólf. AP. AFGANSKIR skæruliðar gerðu á laugardag harða eldflaugaárás á stærstu flugstöð sovéska hernámsliðs ins í höfuðborginni Kabul. Segjast skæruliðar hafa eyðilagt tvær flutn- ingaflugvélar. Vestrænir fréttaskýrendur telja að þetta hafi verið ein mesta árás skæruliða í mörg ár. Sovéskir hermenn sem vörðu flugvöllinn svöruðu sókn skæru- liða með harðri stórskotaliðs- og eldflaugaárás. Átökin stóðu um átta tima i norðurhluta borgarinnar, og blossuðu þau upp að nýju daginn eftir. Að sögn sjónarvotta beittu Sovétmenn skriðdrekum og eld- flaugum gegn skæruliöum. Engar fréttir hafa borist um mannfall i þessum bardögum. Í síðustu viku gerðu skæruliðar aðrar árásir, en ekki eins harðar, á sovéska herstöð og féllu fimm afganskir stjórnarhermenn í þeim. Samkvæmt vestrænum heimild- um geisa bardagar nú i Pansjer- dal og hafa skæruliðar gert mik- inn usla i liði stjórnarhersins og Sovétmanna. Herma fréttir að skæruliðar hafi skotið á fallhlífarhermenn, sem sendir voru til dalsins til stuðnings stjórnarhernum. Tókst sovéska herliðinu og stjórnar- hernum þó að hrekja a.m.k. eina sveit skæruliða úr dalnum. Talið er að nú séu um 115 þús- und sovéskir hermenn í Afganist- an, en þeir réðust inn í landið 1979. Indland: Barist f Gullna hofinu Amritsar, 30. júlL AP. ÖFGASINNUÐUM og hófsöm- um síkhum lenti saman í Gullna hoflnu í Amritsar í dag. Kastað var grjóti og skipst á skotum. Skömmu eftir að átökin brutust út réðust þjóðvarðliðar inn í hoflð og handtóku 62 síkha. Talið er að um flmmtíu manns hafl særst. Atburðurinn átti sér stað skömmu eftir að Longowal, leiðtogi hófsama arms stjórn- málaflokks síkha, gekk inn i hofið í fylgd vopnaðra lífvarða til þess að ávarpa flokk sinn, Akali Dal, um málamiðlunar- samning sem hann gerði í síð- ustu viku við Rajiv Gandhi, for- sætisráðherra Indlands. Sjónarvottur að upptökum átakanna sagði að til þeirra hefði komið er herskáir síkhar höfðu uppi mótmæli og gerðu hróp að samkomulagi Longow- als og Gandhis. Samningur sá sem Longowal gerði við Gandhi er umdeitdur meðal síkha og hafa öfgamenn haldið fram að hann fæli í sér svik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.