Morgunblaðið - 24.08.1985, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985
41
BÍðHÖll
Sími78900
[ Splunkuny og margslungin grínmynd um baráttu bófa og löggæslu sem
sýnd er á skoplegri hátt en oftast gerist.
| Bæði er handritid óvenjulega smellid og þar aó auki hefur
tekist sérstaklega vel um leikaraval.
| Aöaihlutverk: Michael Keaton, Joe Piacopo, Peter Boyle, Dom DeLuiae,
Danny DeVito. Leikstjóri: Amy Heckerling.
Sýnd kl. 3,5,7, Sog 11.
ISALUR 2 Frumsýnir á Norðurlöndum James Bond-myndina:
VÍG í SJÓNMÁLI
James Bond er mættur til leiks i hinni splunkunýju Bond- mynd
„A VIEW TO A KILL“.
Bond á íalandi, Bond í Frakklandi, Bond í Bandaríkjunum
Stærsta James Bond-opnun í Bandaríkjunum og Bretlandi
frá upphafi.
Titillag flutt af Duran Durmn. Aöalhlutverk: Roger Moore, Tanya Ro-
berts, Grace Jones, Christopher Walken. Framleiöandi: Albert R. Broc-
coli. Leikstjóri John Glen.
Myndin er tekin í Dolby. Sýnd f 4re résa Starscope Stereo.
Sýnd kl. 2.30,5,7.30 og 10.
Bönnuö innan 10 éra.
SALUR3
Frumsýnir grínmyndina:
HEFND
PORKY’S
Porky's Revenge er þriöja myndin i
þessari vinsælu seriu og kusu breskir
gagnrýnendur hana bestu Porky's-
myndina.
MYND SEM KEMUR FÓLKI TIL AD
VELTAST UM AF HLÁTRI
Aöalhlutverk: Dan Monahan, Wyatt
Knight, Mark Herrier.
Leikstjóri: James Komack.
Sýnd kl. 3,5,7,9 og 11.
SALUR4
í BANASTUÐI
ÞrælgóO og bráóskemmtileg mynd
frá CBS.
Aóalhlutverk: Jamie Lee Curtis, C.
Thomas Howell Leikstj.: Randal
Kleiser.
Myndín er í Dolby-Slereo og sýnd (
4ra rása Starscope.
Sýnd kl. 5,7.9 oo 11.
SAGAN ENDALAUSA
Sýnd kl. 3.
SALUR 5 HEFND
BUSANNA
Sýnd kl. 3,5 og 7.30.
NÆTURKLUBBURINN
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 10.
JAMES BOND 007*"
ÁVIEWMKLLL
Ágúst 1985:
Fangar
mánað-
arins
Mannréttindasamtökin Amnesty
International vilja vekja athygli al-
mennings á máli eftirtalinna sam-
viskufanga í ágúst. Jafnframt vonast
samtökin til að fólk sjái sér fært að
skrifa bréf til hjálpar þessum föng-
um, og sýna þannig í verki andstöðu
við að slík mannréttindabrot eru
framin.
KENYA. Maina wa Kinyatti er 41
árs háskólakennari í Kenya. Hann
var handtekinn í júní 1982 og
ákærður fyrir að hafa undir hönd-
um uppreisnarskjöl. Þessi skjöl
voru ekki á lista lögreglunnar yfir
gögn sem fundust við húsleit hjá
honum. Hann hlaut 6 ára fangels-
isdóm. Maina wa Kinyatti hafði
tekið þátt í háskólastjórnmálum
og var þekktur fyrir marxískar
skoðanir sínar og andstöðu við
stjórnina. Hann var handtekinn
ásamt fleiri háskólakennurum og
stjórnarandstæðingum um það
leyti sem stjórn Kenya breytti
stjórnarskrá landsins í þá átt að
leyfa aðeins einn flokk í Kenya.
TAIWAN. Pai Ya-tsan, lögfræðing-
ur, var handtekinn í október 1975.
Hann var þá í framboði til þings
og innihélt framboðsræðan hans
fyrirspurnir til þáverandi forsæt-
isráðherra. Þessar fyrirspurnir
fjölluðu m.a. um utanríkisstefnu
stjórnarinnar, gagnrýni á spill-
ingu innan ríkisgeirans, stofnun
heilbrigðisþjónustu og trygg-
ingakerfis á vegum ríkisins, af-
nám herlaga og að pólitískir fang-
ar yrðu látnir lausir. Pai Ya-tsan
var dæmdur í lífstíðarfangelsi
fyrir að „reyna að koma á upp-
reisnaranda" með skoðunum sín-
um.
AUSTUR-ÞÝSKALAND. Hjónin
Alfred (43 ára) og Helga (37 ára)
Kolhanek voru bæði starfsmenn í
ávaxtaræktarfyrirtæki í A-Þýska-
landi. Þau höfðu sótt um leyfi til
að yfirgefa landið en án árangurs.
Á 35 ára afmæli stofnunar A-
Þýskalands þann 7. október 1984
tók dóttir þeirra, sem búsett er í
V-Berlín, þátt í mótmælastöðu við
landamærahlið milli V- og A-Berl-
ínar til stuðnings kröfum foreldra
sinna. Hjónin voru handtekin
nokkrum klst. síðar og dæmd í
desember s.á. fyrir að „hafa tekið
þátt í ólögmætum samskiptum” þó
þau hafi að sögn ekki vitað um
fyrirætlanir dóttur sinnar. Alfred
var dæmdur í 18 mánaða fangelsi
og Helga í 2 ár og 2 mánuði.
Þeir sem vilja leggja málum
þessara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt,
eru vinsamlegast beðnir að hafa
samband við skrifstofu íslands-
deildar Amnesty, Hafnarstræti
15, Reykjavík, sími 16940. Skrif-
stofan er opin frá 16.00—18.00 alla
virka daga. Þar fást nánari upp-
lýsingar, sem og heimilisföng
þeirra aðila sem skrifa slfal til.
Einnig er veitt aðstoð við bréfa-
skriftir ef óskað er.
NBOGINN
Frumsýnir:
Örvæntingarfull leit
að Susan
RIISANNA AKOUETTE AIIIAM QUIKM
M4IIIIW
Hvar er Susan? Leitin að
henni er spennandi og viö-
buröarik. og svo er músík-
in... meö topplag-
inu „Into The
Groove" sem nú er
númer eitt á vin-
sældalistum. í aöal-
hlutverkinu er svo
poppstjarnan fræga
MADONNA ásamt
ROSANNA AR-
QUETTE og AIDAN
QUINN.
Myndin sem beðiö
hefur verið ettir.
íslenskur texti.
Sýndkl.3,5,7,9
og 11.15.
HERNAÐAR-
LEYNDARMÁL
Frábær ný bandarísk grínmynd, er
tjallar um . . . nei, þaö má ekki segja
hernaöarleyndarmál, en hún er
spennandi og sprenghlægileg, enda
gerö al sömu aöilum og geröu hina
frægu grinmynd „í lausu lofti" (Flying
High). - Er hægt að gera betur?
Aöalhlutverk: Val Kilmer. Lucy Gutt-
eridge, Omar Sharif o.fl. Leikstjórar:
Jim Abrahama, David og Jarry
Zucker.
íslenskur texti.
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og
11.05.
VITNIÐ
„Þeir sem hata unun af aö horfa á
vandaðar kvikmyndir ætlu ekki aö
láta Vitnið fram hjá sér fara“.
HJÓ Mbl. 21/6
Aöalhlutverk: Harrison Ford, Kelly
McGillís. Leikstjórl: Peter Weir.
Sýnd kl. 3.10,5.10,7.10,9.10 og
11.15.
FALKINN0G
SNJÓMAÐURINN
Sýnd kl.9.15
Bónnud innan 12 éra.
Allra siöustu sýningar
ATÓMSTÖÐIN
4T0MIÍ
islenska stórmyndin ettir skáldsögu
Halldórs Laxnass.
Enskur skýringartexti.
English subtitles.
Sýnd kl.7.15.
LÖGGANÍ
BEVERLY HILLS
Sýnd kl. 3.15,5.15,9.15 og 11.15.
BönnuO innan 12 éra.
Siöustu sýningar.
íslenskur texti.
Bönnuð innan 10 éra.
Endursýnd kl. 3,5, og 7.
Borgarfjörður:
Gott sumar hjá
netaveiðibændum
SUMARIÐ var hagstætt þeim lax-
veiðibænduni í Borgarfirði sem
veiða í net í llvítá. Veiðin var mun
betri en í fyrra en þó ekki nein
metveiði.
Netaveiðinni lauk þann 20.
ágúst. Ólafur Davíðsson á Hvítár-
völlum var þokkalega ánægður
með sumarið þegar blaðamaður
ræddi við hann í vikunni. Hann
sagði að veiðin hefði verið betri en
í meðalári, mun betri en í fyrra en
heldur lakari en 1983. Sagði hann
að mikið hefði verið af smálaxi og
hafa spár fiskifræðinga því staðist
að því leyti. Þurrkarnir háðu neta-
veiðunum í neðri hluta Hvítár
ekki, en eins og kunnugt er hafa
þurrkarnir valdið vandræðum hjá
stangaveiðimönnum uppi í hérað-
inu.