Morgunblaðið - 06.09.1985, Side 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
199. tbl. 72. árg.
FOSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaósins
Afganistan:
Harðir bardagar
og mikið mannfall
iHlamabad, Pakwtaa, 5. seplember. AP.
GÍFURLEG átök geisa enn milli sovéska innrásarhersins í Afganistan og
skæruliða og fara fréttir af miklu mannfalli. Talið er, að Sovétmenn beiti
10—15.000 hermönnum í sókninni gegn skæruliðum en fyrir þeim vakir að rjúfa
birgðaflutningaleiðir sksruliða frá Pakistan.
Haft eftir heimildum, að skæru-
liðar haldi enn flestum stöðvum
sinum í Paktia-héraði í Austur-
Afganistan og það þótt þeir séu
ekki vel búnir vopnum og Sovét-
menn beiti gegn þeim jafnt stór-
skotaliði sem flugvélum. Skærulið-
um hefur verið að berast liðsstyrk-
ur frá löndum sínum í Pakistan og
sjálfir eru þeir bjartsýnir á að geta
varist ofureflinu. Megintilgangur
með sókn Sovétmanna er að koma í
veg fyrir, að skæruliðum berist
vopn og vistir og fara mestu bar-
dagarnir fram við landamærin að
Pakistan. Handan þeirra búa millj-
ó.nir Afgana í flóttamannabúðum,
fólk, sem hrökklast hefur úr landi
vegna hernaðar Sovétmanna.
Sjúkrahús i afgönsku flótta-
mannabúðunum í Pakistan eru nú
að fyllast af særðum mönnum og
sömu sögu er að segja um sjúkra-
hús í Kabul.
Aðstoðamtanríkisráðherra S-Afríku:
Refsiaðgerðir bitna
ekki á okkur einum
Jólunnesarbori;, 5. september. AF.
SVARTIR unglingar og kynblendingar réðust í dag á hús hvítra manna í
Höfðaborg og borginni Austur-London með bensínsprengju- og grjótkasti. Er
þetta í fyrsta sinn á árinu, sem ráðist er á hverfi hvíta fólksins. Aðstoðarutanrík-
isráðherra Suður-Afríku sagði í dag, að refsiaðgerðir gegn hvítum mönnum í
landinu myndu ekki bitna á þeim einum, heldur öllum ríkjum í sunnanverðri
álfunni.
Hinsta kveðjan
AP/Símamynd
Bálför indverska stjórnmálamannsins Arjun Dass fór fram í gær og hér er það dóttir hans,
sem er að kveðja hann hinstu kveðju. Dass féll fyrir kúlum öfgamanna af flokki sikha en
fréttir eru um, að þrír menn hafi verið handteknir, grunaðir um glæpinn. sjá frétt á bls. 23.
Um 60 ungmenni, aðallega kyn-
blendingar, réðust á eitt hverfa
hvítra manna i Höfðaborg með
grjótkasti og brutu margar rúður í
húsum. A.m.k. einn maður skaut á
unglingana og særðust þá tveir. í
borginni Austur-London, sefn er
nærri 900 km fyrir austan Höfða-
borg, kom einnig til átaka þegar
unglingar köstuðu bensínsprengj-
um að íbúðarhúsum hvítra manna.
Louis Nel, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Suður-Afríku, sagði i dag
á fréttamannafundi í Pretoriu, að
refsiaðgerðir erlendra ríkisstjórna
gegn hvítum mönnum í landinu
myndu fyrst og fremst bitna á öðr-
um ríkjum í sunnanverðri álfunni.
Beindi hann orðum sínum einkum
til Bandaríkjamanna en búist er
við, að Bandaríkjaþing muni brátt
samþykkja einhvers konar refsiað-
gerðir. Flest nágrannaríki Suður-
Afríku eiga mikil viðskipti við land-
ið þótt þau séu andvíg aðskilnað-
arstefnunni
Kasparov á vinningsvon
Moskvu, 5. september. AP.
ÖNNUR skákin í einvíginu milli
þeirra Karpovs, heimsmeistara, og
áskorandans, Kasparovs, var tefld í
dag og fór hún í bið eftir 41 leik.
Skákskýrendum ber saman um,
að skákin í dag hafi verið skemmti-
legasta skákin, sem þeir Karpov og
Kasparov hafa teflt og voru miklar
sviptingar í henni þegar á leið.
Margir telja, að skákinni ljúki með
jafntefli en aðrir telja þó, að Kasp-
arov hafi vinningsvon. Hann vann
eins og kunnugt er fyrstu skákina.
Sjá „Karpov er enn... “ á bls. 20.
Þing bresku verkalýðshreyfingarinnan
Uppgjöri frestað
fram í nóvember
BUrkpool, EottUndi, S. september. AP.
Á ÞINGI breska verkalýðssambandsins, sem nú er haldið í Blackpool í
Englandi, náðist í nótt samkomulag um að reka ekki að sinni samtök
verkamanna í véla- og málmiðnaði úr sambandinu. Málið verður hins
vegar aftur tekið upp í nóvember og er þá óvíst hvort komist verður hjá
klofningi TUC, bresku verkalýðshreyfingarinnar.
Deilurnar innan verkalýðs-
hreyfingarinnar snúast um
hvort farið skuli að landslögum
og efnt til allsherjaratkvæða-
greiðslu í félögunum um verk-
fallsboðanir. Vinstri menn í
verkalýðshreyfingunni vilja
hunsa lögin en aðrir vilja fara
eftir þeim, m.a. forystumenn
AUEW, sambands verkamanna í
véla- og málmiðnaði, sem er
næststærsta verkalýðsfélagið í
Blm. Morgunblaðsins í viðtali við Yasser Arafat, leiðtoga PLQ:
„ísraelar vilja hvorki frið
né raunverulega styrjöld‘
Suu, Norður-Jemen. Frá Jóhonnu Kristjónsdóttur, blm. MorgunblaAoins.
„ÞAÐ KEMUR æ betur í Ijós, að ísraelar hafa einfaldlega ekki áhuga á
friði, hvað sem tali þcirra líður. Það er í þeirra þágu, að hvorki ríki
raunverulegur friður né raunveruleg styrjöld og stjórn Reagans spillir
þeim með endalausu dekri,“ sagði Yas.ser Arafat, leiðtogi PLO, frelsis-
fylkingar Palestínumanna, m.a. í samtali, sem blaðamaður Morgunblaðs-
ins átti við hann í gær í aðalstöðvum PLO í Assafia í Sanaa í Norður-
Jemen.
„Hvað gerðist? Þegar ég fór
frá Líbanon 1982 sagði ég, að
eldfjallið myndi halda áfram að
gjósa og ég hef orðið sannspár —
ólgan og ófriðurinn eru hvar-
vetna á þessu svæði. Eftir að við
vorum hraktir frá Beirút álitu
flestir, að Palestinumenn væru
búnir að vera en okkur hefur
vaxið ásmegin þrátt fyrir allt.
Við höfum risið upp i orðsins
fyllstu merkingu og tekist að
endurskipuleggja okkur. Það er
fyrsta kraftaverkið og við erum
komnir aftur til Líbanons,
hvorki meira né rninna."
Yasser Arafat
Arafat ítrekaði það, sem þegar
hefur komið fram í fréttum, að
hann harmaði, að Bandarikja-
stjórn hefði dregið sig til baka
hvað snerti friðarfrumkvæði í
þessum heimshluta. Bandaríska
stjórnin hefði gengið á bak orða
sinna, sem hún hefði gefið Huss-
ein, Jórdanfukonungi, og Mubar-
ak, forseta Egyptalands, og látið
þar með undan þrýstingi frá
yndi sínu og eftirlætisbarni,
lsrael.
Sji: „Ég er m»ður sögunnar*' á bls.
24of 25.
Bretlandi með um eina milljón
félagsmanna. Hefur félagið af
þeim sökum tekið við opinberum
styrk til að auðvelda félags-
mönnum að senda atkvæði sín í
pósti.
Samkomulagið, sem náðist í
nótt, var á þá leið, að í allsherj-
aratkvæðagreiðslu í nóvember
munu félagsmenn í AUEW sjálf-
ir ákveða hvort þeir meta meira,
skipanir forystumanna bresku
verkalýðshreyfingarinnar eða
landslög, og verður spurningin
orðuð þannig, að undirlagi TUC,
að þeir velkist ekki í vafa um, að
brottreksturinn vofi yfir ef þeir
velja síðari kostinn. óstaðfestar
fréttir eru um, að Neil Kinnock,
formaður Verkamannaflokksins,
hafi átt meginþátt í samkomu-
laginu því að hann óttast, að
klofningur innan verkalýðs-
hreyfingarinnar muni bitna
mjög á flokknum í næstu þing-
kosningum.
Arthur Scargill, leiðtoga nám-
amanna, hefur tekist að fá á
dagskrá tillögu um að þegar
Verkamannaflokkurinn komist
til valda verði námamannasam-
bandinu endurgreitt fé, sem hald
var lagt á vegna ólöglegra verk-
falla og dómar vegna ofbeldis
einstakra manna endurskoðaðir.
Kinnock kveðst munu virða til-
löguna og hugsanlega samþykkt
hennar að vettugi enda sé hún
ekki um annað en afnám réttar-
farsins í landinu.