Morgunblaðið - 06.09.1985, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
13
HOLLUSTUBYLTINGIN/Jón Óttar Ragnarsson
ÓNÆMISTÆRING I
Öfugt við aðrar tegundir líf-
ríkisins lifir maður ekki í jafn-
vægi við náttúruna, heldur breyt-
ir hann henni stöðugt til þess að
þóknast duttlungum sínum.
Fyrsta breytingin var e.t.v.
þegar frummaður sló saman
steinum og fékk á annan egg-
hvassa brún og þar með ágætis
vopn til að leggja stór veiðidýr að
velli.
Með hverju timaskeiði mann-
kynssögunnar hafa breytingarnar
orðið hraðskreiðari uns svo er
komið að reynsla fyrri kynslóða
hefur lítið gildi á okkar tímum.
En ... Sérhverri breytingu
fylgir einnig áhætta, sem sé sú að
breytingin hafi í för með sér ein-
hverjar afleiðingar sem ógern-
ingur var að sjá fyrirfram.
Því miður kemur æ betur í Ijós
að þessi ótti er ekki ástæðulaus og
að maðurinn lifir í raun háskalegu
lifi þar sem áður óþekktar hættur
leynast nú við hvert fótmál.
Faraldrar
Gott dæmi eru margir þung-
bærustu sjúkdómar mannkyns-
sögunnar sem blossuðu beinlín-
ins upp vegna breytinga — oft
smávægilegra breytinga — af
mannavöldum.
Hver hefði t.d. látið sér detta í
hug að svo meinleysisleg uppfynd-
ing sem sígarettan yrði kveikja að
einhverjum kvalafyllsta faraldri
sem sögur herma.
Og ætli nokkrum íslendingi
hefði dottið í hug að breytingarn-
ar sem urðu á lífsháttum hans
eftir aldamót gætu hrundið af
stað því blóðbaði sem kennt er
við hjartasjúkdóma?
Smitsjúkdómar
Enda þótt sýklar hafi búið í
umhverfi okkar frá örófi alda
geta smitsjúkdómar blossað upp í
kjölfar umhverfisbreytinga ekki
síður en hrörnunarsjúkdómar.
Oftast stafa slíkir sjúkdómar
af gerlum (bakteríum) eða veirum
sem geta borist inn í líkamann í
gegnum slímhúðir kyn-, meltingar-
og öndunarfæra.
Aðrir sýklar eru sem betur fer
þannig gerðir að þeir komast því
aðeins inn í líkamann ef þeim er
beinlínis dælt milliliðalaust út í
blóðrásina.
ÓT
Ónæmistæringarveiran er í síð-
ari hópnum. Er líklegt að hún
hafi um skeið blundað í afmörk-
uðum afkimum jarðkringlunnar
þar til hennar tími kom, (e.t.v.
eftir stökkbreytingu á eldri
veiru).
Hver hefði trúað því að jafn
nytsamleg uppfynding og flugvél-
in yrði óbeint undirrótin að því
að þessi veira komst á kreik og
ógnar nú e.t.v. lífi mannkyns.
Bætum við annarri breytingu,
kynlífsbyltingunni — sem að
sjálfsögðu náði ekki síður til
kynhverfra einstaklinga en ann-
arra — og skaðinn er skeður.
Til allrar ógæfu hefur kynlíf
kynhverfra karlmanna þá sér-
stöðu að það getur opnað lífs-
hættulega leið frá kynfærum (og
saur) út í blóð ... milliliðalaust.
Þessar tvær breytingar duga
fyllilega til þess að skýra hvernig
aldagömul sjúkdómsleið er orðin
að ótrúlega öflugu og alþjóðlegu
dreifingarkerfi.
Lokaorð
Áratugum saman hafa heilbrigð-
isyfirvöld staðið frammi fyrir þcirri
vá aö við eigum að vísu sæmileg lyf
gegn ýmsum gerlum, en engin
gegn veirum.
Af þessum sökum er það
hreinn barnaskapur að ætla að
ónæmistæring verði eina hremm-
ingin sem þetta öfluga dreif-
ingarkerfi á eftir að skapa.
Við þessum hættum verður að
bregðast á réttan hátt, ekki með
móðursýki, ásökunum eða kjána-
legu tali um refsingu Guðs, held-
ur með rannsóknum og aðgerð-
um.
En jafnframt ætti maðurinn
nú að staldra ofurlítiö við og
skoða af meiri tortryggni en áð-
ur ýmislegt af því áferðarfailega
nýjabrumi sem hann þeytir út í
umhverfi sitt ár eftir ár.
Því hversu smávægilegar þær
breytingar sem við gerum á um-
hverfi okkar virðast við fyrstu
sýn vitum við aldrei hvenær af-
kvæmiö snýst gegn skapara sínum
eins og þessi hrikalegi faraldur
sannar í eitt skipti fyrir öll.
Og snúist hollustubylting nútím-
ans um eitthvað er það einmitt að
tryggja að mótun umhverfisins —
allar breytingar scm við gerum á
því — séu til þess fallnar að skapa
fegurra mannlíf og auka hollustu á
öllum sviðum, en ekki ótta, úrkynj-
un ... eða dauða!
Stefán Jón Hafstein
Til starfa
f Afríku
STEFÁN Jón Hafstein, fréttamaður,
sem hefur starfað á vegum Rauða
kross íslands á aðalskrifstofu Rauða
krossins í Genf undanfarna mánuði,
er nú á leið til Afríku.
Hann fer fyrst til Addis Ababa
og verður þar í nokkra daga áður
en hann heldur til Súdan. Tilgang-
urinn með ferð hans er fyrst og
fremst að kynna sér verkefni sem
unnið er að í þessum tveimur Afr-
íkuríkjum á vegum Rauða kross-
ins og skrifa greinar um þau.
Þá mun hann einnig reka sér-
stök erindi fyrir Rauða kross ís-
lands sem hefur á undanförnum
fjórum árum tekið virkan þátt í
hjálparstarfi Alþjóða Rauða
krossins í þessum ríkjum.
Héraösfundur
Húnavatns-
prófastsdæmis:
Embætti vígslu-
biskups verði flutt
að Hólum
í Hjaltadal
HÉRAÐSFUNDUR Húnavatns-
prófastsdæmis, haldinn sunnu-
daginn 1. september, á Hvamms-
tanga fagnar mjög framkomnum
hugmyndum um að embætti
vígslubiskups Hólastiftis verði
flutt heim að Hólum og fagnar um
leið yfirlýstum vilja núverandi
vígslubiskups til þess að svo megi
verða.
Telur fundurinn endurreisn
biskupstóls á Hólum m.a. auka á
reisn staðarins. Tekur fundurinn
undir framkomnar samþykktir
norðlenskra presta er allar hníga í
sömu átt.
Ini ætlir að kaupa
kjarabréf
• Þú færð hámarksávöxtun en tekur lágmarks áhættu.
• Þú getur innleyst kjarabréfin hjá Verðbréfasjóðnum með nokkurra daga fyrirvara.
• Þú lætur sérfræðinga í verðbréfaviðskiptum vinna fyrir þig.
• Þú sparar tíma og fyrirhöfn
• Þú veist alltaf hvert verðgildi kjarabréfanna er, vegna daglegrar gengisskráningar
þeirra.
• Nafnverð kjarabréfanna er kr. 5.000 og 50.000. Þannig geta allir verið með.
• Kjarabréfin eru handhafabréf.
ÞÚ FÆRÐ KJARABRÉFIN í PÓSTHÚSUM
Á Akureyri, Akranesi, Borgarnesi, Egilsstöðum, Garðabæ, Hafnarfirði, Húsavík,
Hvolsvelli, ísafirði, Keflavík, Kópavogi, Selfossi, Mosfellssveit, Vestmannaeyjum og í
pósthúsum í Reykjavík.
VERDBRÉFA
SJÖÐURINNHF
Hafnarstræti 7
101 Reykjavik