Morgunblaðið - 06.09.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
15
Úr kynningarbás Bonitas sf. á japanska selgetinn.
MorgunDiaoio/ porKeu
kynningarbás hlið við hlið á sýn-
ingunni. Kaffibrennslan kynnir
þar nýja kaffitegund sem Santos-
blanda nefnist. Er Santos-kaffið,
sem framleitt hefur verið um ára-
bil, aðaluppistaðan í nýja kaffinu
og blandað saman við það Col-
umbia-kaffi og Mið-Ameríku kaffi
frá Kaffibrennslunni. Verður
framleiðslu á Santos-kaffinu að
öllum líkindum hætt með tilkomu
nýju Santos-blöndunnar.
Kexverksmiðjan Holt kynnir
tvær nýjar Holtakextegundir sem
enn hafa ekki hlotið nafn. Er hér
um hafrakex að ræða, önnur teg-
undin með súkkulaðihjúp og hin
með söxuðum hnetum og súkku-
laðibitum. Er sýningargestum
boðið að bragða á nýja kexinu og
þeir síðan beðnir að segja til um
hvor tegundin þeim líki betur.
Ætlunin mun vera að setja þá teg-
und á markað sem fellur sýn-
ingargestum betur í geð.
Af öðrum nýjungum má nefna
að Verksmiðjan Vífilfell kynnir nú
nýja tegund af svaladrykknum
Hi-C og er hann með eplabragði.
Áður var komið í verslanir Hi-C
með sítrónubragði og appelsínu-
bragði.
Síðastliðið vor tók til starfa
Toshiba EF matreiðsluklúbbur-
inn, á vegum Einar Farestveit &
Co. Að sögn Drafnar H. Farest-
veit, ritstjóra, var í fyrstu ákveðið
að klúbburinn yrði eingöngu fyrir
eigendur Toshiba-örbylgjuofna en
þar sem eigendur annarra teg-
unda af örbylgjuofnum sýndu
matreiðsluklúbbnum mikinn
áhuga, var ákveðið að opna hann
öllum á heimilissýningunni. Því
geta allir eigendur örbylgjuofna
nú gerst félagar í Toshiba EF
matreiðsluklúbbnum og á ódýrari
hátt en ella, á meðan á sýningunni
stendur. Þá eru í gangi viðræður
við norskt fyrirtæki um að það
kynni og gefi út þennan mat-
reiðsluklúbb í Noregi.
LEIKFIMI
(9—12 ára)
JAZZBALLETT
(13 ára og eldri)
Fjölbreytt námskeiö byrja í næstu viku
Úrvals kennarar og leiöbeinendur
Bryndís
Dagný
Meöal annarra
Katrín
Sólveig
Bjóðum einnig upp á Ijósabekki, gufuböð og
nuddpott. Nuddari og snyrtifræðingur á staðn-
um.
Komið og njótið þjónustunnar í glæsilegu um-
hverfi.
Innritun hafin í síma 46191.
Morguntímar — síödegistímar — kvöldtímar
Eitthvaö fyrir alla
Herraleikfimi ef næg þátttaka
fæst
Hópafsláttur 5 eða fleiri saman
Sólarland
Hamraborg 20A, Kópavogi.