Morgunblaðið - 06.09.1985, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
Synjað um leyfi til að annast
endurmat fasteigna til bráðabirgða
Alvarlegum ásökunum svarað með skætingi Fasteignamats ríkisins
segir Guðmundur Oddsson formaður Bæjarráðs Kópavogs
STJÓRNENDUR Kópavogskaupstaðar reyndu í sumar að fá heimild fjár
málaráðuneytisins til þess að sinna að einhverju leyti fasteignamati í Kópa-
vogi og leggja bráðabrigðamat á það húsnæði sem enn hefur ekki verið
fullmetið eða endurmetið í langan tíma. Fjármálaráðuneytið hefur synjað
þessari beiðni á grundvelli umsagnar Fasteignamats ríkisins.
Bæjarritarinn í Kópavogi ritaði
fjármálaráðuneytinu bréf þann 24.
júlí sl. þar sem þess er farið á leit
að Kópavogskaupstaður fái heimild
til að leggja bráðabirgðamai. á þær
fasteignir í Kópavogi, sem enn eru
ekki komnar með fullnaðarmat og
einnig að aðstoða og sinna ein-
hverjum þáttum fasteignamatsins
а. m.k. um stundarsakir. Sú ósk er
lögð fram á grundvelli heimildar í
б. gr. laga nr. 94 frá 1976 um skrán-
ingu ogmat fasteigna.
Ástæður fyrir þessum óskum eru
þær að stjórnendur Kópavogskaup-
staðar telja að sveitarfélagið hafi
orðið af allmiklum fasteignaskatts-
tekjum vegna þess að nokkuð stór
hluti atvinnuhúsnæðis í Kópavogi
hefur ekki verið endurmetinn eða
fullmetinn svo árum skiptir. Sem
dæmi um þetta er í bréfinu nefnt
að iðnaðarhverfið við Smiðjuveg og
Skemmuveg taldist fullbyggt fyrir
um 5 árum og enn er það ekki komið
í fullnaðarmat og hafi Fasteigna-
mat ríkisins því ekki sinnt laga-
skyldu sinni.
Fjármálaráðuneytið sendi bréfið
Fasteignamati ríkisins til umsagn-
ar. Fasteignamat ríkisins sendi
umsögn sína til fjármálaráðuneyt-
isins þann 9. ágúst sl. og segir þar
m.a.: „í fyrsta lagi verður að segj-
ast, að bréf bæjarritarans ber ekki
sérstakt vitni um þekkingu á mála-
flokknum skráning og mat fast-
eigna í Kópavogi, hann virðist tala
um þessi mál eins og gestur, nýkom-
inn í bæinn." Þá er því m.a. haldið
fram að aðalmat fasteigna í bænum
sem unnið var á árunum 1965-1970
hafi verið mjög vel unnið og að mat
á iðnaðar- og atvinnuhúsnæði í
Kópavogi hafi gengið fyrir sig með
eðlilegum hætti. Endurskoðun á
skráningu og mati fasteigna í Kópa-
vogi hófst í byrjun árs 1977. Síðar
segir: „Þegar svo kemur að þeirri
hugmynd að starfsmenn Kópavogs-
kaupstaðar fái heimild til að leggja
mat á fasteignir til nota að eigin
vild, þá minnir það óneitanlega
svolítið á myndina af Pottasleiki.”
Bæjarritaranum í Kópavogi
barst síðan bréf, dags. 22. ágúst
1985, frá fjármálaráðuneytinu þar
sem beiðninni var synjað. Guð-
mundur Oddsson formaður Bæjar-
ráðs Kópavogs sagði í samtali við
Morgunblaðið að bréfið frá Fast-
eignamati ríkisins væri í einu orði
sagt hneyksli. „Þarna er alvarleg-
um ásökunum svarað með skæt-
ingi,“ sagði Guðmundur. „Við telj-
um að við fáum ekki þá þjónustu
sem okkur ber samkvæmt lögum.
Við teljum okkur einnig hafa farið
hina einu réttu leið til að fá þetta
leiðrétt, þ.e. í gegnum ráðuneytið.
Ég á ekki til orð yfir hvernig þessi
stofnun hagar sér.“
„Þetta bréf er ekki einungis höfn-
un á beiðni okkar heldur er í því
bókstaflega sagt að við vitum ekk-
ert um hvað við erum að tala. Við
erum að tala um verulegar fjár-
hæðir sem bærinn tapar aðeins
vegna þess að þessi stofnun stendur
sig ekki sem skyldi. Það er að sjálf-
sögðu mjög alvarlegt að vilji til
þess að lagfæra villur sem þessar
virðist vera í algjöru lágmarki.
En þessu máli er ekki lokið. Við
höfum ákveðið að fara yfir allt
atvinnuhúsnæði í Kópavogi og taka
saman hvernig málin standa og
senda ráðuneytinu þann lista. Sumt
af þessu húsnæði hefur ekki verið
metið síðan 1977.
í bréfi Fasteignamatsins er því
haldið fram að við séum haldnir
einhverri skattagleði. Það er ekki
það sem málið snýst um, en að sjálf-
sögðu reynum við fá inn þær tekjur
sem okkur ber samkvæmt iögum.
Ég skil að stofnunin reyni að
verja sig, en með bréfi okkar erum
við einungis að bjóða fram aðstoð
við matið. Það er ekki rétt sem
Fasteignamatið heldur fram að við
höfum ekkert vit á þessum málum,
því árið 1979 réðum við sérstaklega
tvo menn til þess að fara yfir og
endurmeta íbúðarhúsnæði í Kópa-
vogi með Fasteigiamatinu. Þeir
segja í bréfinu að 90% húsnæðis
sé fullmetið, en það gefur ekki rétta
mynd, þar sem einmitt á eftir að
meta stærsta og dýrasta húsnæðið
í bænum, atvinnuhúsnæði.
Við viljum reyna að komast hjá
því að mismuna fólki. í þessum
iðnaðarhverfum standa oft ná-
kvæmlega e'ns hús hlið við hlið.
Annað hefur ekki verið metið vegna
duttlunga Fasteignamatsins í 5-10
ár, hitt hefur kannski verið metið
í ár eða í fyrra og er því munurinn
á mati þeirra verulegur.
Til þess að allir i landinu sitji
við sama borð þarf einfaldlega að
leggja Fasteignamat rikisins niður
og fara eftir brunabótamati alls
húsnæðis," sagði Guðmundur Odds-
son að lokum.
... ,
Meœxwim.
T-kort fyrir táninga 14-18 ára
og tölvubankarnir standa þeim opnir allan sólarhringinn.
alltaf hægt að leggja inn
alltaf hægt að ná í peninga
T-kort er lykillinn og T-kort bjóðum við öllum 14-18 ára.