Morgunblaðið - 06.09.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
23
Morðstaðurinn
Mynd þessi er af skrifstofu indverska stjórnmálamannsins Arjun Dass, sem
myrtur var í skotárás á miðvikudagsmorgun.
Indland:
Þingið kallað sam-
an til skyndifundar
RASJIV Gandhi, forsætisráóherra
Indlands, kallaói í dag þing landsins
saman til skyndifundar til að ræða
öryggisráðstafanir í Nýju Delhí í
kjölfar skotárásar þriggja öfga-
manna úr röðum síkha á miðviku-
dag, þar sem tveir menn biðu bana
en sex aðrir særðust.
Annar hinna myrtu manna var
náinn vinur Gandhis og ráðgjafi.
Það var Arjun Dass, 46 ára gamall
hindúi. Fór bálför hans fram í dag
að sið hindúa. Gandhi var sjálfur
viðstaddur athöfnina ásamt konu
sinni, Sonju. Öflugur lífvörður
gætti þeirra, en Gandhi var
klæddur skotheldu vesti. Talið er,
að með því að vera viðstaddur
bálförina hafi Gandhi viljað
leggja áherzlu á, að hann og stjórn
hans sé staðráðin í að vinna bug á
hiyðjuverkastarfsemi og láta
fyrirhugaðar þingkosningar fara
fram í Punjab eins og áformað
hafði verið.
Ekkert lát er þó á hryðjuverk-
um síkha í Punjab. Þannig voru
fjórir hindúar drepnir þar á
þriðjudag og 12 aðrir særðust.
Bálför Arjuns Dass fór fram í gær
Nýju Delhí, 5. «eptember. AF.
Vestur-Þýskaland:
Hryðjuverkasamtök
gera sprengjuárásir á
tölvufyrirtæki
Dortmund, Vestur-Þýskulundi 4. sept. AP
Bylting^rsamtök, sem eru hliðholl
Rauðu herdeildinni (RAF) í Vestur-
Þýskalandi, hafa lýst ábyrgð á hendur
sér af sprengjuárásum á tvö vestur-þýsk
tölvufyrirtæki, en tjón fyrirtækjanna
er metið á 1,4 milljónir dollara. Ekki
hefur verið tilkynnt um nein meiðsli á
fólki í sprengingunum sem urðu í tveim
borgum Þýskalands snemma á mánu-
dag.
í bréfi sem barst þrem þýskum
fréttastofum á mánudag segjast
samtökin hafa beint árás sinni að
tölvum „vegna þess að þær eru kúg-
unartæki í höndum hers og lögreglu",
eins og segir í bréfinu. Að sögn
Alexanders Brechell, talsmanns
skrifstofu yfirsaksóknara í Karls-
ruhe, er ekki ástæða til að telja bréf-
in fölsuð. Hann sagði að samtök þessi
hefðu lýst ábyrgð á hendur sér af
að minnsta kosti 12 sprengjuárásum
frá ársbyrjun. Þessi neðanjarðar-
hreyfing hefur verið virk frá því á
síðasta áratug og beint spjótum sín-
um að NATO og ýmsum iðnfyrir-
tækjum.
Hlaut verðlaun fyrir píanóleik
Vevcy, Svíhh, 4. fteptember. AP.
SAUTJÁN ára júgóslavnesk stúlka
vann Clöru Haskil-verðlaunin i pí-
anóleik og voru úrslitin tilkynnt I
dag.
66 píanóleikarar frá 28 löndum
tóku þátt í keppninni og Katasja
Velkovic er bæði fyrsti Júgóslav-
inn og yngsti keppandinn til að
bera sigur úr býtum frá þvi að
stofnað var til keppninnar 1963 I
minningu píanóleikarans Clöru
Haskil.
Clara Haskil fæddist i Rúmeníu
1895. Hún nam píanóleik hjá Al-
fred Cortot i París. Hún fékk
svissneskan ríkisborgararétt 1949
og bjó í Vevey frá 1941. Haskil lést
1960 er hún féll niður stiga á
járnbrautarstöð i Belgiu.
80 á sjúkrahús vegna eitrunar
Manrhester, 4. september. AP.
UM 80 manns voru fluttir
á spítala eftir að hafa andað
að sér eiturgufum sem
mynduðust í efnaverk-
smiðju í Manchester vegna
leka á brúsum sem þar voru
geymdir. Enginn varð þó
fyrir alvarlegri eitrun.
Lögregla og slökkvilið
umkringdu verksmiðju-
bygginguna og flutti brús-
ana út undir bert loft eftir
að þeir sem höfðu orðið
fyrir eitruninni höfðu verið
fluttir á sjúkrahús. Eit-
urgufan Virðist hafa mynd-
ast við efnahvarf er brús-
arnir tóku að leka og klór-
efnið sem þeir geymdu
komst í snertingu við um-
hverfið.
Sigtún 9
við byrjum 16. september
Tryggiö ykkur pláss í Dansstúdlói
Sóleyjar í vetur. Það er í fremstu röö
hér á landi, nýtur gifurlegra vinsælda
og tryggir þér ánægjulegan árangur.
Þú getur valiö um þrjú mismun-
andi námskeið:
• Jassballett fyrir byrjendur og
framhaldsnema af báðum
kynjum, 7 ára og eldri.
• Tæknitímar (ballett - modern)
fyrir karla og konur.
• Teygju- og brektímar fyrir karla
og konur á öllum aldri, jafnt
kyrrsetumenn og íbróttamenn.
Innritun alla virka daga kl. 10-12 og
13-17, 5.-12. september í síma
687701.
Skírteini afhent í Sigtúni 9 laugardaginn
14. september.
Ath. Til að geta tekið þátt (
námskeiðunum er nauösynlegt að
nálgast skírteinið á réttum tíma.
- Sími: 687701.
Kennarar