Morgunblaðið - 06.09.1985, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
t
Faöir okkar,
GÚSTAF A. GUOJÓNSSON,
Bjarnarstíg 11, Reykjavlk,
lést í Landspítalanum aöfaranótt 5. september.
Börnin.
t
Hjartkær eiginmaöur minn og faðir,
TIMOTHY FRANCES LAPERGOLA
* andaöist 5. september í Philadelphiu.
Ámta Gunnarsdóttir Lapergola,
Nancy L. Bertrant.
t
Föðurbróöir minn,
INGÓLFUR SIGFÚSSON,
Holtageröi 33,
Kópavogi,
lést í Borgarspítalanum 4. september.
Ingólfur Tryggvason.
t
Elskulegur faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
MAGNÚS EINARSSON
húsvöröur,
Hverfisgötu 83,
lést á Landspítalanum 4. september.
Jón Magnússon, Erla Magnúsdóttir,
Margrét Magnúsdóttir, Kristjén Einarsson,
Péll Magnússon, Magnea Magnúsdóttir,
Eóvald Magnússon,
börn og barnabörn.
t
Útför systur okkar,
MARGRÉTAR SVEINBJARNARDÓTTUR,
Hátúni 10B,
fer fram frá Lágafellskirkju laugardaginn 7. sept. kl. 13.30.
Jóna Sveinbjarnardóttir,
Benedikt Sveinbjarnarson.
t
Móöirokkar,
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR
frá Pálmarshúsi, Stokkseyri,
veröur jarösungin frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 7. september
kl. 14.00.
Oddný og Erla Þorkelsdætur.
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ÓSKARHARALDSSON
netageröarmaöur,
veröur jarösunginn frá Landakirkju Vestmannaeyjum laugardaginn
7. septemberkl. 14.00.
Ásta Haraldsdóttir,
Haraldur Óskarsson, Guðbjörg Karlsdóttir,
Höróur Óskarsson, María G. Pálmadóttir,
Elínborg Óskarsdóttir, Siguröur Georgsson,
Sigbjörn Þór Óskarsson
og barnabörn.
t
Innilegar kveöjur og þakkir sendum viö öllum þeim er sýndu okkur
samúð og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns og fööur,
HJALTA ÞÓRHANNESSONAR,
Kirkjustíg 1, Grindavík,
Kristbjörg Jóhannsdóttir,
Jóhann Hjaltason.
Jón Hjartarson frá
Sœbergi — minning
Fæddur 18. aprfl 1902
Dáinn 30. ágúst 1985
Kær vinur, Jón Hjartarson,
fyrrverandi bóndi að Sæbergi við
Hrútafjörð, er látinn. Andlát svo
fullorðins manns ætti ekki að
koma á óvart, en þó er það svo að
sjaldnast erum við viðbúin hinsta
kallinu. Leiði og sjálfsásakanir yf-
ir ónýttum tækifærum til samveru
ná yfirhöndinni. En „of seint er að
iðrast eftir dauðann". Fögru
mannlífi er lokið eins og hið ís-
lenska sumar, sem nú hverfur inn
í haustið.
Jón Hjartarson fæddist 18. apríl
1902 að Tannastöðum í Staðar-
hreppi V-Hún., en fluttist með
foreldrum sínum að Jaðri, í sömu
sveit, en þar stofnuðu þau nýbýli.
Þar átti Jón heima allt til ársins
1948 en þá um vorið flytur hann að
eigin iörð, Sæbergi við Hrúta-
fjörð. Arið 1950 kvæntist Jón Lilju
Eiríksdóttur. Þau Jón og Lilja
eignuðust einn son, Hjört, og ólu
einnig upp Áslaugu dóttur Lilju.
Barnabörnin eru tvö, Ragnar Jón
Hjartarson og Lilja Tumadóttir,
Að Sæbergi bjuggu og dvöldu Jón
og Lilja allt til ársins 1985.
Fjórtán ár eru nú liðin síðan'
fjölskylda okkar flutti að Reykja-
skóla í Hrútafirði. Fljótlega tók-
ust góð kynni með okkur og hjón-
"únum í Sæbergi, Jóni og Lilju,
kynni sem með árunum hafa þró-
ast í gagnkvæma vináttu. Þegar
tími gafst til var komið saman og
landsmálin rædd og spilað og
sungið. Jón sem var góður söng-
maður spilaði einnig á orgel og
þrátt fyrir að hann væri kominn á
áttræðisaldur taldi hann ekki eftir
sér að vaka fram á morgun við
söng og spil. Það voru góðar
stundir og alltaf jafn gott að koma
að Sæbergi. Um ár er nú liðið síð-
an Jón og Lilja fluttu búferlum til
Reykjavíkur. Var það ekki með
öllu sársaukalaust fyrir Jón og
vitum við að hugurinn dvaldi oft
fyrir norðan. Starfsþráin óbuguð
þó árin væru orðin 83.
í maí sl. hittum við Jón í síðasta
sinn. Talaði hann þá um að fara
norður í sumar og ljúka við hest-
húsið, sem hann byggði f fyrra-
sumar, og svo sannfærð vorum við
um að honum tækist það að það
hvarflaði ekki að okkur að þetta
yrði í síðasta skipti sem við sækt-
um hann heim.
Sæberg, þar sem Jón vann sín
manndómsár og dvaldi er dró að
hausti mannlífsins, er eins og
nafnið bendir til við sæinn. Þar er
landslag ekki margbrotið, en af
bæjarhlaðinu má fylgjast með sól-
aruppkomu og sólsetri. í suðri rís
Tröllakirkja á Holtavörðuheiði í
tign og fegurð og fjörðurinn við
bæinn sem mörgum finnst lengst
af úfinn og kaldur, en hefur þrátt
fyrir það sínar fögru svipmyndir
hvort heldur af honum glampar
sól eða um hann leika mergð blá-
hvítra ísjaka. Við ímyndum okkur
að Jóni hafi ætíð þótt sín sveit
bæði gjöful og fögur enda kunni
hann að lifa með veðráttunni og
landinu. Háttprýði og kyrrlát
gleði fylgdu honum í starfi og leik.
Það var gott að fá að kynnast hon-
um og eiga með honum árin í
Hrútafirði, fyrir það erum við
þakklát og biðjum honum góðrar
heimkomu.
Guðný og Höskuldur Goði,
Laugagerðisskóla.
Miklar endurbætur á Gaul-
verjabæjarkirkju undanfarið
(■uherjibc, 28. ágúst
NÚ í VOR, þann 9. júní sl„ var hald-
inn aðaisafnaðarfundur Gaulverja-
bæjarkirkju að lokinni guðsþjón-
ustu. Fór fundurinn fram samkvæmt
nýsamþykktum lögum frá Alþingi
um kirkjusóknir, héraðsfundi, sókn-
arnefndir og fleira.
Kosin var sóknarnefnd til fjög-
urra ára samkvæmt þeim lögum
og jafnframt endurskoðendur
sóknarinnar. Frá starfi í sóknar-
nefnd hurfu þeir Gunnar Sigurðs-
son frá Seljatungu og Jón ólafs-
son frá Syðra-Velli. Báðir burt-
fluttir úr sveitinni. Gunnar hafði
verið í sóknarnefnd frá 1958, þar
af formaður frá 1970. Jón var hins
vegar kosinn fyrst í nefndina 1969.
I sóknarnefnd nú voru kosin
Sigurgeir Pálsson Baugsstöðum,
Guðrún Jóhannesdóttir Fljótshól-
um og Gunnar Þórðarson Hóls-
+
Innilegar þakkir og kveðjur til þeirra sem sýndu fjölskyldu minni
vinsemd og hlýhug viö andlát og jaröarför konu minnar,
RAGNHILDAR JÓNSDÓTTUR,
frá Nýjabœ Seltjarnarnesi.
Sigtryggur Hallgrímason.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og útför
SIGVALDA GUÐMUNDSSONAR,
Baröi, Miðfiröi.
Böövar Sigvaldason, Eva Thorstensen,
Sigríöur Sigvaldadóttir, Jóhannes Eggertsson,
Ingibjörg Sigvaldadóttir og barnabörn.
Lokað
veröur vegna jaröarfarar BRYNDÍSAR KOLBRÚNAR
SIGURDARDÓTTUR föstudaginn 6. september frá kl.
08.00-13.00.
Efnalaugin Glæsir.
Trönuhrauni 2. Hafnarfirði.
Lokað
Vegna útfarar STEFANÍU EÐVARÐSDÓTTUR veröur
skrifstofa okkar lokuö frá kl. 12.00 föstudaginn 6. sept-
ember.
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar hf.
Borgartúni 34, Reykjavík.
húsum. Sóknarnefnd hefur kosið
Guðrúnu formann nefndarinnar.
Umsjónarmaður kirkjugarðs er
Siggeir Pálsson og kirkjuhaldara
Gunnar Þórðarson.
Á undanförnum árum hefur
verið unnið að margvíslegum
endurbótum bæði á kirkju og
kirkjugarði. Má þar nefna að
kirkjan var öll klædd að utan og
einangruð. Sökkull styrktur. Skipt
um glugga og gler. Kirkjugarður
kortlagður og sléttaður. Auðveld-
ar sléttunin mjög bæði slátt og
umhirðu garðsins. Síðast var
steyptur burðarveggur undir hluta
gólfs kirkjunnar og auk þess kom-
ið fyrir snyrtingu í kirkjunni og
litlu herbergi fyrir prestinn en
hann er séra Úlfar Guðmundsson.
Einnig var fyrir tveimur árum
skipt um orgel í kirkjunni en
organisti er Pálmar Eyjólfsson.
Fráfarandi sóknarnefnd hefur
því skilað miklu starfi í þágu
kirkjunnar. Loks á þessi kirkja
sem og flestar aðrar sér marga
velunnara. Þeir hafa gefið margar
gjafir, hvort sem verið hefur í
peningum, kirkjumunum eða
vinnuframlagi.
— Valdim. G.
Gauhrerjabæjarkirkja