Morgunblaðið - 06.09.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
31
„Eins og aðrir góðir
listamenn læt ég kon-
una vinna fyrir mér“
— segir Daði Guðbjörnsson, sem sýnir í Gallerí Borg
DAÐI Guðbjörnsson myndlistar-
maður sýnir um þessar mundir í
Gallerí Borg við Austurvöll. Á sýn-
ingunni eru 21 verk, bæði olíumál-
verk og dúkristur. Hann hefur áður
haldið einkasýningu á Kjarvalsstöð-
um og auk þess tekið þátt í mörgum
samsýningum hér heima og erlendis.
„Ég byrjaði að fikta við mynd-
list 15 ára gamall," sagði Daði.
„Þetta ágerðist svo smátt og smátt
og ég fór í Myndlista- og handíða-
skólann og síðar nam ég við Ríkis-
akademíuna í Amsterdam." Daði
sagðist vinna jöfnum höndum að
olíumálverkum og grafík. „Mér
finnst vera hvíld í því að breyta
þannig um aðferð öðru hvoru. f
dúkristunni vinn ég bara með
svart og hvítt en í olíumálverkinu
er áherslan öll á litunum. Á sýn-
ingunni er þessu tvennu stillt upp
hlið við hlið, þó slikt hafi ekki þótt
góð lexía á sýningum."
Ég hef verið talinn til þeirra
sem vinna í anda hins svokallaða
„nýja málverks", en sjálfum finnst
mér erfitt að staðsetja verk mín í
einhverjum „isma“. Þó má segja
að þau séu blanda af abstrakt og
simbólisma."
Daði var að lokum spurður
þeirrar sígildu spurningar hvernig
gengi að lifa af listinni.
„Éins og aðrir góðir listamenn
læt ég konuna vinna fyrir mér,“
sagði Daði og hló. „Ég kenni við
Myndlista- og handíðaskólann og
svo selst nú alltaf eitthvað af
myndum, þannig að ég fæ í það
minnsta upp í kostnað. En litir og
annað er óhemju dýrt vegna þess
hversu tollar eru háir. Þarna er
verðugt baráttumál fyrir samtök
myndlistarmanna, en þau hafa því
miður ekki sinnt þessum hlutum.
Daði Guðbjörnsson myndlistarmaður.
Mestur tími manna virðist fara í inlegum hagsmunum virðist sitja
að rífast um strauma og stefnur í á hakanum," sagði Daði Guð-
listinni, en barátta fyrir sameig- björnsson að lokum.
Nýtt bamaleikfélag:
Gaman leikúsið
NÝTT leikfélag, barnaleikfélag, var
stofnað fimmtudaginn 29. ágúst og
ber það nafnið Gaman Leikhúsið.
Fyrsta leikrit leikhópsins verð-
ur „Töfralúðurinn" eftir danska
höfundinn Henning Nilsen. Þýð-
andi er Anna Jeppesen. Tónlist er
eftir Per Östergaard. Leikritið
fjallar í stuttu máli um fjóra
nágranna sem eru aldrei sammála
en dag einn kemur stúlka með
dreka og þá snúast nágrannarnir
á móti henni og drekanum. Að lok-
um verða þó allir vinir.
Leikstjórar eru Magnús Geir
Þórðarson og Gottskálk Sigurðs-
son. Með aðalhlutverkið fer Tinna
Laufey Ásgeirsdóttir. Sýningar á
þessari fyrstu leiksýningu Gaman
Leikhússins verður í kringum 20.
október.
Tónlistarskóli Vesturbæjar:
Annað starfsár
skólans að hef jast
Safnað fyrir kirkju-
byggingu á Blönduósi
Blönduósi, 5. septeraber.
Alma E. Hansen skólastjóri Tónlistarskóla Vesturbæjar.
ANNAÐ starfsár Tónlistarskóla
ÞESSIR tveir snaggaralegu ung-
herrar efndu á dögunum til hluta-
veltu til styrktar kirkjubyggingu
á Blönduósi. Drengirnir söfnuðu
alls 440 kr. og afhentu sóknar-
prestinum, séra Árna Sigurðssyni,
upphæðina. Drengirnir heita talið
frá vinstri: Ásgeir örn Jóhannsson
og Rúnar Örn Guðmundsson.
J.S.
Vesturbæjar er nú að hefjast. Rúm-
lega hundrað nemendur stunduðu
tónlistarnám við skólann síðastliðinn
vetur undir leiðsögn átta kennara.
í vetur verður kennt á flest
hljóðfæri samkvæmt námsskrá
sem Menntamálaráðuneytið lét
útbúa fyrir tónlistarskóla lands-
ins. Ennfremur verður kennd tón-
fræði við skólann og fyrir yngstu
nemendurna, sem eru á aldrinum
5—7 ára, verður haldið uppi for-
skólakennslu.
Undirbúningur skólahaldsins er
nú í fullum gangi og brátt verður
farið að innrita nemendur vetrar-
ins.
Skólastjóri og stofnandi Tónlist-
arskóla Vesturbæjar er Alma E.
Hansen.
Bindindisfélag ökumanna:
Úrslitakeppni
ökuleikni hald- ^
in á morgun
Úrslitakeppni ökuleikni Bind-
indisfélags ökumanna fer fram á
morgun, 7. september, og er
keppnin jafnframt íslands-
meistarakeppni. Undankeppni fór
fram í ökuleikni á 30 stöðum um
landið og voru þátttakendur alls
um 600, sem er 50% aukning frá
því í fyrra. Keppt verður bæði í
karla- og kvennariðli. Keppnin
hefst klukkan 9.00 við Mazda-
umboðið Bílaborg með umferð-
arspurningum en klukkan 11.00
hefst sjálf aksturskeppnin og
verður hún á plani Ósta- og
smjörsölunnar á Ártúnshöfða.
í úrslitakeppninni á morgun
verða eknar tvær umferðir og er
ráðgert að seinni umferðin hefjist
klukkan 15.00. Á milli umferða,
eða klukkan 14.30, munu lögreglu-
þjónar úr lögreglunni í Hafnar-
firði, Kópavogi og Reykjavík
ásamt fulltrúum slökkviliðsins í
Reykjavík og Hafnarfirði reyna
við þrautaplanið.
Fyrstu verðlaun í hvorum riðli í
ökuleikninni verða utanlandsferð-
ir. Einnig mun Mazda-umboðið
gefa bikarverðlaun fyrir þrjú **
efstu sætin í hvorum riðli. Mazda-
-bifreið verður síðan í boði fyrir
þann keppanda, sem tekst að aka
villulaust í annarri hvorri umferð-
inni. Viðkomandi keppandi þarf
ekki að sigra til að hljóta bílinn,
en hann þarf að vera með einn af
15 bestu tímunum í hvorri umferð.
í sumar var Bindindisfélag öku-
manna einnig með vélhjólakeppni
og reiðhjóakeppni samhliða öku-
leikninni. Úrslitakeppni í vél-
hjólakeppninni mun ekki fara * -
fram fyrr en vora tekur á ný. I
reiðhjólakeppninni hins vegar
engin úrslitakeppni. Þess í stað
fengu keppendur happdrættis-
miða og voru tvö reiðhjól í boði.
Dregið var í happdrættinu um síð-
ustu helgi og hlaut Sigríður V.
Sæbjörnsdóttir frá Egilsstöðum
annað hiólið og Gunnar Sigurðs-
son frá Olafsvík hitt.
Fataverksmiðjan
Hekla með hug-
myndasamkeppi
FATAVERKSMIÐJAN Hekla á Ak-
ureyrí efnir nú til hugmyndasam-
keppni um ný vörumerki fyrir fatnað
að norðan.
Samkeppnin er öllum opin og er
fólk hvatt til að senda inn hug-
myndir sínar. Þrenn verðlaun
verða veitt. Fyrstu verðlaun
hljóða upp á 40.000 krónur, önnur
verðlaun eru 20.000 krónur og
þriðju verðlaun eru 10.000 krónur.
Skilafrestur er til 15. september
og skulu tillögur sendar til Fata-
deildar Sambandsins, Holtagörð-
um, Reykjavík.
1 raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar I
fundir — mannfagnaöir tilboö — útboö | ýmislegt
Lionsfélagar — Lionessur Fyrsti samfundur þessa starfsárs veröur í Lionsheimilinu Sigtúni 9, kl. 12 á hádegi í dag. Fjölbreytt dagskrá. Fjölumdæmisráö. Útboð — jarðvinna Stjórn verkamannabústaöa í Reykjavík óskar eftir tilboöum í gröft og fyllingu 15 húsgrunna og bílastæöa í Grafarvogi í Reykjavík. Útboösgögn veröa afhent gegn 10.000 kr. skilatryggingu á skrifstofu V. B. Suöurlands- braut 30 föstudaginn 7. september 1985. Tilboðin veröa opnuö mánudaginn 23. sept- ember kl. 15.00 aö viðstöddum þeim bjóöend- um sem þess óska. Stjórn V. B. Peningamenn — fjár- magnseigendur Innflutnings- og heildverslun óskar eftir fjár- mögnunaraöila. Um er aö ræöa lánsfjármagn og víxlakaup. Um verulega góö kjör er aö ræða fyrir þann er áhuga heföi. Tilboö sendist augld. Mbl. merkt: „Mikil velta 2156“.