Morgunblaðið - 06.09.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1985
35
Sjötugur:
Sturla Pétursson
skákmeistari
í dag, 6. september, er Sturla
Pétursson skákmeistari 70 ára. Ég
hef verið svo lánsamur að eiga
hann að vini og taflfélaga sl. 16
ár, en skákklúbbur, sem hann og
tveir bræður hans voru í ásamt
fleiri góðum mönnum, hafði þá
verið við lýði í þó nokkur ár og
nokkrum árum seinna varð ég svo
heppinn að verða fastur meðlimur
í þessum ágæta klúbbi. Ætlunin
var að þessar fáu línur yrðu stutt
afmæliskveðja, en ekki ýtarleg
ævi- eða ættarsaga. Þó má geta
þess, að Sturla er innfæddur Reyk-
víkingur, fæddur á Laugavegi 75,
1915, sonur hjónanna Péturs Zóph-
aníassonar, ættfræðings, sem allir
þekkja, og Guðrúnar Jónsdóttur
frá Asmundarstöðum á Melrakka-
sléttu, náfrænku barnanna minna.
Hann ólst upp með foreldrum
sínum í stórum systkinahópi, sem
allt varð myndarfólk og setti
mikinn svip á bæjarlíf Reykjavík-
ur. Snemma bar á góðum hæfileik-
um hans í skák og var hann orðinn
einn af allra bestu skákmönnum
landsins í lok kreppunnar miklu
og hafði þó lítil tækifæri, líkt og
margur annar þá, til þess að ein-
beita sér að hugðarefnum sínum.
Hann gaf sér þó ávallt tíma til
þess að hjálpa og leiðbeina yngri
mönnum, og efast ég ekki um að
hann hefði orðið stórmeistari í
skák ef hann hefði haft þau tæki-
færi, sem bjóðast í dag. Þrátt fyrir
það, er hann ef til vill ánægðari
með lifið og tilveruna en margir
okkar, sem höfðum úr meiru að
spila. Hann hefur verið blessunar-
lega laus við það lífsgæðakapp-
hlaup, sem þjakað hefur þjóðina
síðustu 2-3 áratugina, látið hverj-
um degi nægja sína þjáningu og
aldrei reynt að frelsa heiminn, en
látið margt gott af sér leiða. Nokk-
ur síðastliðin ár hefur hann m.a.
stuðlað að andlegri heilbrigði og
vellíðan eldri borgara með því að
þjálfa þá í bridge og skák af gleði
og ósérhlífni.
Sturla og kona hans, Steinunn
Hermannsdóttir, ættuð úr Mýrdal
eiga fjögur börn, hvert öðru efni-
legra, eins og þau eiga kyn til, sem
eru hreykin af foreldrum sínum.
Sturla var kosinn heiðursfélagi
Taflfélags Reykjavíkur í nóvember
1984, enda fyrrum formaður þess
félags, og tefldi reyndar á ólymp-
íuleikum í Stokkhólmi 1937 fyrir
íslands hönd og stóð sig með ágæt-
um.
Við félagar Sturlu í skákklúbbn-
um óskum honum langra lífdaga
og vonumst til þess að mega njóta
ánægjulegra samvista hans við
skákborðið, þótt hann haldi áfram
að bursta okkur alla í hraðskák,
eins og hann hefur gert hingað
til, þrátt fyrir drjúgan aldursmun.
Sæmundur Kjartansson
Afmælisbarnið tekur á móti
gestum, ættingjum, vinum, kunn-
ingjum og skákfélögum í Félags-
heimili Rafveitunnar við Elliðaár
milli kl. 5 og 7 e.h. í dag.
NYTT FRA
MITSUBISHl!
1986 árgerðirnar verða
kynntar um helgina
Þá sýnum við:
—LANCER—
— LANCER STATION —
— TREDIA 4WD - ALDRIF ----
— COLT —
— GALANT—
— PAjERO - BENSÍN/TURBO DIESEL —
— PAJERO SUPERWAGON * BENSÍN/TURBO DIESEL -
— L 300 4WD - SENDIBÍLL/MINI BUS —
— L 300 - SENDIBÍLL/MINI BUS —
— L 200 - PALLBÍLL - BENSÍN/DIESEL -
BILARNIR, SEM SELJAST MEST,V
ERU FRÁ MITSUBISHI.
— 50 ára reynsla í faginu —
* Samkv. skýrslu Hagstofu íslands
irunu
HAMRABORG 3, SÍMI. 42011, KÓPAVOGI
wimmm®
MASSIV
FURA
Furuskatthol
Lútuð kr. 18.800.
Natur kr. 17.600.
» 1 * I
!
w *
1 '# *# . 1
* ' %
* •#’ ■■■"■■ :,J' ■ ■’I-J
g»«MÍMlliNifMMMI.
Kr. 10.970, kr. 11.800, kr. 9.260, kr. 7.980.