Morgunblaðið - 13.09.1985, Síða 44

Morgunblaðið - 13.09.1985, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1985 ntumrn © 1985 Umversal Press Syndicate 7-4 t/ Mér finnst hann m'iklu unglegri, síBdn hann lilabi á. Scr hofubið." HÖGNI HREKKVÍSI *,pA£> ERV HÓ FLEIRI,E>EM UlNNfer GOTT AÐ F'A S£R BITA UM M\E>UAZTT\£>! " Staðsetning starfsemi Verndar skiptir máli Skúli Ólatsson skrifar: Vernd getur með nokkru stolti sýnt fram á árangur af starfi sínu, sem sést best af því, að fyrrver- andi fangar hafa ekki verið áreitt- ir á þeim tveimur stöðum sem Vernd hefur haft til umráða. Þrátt fyrir takmörkuð fjárráð eða kannski vegna þessara tak- mörkuðu fjárráða, hefur ekki ver- ið ráðist í neinar of stórar fram- kvæmdir og ekki hafa risið upp neinar stórar stofnanir, sem gætu orðið óviðráðanlegar og til vand- ræða fyrir þá sem reynt er að lið- sinna. Staðsetning þess húsnæðis sem Vernd á nú á ef til vill ekki hvað minnstan hlut i þeim árangri sem Vernd hefur náð. Húsnæði nálægt miðborginni virðist heppilegra en til dæmis húsnæði í íbúðarhverfi. Nú hefur Vernd fest kaup á húsi á Teigunum og er þar áætlað að hýsa 30 manns. Þarna yrði áber- andi stofnun sem Vernd og skjólstæðingar Verndar ættu ekki auðvelt með að stjórna. Arfur ungu kynslóðarinnar Ólafur Á. Kristjánsson skrifar: Meðal annars sem ég er ekki sáttur við í fari ungu kynsióðar- innar er þetta endurtekna kvak um að þess bíði senn arfur sem eru erlendar skuldir sem foreldrar þeirra hafa tekið og haldið illa á. Ekki ætla ég að verja óhóflegar lántökur vegna þess að þær hefðu eflaust getað orðið nokkrum millj- örðum færri og án þess að at- hafnalífið hefði beðið tjón af. Það hefði bara þurft að stjórna af meiri festu. Ef rétt er að íslendingar séu með ríkustu þjóðum heims, sé miðað við höfðatöluna, hlýtur eitthvað að koma til móts við skuldirnar og jafnframt koma í hlut hins unga fólks. í Morgunblaðinu 4. september síðastliðinn er birt ræða nýkjörins formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna, sem hann hélt á nýafstöðnu landsþingi þeirra. Yfirskrift ræðu hans í Morgun- blaðinu var svohljóðandi: „For- eldrar okkar lifa um efni fram og við þurfum að borga." Meðal þess sem haft er eftir formanninum nýkjörna er: „Mik- ilvægasta verkefni okkar ungra sjálfstæðismanna fyrir kynslóð okkar er að tryggja að hún fái eitthvað annað í arf en skatta og skuldir." Þvílík speki sem nýkjör- inn formaður og hagfræðingur að auki hefur upp á að bjóða. Hér með er spurt hverjum ætlar formaðurinn að afhenda eftirtald- ar eignir foreldra, sem smátt og smátt falla frá, ef ekki börnum þeirra og aðstandendum: Öll íbúð- arhús í landinu yfirfull af hús- gögnum og húsmunum, allar raf- orkuvirkjanir, hitaveitur, vegi, Kona úr Garðabæ skrifar: Á þriðjudaginn birtist grein í Velvakanda þar sem varað er við Flokki mannsins. Langar mig að taka undir það sem stendur í þeirri grein. Þessir krakkar, sem eru í sam- tökum, eru út um allt og maður er ekki einu sinni hultur fyrir þeim úti á götu. Þau ganga að manni og vilja ræða við mann um þjóðmálin þannig að varla er hægt að komast undan þeim. Fyrir einu ári eða svo stóðu þau fyrir undirskriftasöfnun í sam- bandi við atvinnuleysi og gengu á fólk og spurðu hvort það væri ekki á móti atvinnuleysi. Auðvitað vilja allir aö sem flestir hafi vinnu en að standa að undirskriftasöfn- un með þeim hætti sem þessi Flokkur mannsins gerði, er með öllu óhæft. Það var meira að segja ráðist á krakka sem voru að fara í allan skipastólinn, fiskiðjuver og verksmiðjur, vinnuvélar, bíla, hafnir, skólabyggingar, samkomu- hús, landsímann, listaverk úti og inni og svona má endalaust telja. Ég hefði nú haldið að að minnsta kosti drjúgur hlutir með- lima Sambands ungra sjálfstæð- ismanna hlotnaðist meira í arf frá foreldrum sínum látnum en bara skuldir. Þetta unga fólk ætti að beina athygli sinni að fyrstu áratugum þessarar aldar og athuga hvernig þá var umhorfs í efnahagsmálum landsins. Afar og ömmur þessa fólks ætti hæglega að geta frætt það um ástandið sem þá ríkti og hversu mikinn arf það mátti búast við að fá frá kynslóðinni sem þá var að skilja við sitt lífsstarf. Þá voru engar erlendar skuldir og heldur engar eignir. Flestir bjuggu í óupplýstum moldarkof- um likt og fénaðurinn og fólkið svalt, því ekki var til nóg að borða. Landbúnaðarverkfæri þessa tíma voru páll og reka, orf og hrífa, og hestar til aðdráttar og ferðalaga í vegalausu landi þar sem engar brýr höfðu heldur verið lagðar yfir fljót. Sömu sögu má segja um sjávar- útveginn sem var lítið annað en handfæraveiðar á smábátum og vélarlausum seglskipum. Þá voru húsakynni ekki upp á marga fiska. Þetta var arfur aldamótafólksins. Það þjóðfélag sem við lifum við i dag er arfur sem fyrri kynslóðir þessarar aldar hafa látið okkur í té og þakklætið er ekki meira en svo að þunga fólkið bölsótast yfir því að öllum þessum gæðum skuli fylgja nokkrir ógreiddir reikn- ingar. bíó og ekkert vit höfðu á stjórn- málum. Upphaflega er þessi flokkur sprottinn upp úr félagsskap sem nefndist Samhygð og var einhvers konar mannræktarfélagsskapur hefur mér skilist. Mér var sagt að sá félagsskapur hefði verið lagður niður og þessi Flokkur mannsins stofnaður í staðinn. Samhygð var upphaflega félagsskapur sem átti að vera ópólitískur og óháður öll- um trúarbrögðum. Síðan var nátt- úrulega þessi flokkur stofnaður og um leið allir þeir sem i Samhygð voru, voru narraðir til að taka þátt í þessum Flokki mannsins. Það er mín meining að þarna á bak við búi meira en eitthvað lítið gruggugt enda hefur það komið á daginn að þessi félagskapur er angi af alþjóðlegri hreyfingu. Með þökk fyrir birtinguna. Nýi miðbærinn og væntanleg nýbygging í Skuggahverfinu, þar sem reiknað er með þéttri byggð, eru eflaust ákjósanlegir staðir fyrir starfsemi Verndar í svipuð- um einingum og nú er og vel hefur reynst. Þessir hringdu .. N iðurgreiðslurnar hafa ekki verið styrkur til bænda Andrés Sighvatsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: í sambandi við það sem stendur í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðs- ins þann 25.8. síðastliðinn um ~ niðurgreiðslur, væri æskilegt að fólk gerði sér grein fyrir að hinar svonefndu niðurgreiðsiur á land- búnaðarafurðum fyrir innlendan markað hafa aldrei verið styrkur til bænda. Þær hafa miklu fremur verið eitt af tækjum stjórnvalda, eða styrkur þeirra til neytenda á hverjum tíma til þess að auðvelda þeim að halda kaupgjaldi og verð- bólgu í skefjum. Þannig hefur einnig verið komið til móts við þá sem lægstlaunaðir eru. Auðvitað eiga bændur að fá raunverð fyrir sína mikilvægu framleiðsluvöru eins og aðrir framleiðendur. Fólk á heldur ekki að fá svo lágt kaup að það geti ekki keypt þessa nauðsynlegu og hollu vöru á réttu verði. Þakkir fyrir góða þjónustu í hljóm- plötuverslun í Glæsibæ E.F. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: Þannig er mál með vexti að ég keypti plötu fyrir mánuði og sendi hana til vinafólks míns í útlönd- um. Plötuna keypti ég í hljóm- plötuverslun í Glæsibæ. Þegar platan komst hins vegar til við- takanda kom í ljós að hún var skemmd. Var hljómplatan endur- send og fór ég þá með hana í versl- unina til að fá henni skipt og var það gert góðfúslega. Langar mig núna að koma á framfæri þakklæti mínu til af- greiðslustúlkunnar í hljómplötu- versluninni í Glæsibæ því hún var virkilega almennileg. Eitthvað gruggugt býr að baki Flokki mannsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.