Morgunblaðið - 15.09.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
B 15
Fundist
hafa tvær
ljósmyndir
af Reykja-
vík frá 1848
Tvær Ijósmyndir, sem
sýna Kvosina og Grjótaþorpið
í Reykjavík árið 1848, eru nú
til sýnis í Ljósmyndasafninu.
Myndirnar tók franskur
maöur að nafni Descloiseaux
og eru þær án efa langelstu
útimyndir sem til eru frá
íslandi því þær eru teknar 9
árum eftir að Ijósmyndatækn-
in (Daguerremynd) var fund-
in upp af Louis Daguerre.
„Myndirnar sýna alla Reykjavík
eins og hún var á þessum tíma,“
sagði fvar Gissurarson forstjóri
Ljósmyndasafnsins. Myndirnar
bárust safninu fyrir einu og hálfu
ári og var það ljósmyndarinn
Cristian Rogers, sem fann þær.
Hann hefur síðan verið tengiliður
safnsins í leit sem farið hefur fram
í Prakklandi síðan myndirnar
fundust í þeirri von að þessar tvær
myndir væru hluti úr stærra
ljósmybndasafni.
„Við vitum lítið um ljósmyndar-
ann Descloiseaux. Það eina sem
vitað er er að hann kom hingað
ásamt nokkrum öðrum árið 1847
til að gera hér jarðfræðiathuganir
og dvaldi hér í níu mánuði. Þess
vegna vorum við að vonast til að
finna fleiri myndir, en sú leit hefur
ekki borið neinn árangur," sagði
Ivar. „í bók um ljósmyndarann
Sigfús Eymundsson telur Þór
Magnússon þjóðminjavörður elstu
myndina vera frá 1867. Síðan hafa
eldri myndir komið í leitirnar en
að til væru myndir héðan frá 1847
kom okkur skemmtilega á óvart.
Myndefnið á þessum myndum er
mjög óvenjulegt. Algengustu
myndir frá þessum tíma voru
andlitsmyndir eins og elsta mynd
sem til er á Norðurlöndum, mynd-
in af Bertil Thorvaldsen, tekin árið
1840.“
Myndir sem teknar voru með
Daguerre-ljósmyndatækni voru
teknar á silfurhúðaða koparplötu
með þunnu lagi af ljósnæmu silfur-
joði. Platan var lýst og síðan fram-
kölluð í kvikasilfursgufu og loks
fixeruð í fixerantroni. Myndin kom.
fram sem spegilmynd og ljós þurfti
að falla inn á plötuna frá sérstöku
horni til að hún tæki á sig pósitífa
mynd.
„Heimspeki
með börnum“
„Heimspeki með börnum“ er efni
fyrirlestrar, sem Hreinn Pálsson,
IVIA, flytur í dag £ vegum Félags
áhugamanna um heimspeki í stofu
101 í Lögbergi.
Hreinn Pálsson lauk BA-prófi í
heimspeki og sögu við Háskóla ís-
lands, en hefur síðan dvalið við
framhaldsnám í Bandaríkjunum,
þar sem hann vinnur nú að dokt-
orsverkefni við Michigan State
University. Efni fyrirlestrarins, er
í tengslum við doktorsverkefnið.
Myndin sýnir Kvosina 1848. Fremst er mýrarfláki þar sem nú er Austurvöll-
ur og í baksýn er Torfan með Lækjarbrekku lengst til vinstri. Dökka húsið
með hvítu gluggahlerunum er Smiðshús sem stóð við Lækjargötu en er nú
í Árbæjarsafni.
Á þessari mynd sér yflr Reykjavík frá Hólavöllum, austan við núverandi
LandakoL Lengst til vinstri er Grjótaþorp og fremst fyrir miðju er Dillons-
hús, sem stóð á horni Túngötu og Suðurgötu en er nú kafflstofa í Árbæjar-
safni.
HLJOÐLAT
„OG AFKASTAMIKIL
HORKUTOL FRA PHILCO
Philco 421 þurrkarinn.
Philco þurrkarinn tekur 5 kg af þurrþvotti
sama magn og þvottavélin. Hann er
einfaldur í notkun; þú velur á milli 3
sjálfvirkra þurrkkerfa sem henta öllum
tegundum þvotts. Purrktími getur
varað allt að tveimur klst. auk átta
mínútna kælingar í lok þurrkunar.
Philco w 393 þvottavélin.
Ytri belgurinn sem er úr ryðfríu stáli gerir
Philco að enn betri og öruggari
þvotttavél en áður. Vélin vindur með
allt að 1000 snúninga hraða á mínútu.
Hún hefur stóran þvottabelg og tekur
inn á sig bæði heitt og kalt vatn.
Þannig sparast umtalsverð orka.
Hægt er að láta þurrkarann standa ofan á þvottavélinni
- það sparar þér dýrmætt rými og eykur vinnuhagræði.
Á vélunum er öryggisbúnaður sem tryggir þér betri endingu og lægri viðhaldskostnað.
Að síðustu má ekki gleyma að vélarnar heita Philco
og eru frá Heimilistækjum. Það talar sínu máli: Traust nöfn, sanngjarnt verð og örugg þjónusta.
Láttu Philco skila þér þvottinum hreinum og þurrum - engar snúrur, engar áhyggjur.
Við erum sveigjanlegir í samningum.