Morgunblaðið - 15.09.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
B 25
Minning:
Valdimar Lárusson
Kirkjubæjarklaustri
Fæddur 4. janúar 1908
Dáinn 26. júlí 1985
Valdimar Lárusson á Kirkju-
bæjarklaustri andaðist á heimili
sínu hinn 26. júlí sl. Hann hafði
um nokkurt skeið kennt sjúkdóms
þess sem dró hann til bana og
dvalið um tíma I sjúkrahúsum í
Reykjavík.
Valdimar Lárusson fæddist á
Kirkjubæjarklaustri í Vestur—
Skaftafellssýslu 4. janúar 1908.
Foreldrar hans voru hjónin Elín
Sigurðardóttir og Lárus Helgason
bóndi og alþingismaður á Kirkju-
bæjarklaustri. Valdimar lauk
prófi frá Samvinnuskólanum í
Reykjavík 1927. Loftskeytaprófi
lauk hann árið 1928.
Valdimar Lárusson starfaði sem
loftskeytamaður á varðskipum
ríkisins og á strandferðaskipinu
Súðinni á árunum 1929 til 1940,
og átti þá heima í Reykjavík.
Næsta ár vann hann við verslunar-
störf o.fl. á Kirkjubæjarklaustri.
Hann var síma- og póstafgreiðslu-
maður þar frá 1942 til 1979 og
annaðist jafnframt veðurathugan-
ir fyrir Veðurstofu íslands. Jafn-
framt störfum þessum var hann
bóndi.
Hinn 31. desember 1940 kvænt-
ist Valdimar eftirlifandi konu
sinni, Guðrúnu Ólafsdóttur, f. 4.
janúar 1914. Hún var dóttir Ólafs
bónda á Holtahólum á Mýrum í
A-Skaftafellssýslu Einarssonar og
konu hans önnu Pálsdóttur. Börn
þeirra Valdimars og Guðrúnar eru
þessi: Lárus f. 1940, bóndi, Einar
f. 1944, útibússtjóri kaupfélagsins
á Kirkjubæjarklaustri, Elín Anna
f. 1950, póst- og símaafgreiðslu-
maður, Haukur f. 1954, læknir, og
Trausti f. 1958, trésmiður.
Ég kynntist Valdimar Lárussyni
þegar hann var loftskeytamaður á
strandferðaskipinu Súðinni. Kona
mín, Sigrún Helgadóttir, og Valdi-
mar voru systrabörn, og á þeim
árum bjuggum við hjónin á Seyðis-
firði. Segja má, að þau frænd-
systkin hafi verið fóstursystkini,
því að kona mín var uppalin hjá
foreldrum Valdimars frá því að
hún var á fjórða ári og til tvítugs-
aldurs. Á þeim tíma sem Valdimar
var loftskeytamaður á Súðinni
hittumst við jafnan þegar skipið
kom á Seyðisfjörð. Súðin hafði
stundum stutta viðdvöl svo að
samfundir okkar voru þá auðvitað
ekki langir, en eigi að síður ætið
mjög ánægjulegar. Suma hluti,
sem unnt var að fá í Reykjavík,
var ekki auðvelt að fá í fámennum
kaupstað úti á landi. Slík vanda-
mál var Valdimar fús að leysa
fyrir okkur hjónin. Það var engu
líkara en Valdimar þætti það
greiði við sig að nálgast það, sem
okkur vanhagaði um, og færa
okkur það í næsta sinn, sem hann
kom á Seyðisfjörð. Eftir að við
fluttumst til Reykjavíkur komum
við nokkrum sinnum að Kirkju-
bæjarklaustri og áttum þá ævin-
lega góðum og rausnarlegum vin-
um að mæta þar sem þau Guðrún
og Valdimar voru.
Valdimar Lárusson var vel
meðalmaður á vöxt og svaraði sér
vel. Hann var bjartur yfirlitum,
málhress og ræðinn og gat verið
gamansamur þegar það átti við.
Kynni okkar Valdimars verða mér
ætíð hugstæð, ekki síst vegna þess
hve alúðlegur og glaðlyndur hann
var. Samverustundirnar með hon-
um voru því ætíð mjög ánægjuleg-
ar og verða ógleymanlegar.
Heimili frú Guðrúnar og Valdi-
mars heitins á Kirkjubæjar-
klaustri var frábært. Þar mátti
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
sjá málverk eftir meistara Kjarval
auk annarra listmuna. Við hjónin
munum lengi minnast glaðværra
samfunda á heimili þeirra hjóna
og frábærra veitinga, sem við
nutum þar.
Við hjónin minnumst Valdimars
Lárussonar með hlýhug og þakk-
læti um leið og við vottum eftirlif-
andi konu hans, frú Guðrúnu Ól-
afsdóttu.r og fjölskyldu hennar Liðsmenn úr slökkviliði Reykjavíkurflugvallar komu í heimsókn til Landbelgisgæslunnar í fyrradag. Tilgangur
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
íheimsókn hjá Landhelgisgœslunni
einlæga samúð.
heimsóknarinnar var að auka enn samvinnu þessara aðila, en samstarf þeirra á milli hefur ætíð verið mikið. —
Hjálmar Vilhjálmsson Myndin er tekin um borð í varðskipinu Tý, en þar var snæddur hádegisverður.
Líneik
Laugavegi 62, sími 23577