Morgunblaðið - 15.09.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.09.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLADIP, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985 B 33 Bóklegt einkaflugmannsnámskeið hefst 23. sept. Uppl. gefnar í síma 28970. FLUGFAR HF KANARI Sól og sjór um hávetur. sem Hefur þú íariö í vetrarfrí til Kanarí? . . . Éf ekki ættir þú aö nota þetta tækifæri. Hafir þú fariö áöur . . * feröú örugglega aftur! Pantið sem fyrst, því t.d. jóláférðirnár veröa fljótleqa uppseldar. Brottför alla þriðjudaga frá 29. okt. með viökomu t Amsterdam. Tvegcjio natta gisting þar innifalin. Góöur Sarnaafsláttúr. miöaö dagar dagar dagar -gTC^VTMC lönaöarhúsinu, Bergur Einarsson trúnaðarmaður Dagsbrúnar. Dagsbrúnarmenn fóru sér hægt við vinnuna — Litið inn í Bæjarútgerð Reykjavíkur í bónusvinnustöðvun „Óneitanlega setur það strik í reikninginn að tækjamenn skuii ekki vinna í bónus, því allt er á fullum dampi á borðun- um,“ sagði Magnús Guðmundsson, verkstjóri hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur er Morgunblaðsmenn litu inn í frystihús Bæjarút- gerðarinnar á Granda eftir hádegi í gær, en þá var nýgengin í gildi þar samúöarbónusvinnustöðvun Dagsbrúnar. í dag kemur síðan bónusvinnustöðvun verkakvennafélagsins Fram- sóknar einnig til framkvæmda. Magnús sagði of snemmt um það að segja hvað afköstin minnkuðu mikið að svo komnu, en ljóst væri að það yrði að vinna á laugardag ef takast ætti að frysta allt. Hann sagði að um 30 manns sem væru í bónusverkfalli á staðnum og innu þeir einkum við frystitækin. Hjör- leifur var nýkominn inn með 130 tonn af fiski og sagði hann að það myndi allt sent út í gámum. Aðspurður um hvort hann bygg- ist við mikilli afkastaminnkun, þegar bónusvinnustöðvun Fram- sóknar kæmi einnig til fram- kvæmda, sagði hann að það yrði sjálfsagt um helmingsminnkun. Þeir hefðu fengið smá sýnishorn af því á mánudaginn eftir fund sem Guðmundur J. hefði haldið með starfsfólkinu og afköstin hefðu minnkað talsvert, þó ekki hefði verið full samstaða um hægagang- inn. “Það er allt á huldu um fram- haldið. Vonandi leysist þetta sem fyrst, það verður að nást sam- komulag," sagði Magnús. “Annars sagði Guðmundur J. á fundinum hér um daginn að fiskvinnslufólkið hefði verið notað sem skiptimynt í samningunum í sumar og það er spurning hvort ekki er verið að nota það sem skiptimynt aftur nú fyrir samningana í vetur“. Magnús Magnússon, yfirverk- stjóri, sagði að það vantaði senni- lega um helmingi fleiri stúlkur á borðin, en þeir hefðu nú. Þær væru nú 40-45 þegar best léti, en í sumar þegar skólafólkið var að vinna hefðu þær verið 110. Hann efaðist um að margir hefðu auglýst meira en BÚR eftir fólki, en það hefði ekki borið meir árangur en þetta og einkum verið karlar sem sóttu um störf. Hann sagði það segja sitt um öryggisleysið í þessari atvinnugrein og hefði kannski sitt að segja um ásóknina í þessi störf, að þetta væri í fjórða skipti á ár- inu, sem vinnslan yrði fyrir trufl- unum. Fyrst hefði það verið jóla- stoppið, síðan tvivegis togaraverk- fall og nú þetta. “Þetta er í fyrsta skipti í 2 mán- uði sem við tökum okkur góða pásu, enda búið að vera rólegt í dag,“ sagði Bergur Einarsson, trúnaðarmaður Dagsbrúnar, sem Morgunblaðið hitti einnig að máli. Hringt er í pásu einu sinni á hverj- um klukkutíma í frystihúsinu, en hún venjulega ekki tekin vegna þess að þá minnkar bónusinn. Hann sagði að við frystana innu venjulega 4 menn saman en nú væru þeir 8 og hefðist ekki undan. Þeir myndu aðeins vinna til klukk- an 5, en það hefði þurft að vinna Morgunblaðið/Friðþjófur Unnið við að setja karfa í frysti í Bæjarútgerð Reykjavíkur skömmu eftir að bónusvinnustöðvun Dags- brúnar hófst. lengur til að klára það sem fyrir lægi. “Hljóðið í fólkinu er ágætt, þó auðvitað sé það eitthvað upp ofan,“ sagði hann er hann er hann var spurður um viðhorf fólksins til bónusvinnustöðvunarinar. “Fólk er orðið þreytt á þessu kaupi og það fékk ekkert í samningunum síðasta sumar. Því var ákveðið að reyna að ná einhverju i gegnum bónusinn. Það er samstaðan sem gildir, það kemur aldrei neitt nema farið sé í einhverjar aðgerðir. Það er í það minnsta venjan. Ég vil engu spá um hvað þetta verður langvinnt, en ég held að hvorugur aðilinn hafi efni á þvi að þetta verði langvinnt," sagði Bergur. Það kom fram hjá Bergi að bón- usinn getur verið allt frá 30-40% ofan á launin uppí það að tvöfalda þau. Hann sagði að af þeim átta mönnum sem unnu við frysting- una, væru aðeins tveir vanir nú og svoleiðis hefði það verið frá því skólafólkið hætti. Afköstin væru minni hjá óvönu fólki, en þarna hefði verið harður kjarni 6-7 manna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.