Morgunblaðið - 15.09.1985, Síða 51
MORGUNBLAÐJÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
B 51
Ítalía:
Agnes Varda hlýtur
Gullljónið á kvikmynda
hátíðinni í Feneyjum
— Depardieu besti leikarinn,
Houston og Fellini heiöraöir
Stjörnugjöfin
STJÖRNUBÍÓ:
Aökomumaöurinn
Micki og Maude * * V4
TONABÍO:
Minnisleysi
HÁSKOLABÍÓ:
Rambó * * Vt
AUSTURBÆJARBÍO:
Ofurhugar * * * 'Æ
Arthur
Hrafninn flýgur * * * Vi
LAUGARÁSBÍÓ:
Gríma * * * V4
Maöurinnsemvissiofmikiö * * *
Morgunv.klúbburinn
NÝJA BÍÓ:
Steggjapartý
BÍOHOLLIN:
ÁrDrekans
Vtgísjónmáli
Tvifararnir
Hefnd Porky’s
Rafdraumar
REGNBOGINN:
Örvæntingarfull leit að Susan
Hernaöarleyndarmál
Vitnið
LögganíBeverleyHills
Atómstööin
Augafyriraugall
HraaOilega motnaðargjarn hrollvekjumeistari. Stephen King tekur sér
hlé trá leikstjórninni í Overdrive.
Bandaríkin:
King sleppir pennanum
og fer aö leikstýra
Maöur er skorinn í sundur af
sinni eigin garösláttuvél. Bilaö
„Walkman“-vasasegulbandstæki
sprengir í tætlur hausinn á næsta
nágranna og gengilbeina fær hníf í
kviöinn.
O, jæja. Þannig er lífið í úthverf-
unum eöa svo vill rithöfundurinn
og hrollvekjumeistarinn bandaríski
Stephen King láta okkur halda i
sinni fyrstu kvikmynd, sem hann
leikstýrir sjálfur. Hún heitir Over-
drive og er tekin í Norður-Karolínu.
Þaö er sumsé um aö ræða frum-
raun hins 37 ára gamla Kings á
kvikmyndasviðinu en þær eru
ófáar myndirnar, sem geröar hafa
veriö eftir bókum hans. King læröi
þaö fljótt aö þaö aó búa til kvik-
mynd er ekki þaö sama og aö
skrifa. „Það er alltaf heill hellingur
af fólki í kringum mann hér,“ er
haft eftir honum á upptökustaö.
En hrollvekjusmiðurinn heföi
ekki viljaö missa af þessu tækifæri
til aö leikstyra fyrir sitt litla lif.
Hvorki meira né minna en ellefu
bækur hans hafa veriö kvikmynd-
aðar af öörum og honum fannst
kominn tími til aö hann sjálfur
fengi aö gera mynd. „Ég varö aö
minnsta kosti aó gera eina,“ segir
hann.
„Þessi mynd er einskonar vól-
vædd Birds (e.Hitchoock). Fólk
hefur sagt mór í langan tima aö ég
ætti eftir aö bæta hinu sjónræna í
verk mín.“ Er hann nokkuö hrædd-
ur um aö mistakast í leikstjórn-
inni? „Ég er skíthræddur um þaö,“
svarar hann.
Þvi má bæta viö hér aö Bíóhöllin
ætlar bráölega aö sýna eina mynd-
ina til, sem gerö hefur veriö eftir
sögu Stephen Kings. Sú heitir Cats
Eye og var gerö á þessu ári (sjá
annars staöar á síöunni). Og í lokin
nefni óg nokkrar myndir geröa eftir
sögum King en allflestar þeirra
hafa veriö til sýningar hór á iandi:
Carrie, The Shining, Salem's Lot,
Creepshow, Gujo, Firestarter,
Dead Zone og svo Cats Eye.
Bíóhöllin; Kattaraugað:
Smásögur eftir Stephen King
Fertugustu og annarri kvik-
myndahátíöinni i Feneyjum lauk
fyrir skömmu og hlaut hín belgísk-
ættaóa Agnés Varda Gullljóniö
þetta áriö fyrir mynd sína Sans
Toit ni Loi, sem á íslensku útleggst
einhvern veginn svona: Án þaks
eöa laga. Segir hún frá feröalagi
flakkara um suöurhluta Frakk-
lands. Kvikmyndagagnrýnendur á
hátíöinni fögnuóu mjög þessari
ákvöröun.
Franski leikarin Gerard Depar-
dieu hlaut verðlaun fyrir besta leik
i karlhlutverki en hann leikur
hörkulega löggu í mynd Maurice
Pialat, sem einfaldlega heitir Pol-
ice.
Þaö kom á óvart að dómnefnd
hátíöarinnar veitti engln veröalaun
fyrir leik í besta kvenhlutverki en
kaus þess í staö aö minnast á
góöa frammistööu fimm leik-
kvenna. Sórstök verölaun hlaut
ameríska myndin The Lightship
eftir pólska leikstjórann Jerzy
Skolimowski, aðallega fyrir frum-
leika. Robert Duvall vakti einnig
mikla hrifningu gagnrýnenda fyrir
frammistööu sína í myndinni.
John Houston kynnti nýjustu
mynd sína Prizzie’s Honor á
kvikmyndahátíöinni og hlaut sór-
stök verðlaun fyrir frammistööu
sína í kvikmyndaheiminum um
ævina. Hann hlaut svipuö verölaun
á Cannes-hátíöinni á sióasta ári.
Portúgalski leikstjórinn Manoel de
Oliveira var heiöraöur í Feneyjum
meö svipuöum verölaunum og
Houston.
Bandaríska kvikmyndin Coco-
on, sem Ron Howard leikstýröi,
hlaut verðlaun í nýjum kvikmynda-
flokki, „Feneyjar æskunnar", sem
forráöamenn hátíöarinnar komu á
fót á þessu ári til aö geta veitt sér-
stök verölaun þeim myndum er
þeir halda aö höföi sérstaklega til
ungs fólks.
Dustin Hoffman mætti á hátíö-
ina og vakti heimsókn hans feiki-
lega athygli. Meö honum var
myndin Death of a Salesman
(Sölumaöur deyr), sem gerö er af
Volker Schlöndorff eftir sam-
nefndu leikriti Arthurs Miller.
Hoffman var mjög hrósaö í hlut-
verki Lomans. Þaö vakti einmitt
talsveröa athygli hve amerískar
kvikmyndir hlutu mikla eftirtekt og
athygli á Feneyjahátíöinni.
Hinn nýi forseti italíu, Francesco
Cossiga, kom einnig á hatíðina og
í fylgd með honum var meistari
Fellini. Sá síöarnefndi var verö-
launaöur meö Gullljóni fyrir ævi-
langt starf í kvikmyndum. _ aj.
... og King heldur áfram aö skrifa smásögur og skáldsögur og þær seljast
eins og heitar vöfflur... þaö viröist í rauninni engu skipta hvaö hann setur
á pappír, hann Stebbi, „talaða ritmáliö” hans í hrollvekjuformi hefur sjald-
an veriö vinsælla og er þá ekki kjöriö aö gera úr þvi bíó. Þaö hefur
ekkert dregiö úr ásókn kvikmyndageröarmanna í smiöju Stebba hrolls.
Fyrir tíu árum möluðu myndirnar eftir bókum hans gull, Carrie og
The Shining, en síöan f jölgaði myndunum og almenningur var ekki
eins auödreginn í bíó. Nú oröið eru myndirnar aöeins í meöallagi
vinsælar, að minnsta kosti í Bandaríkjunum. Þaö nýjasta var
aö láta King skrifa handrit upp úr þremur smásögum, tvær
þessara sagna höföu birst í Night Shitt (1978). Fyrir King
var þaö ekkert mál, en öllu erfiöara var aö búa til þriöju
söguna, því hún átti aö standa sjálfstætt, en tengja samt
allar saman. Eins og allir muna þá var aöalhetjan úr
smásögunurn drengur, en þar sem Drew Barrymore,
■■"g stúlka, var þegar ráöin í aöalhlutverkiö, varö
ving aö skipta á kynjum. Fyrsta sagan fjallar um
fyrirtækiö Quitters, Inc., sem sérhæfir sig í aö
kenna fólki aö hætta aö reykja; og aöferðirn-
ar eru svo svakalegar að engan langar í
tóbak. James Woods leikur aöalrulluna í
þessari sögu. Saga númer tvö f jallar um
og kötturínn. tvo menn sem eru hrifnir af sömu
konunni, og gera allt til aö ná í hana.
Og í þriöju sögunni eru stelpan
Drew og kötturinn í höfuörull-
um. Leikstjóri er Lewis
Teague. Bíóhöllin hefur áöur
sýnt mynd eftir hann,
Cujo.
Ýmsar aöferöir aru notaöar i fólk sai
ætlar aó hætta aö roykja.
Gerard Depardieu
John Houston
Agnés Varda
Federico Fellini
tr*
*■