Morgunblaðið - 15.11.1985, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR15. NÓVEMBER1985
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
———________. ________________' ...... .................
þjónusta
a
Dyrasímar — Raflagnir
Gesturratvirkjam.s. 19637.
Húseígendur — leigjendur Utvegum húsnæði og leigjendur. T ryggt í stóru tryggingafélagi. Húsaleigufélag Reykjavíkur og nágrennis, Hverfisgötu 82, 4.hæö.Sími621188. : félagsiíf | aJ áÁ-AA J /ffl\ FERÐAFÉLAG ^ ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 Kl. 13.00 er gengiö á Grimmans- fell. Ekiö veröur upp í Mosfells- sveit og gengiö þaöan á fjalllö. Létl ganga og þægileg. Verö kr. 350.00. Muniö aö vera Alh.: Farðir Feróafélags Akur- eyrar 1985 féet é skrifstofunni. Feröafélag islands.
I.O.O.F. 1 = 16711158'/i=Sp. SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferð sunnudaginn 17. nóv. vel búin. Brottför frá Umferöarmiöstööinni,
I.O.O.F.12=16711158’/4s austanmegin. Farmiöar viö bíl. Fritt fyrir börn í fylgd fulloröinna. Metsö/ub/od á hverjum degi!
y
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Akranes - Aðalfundur
Aöalfundur fulltrúaráös sjálfstæölsfélaganna á Akranesi veröur hald-
inn mánudaginn 18. nóvember 1985 kl. 20.00 stundvíslega í sjálfstæö-
ishúsinu viö Heiðargeröi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnurmál.
Egilsstaðir
Hreppsmálanefnd
Sjálfstæöisflokkslns
á Egilsstööum held-
ur fund í Valaskjálf
laugardaginn 16.
nóvemberkl. 13.00.
Dagskrá:
1. Dagskrá hrepps-
nefndarfundar 19.
nóvember.
2. Sveitarstjórnar-
kosningar 1986.
3. Önnurmál.
Ragnar Helgi
Ragnar Steinarsson og Helgl Halldórsson hreppsnefndarmenn sitja
fyrir svörum.
Allt stuóningsfólk flokksins velkomiö.
Stjórnin.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vörn
Aöalfundur veröur haldinn laugardaginn 16. nóvember kl. 13.30 í
Kaupangi viö Mýrarveg.
Dagskra:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnurmái.
Gestir fundarins veröa bæjarfulltrúar Sjálfstæölsflokksins.
Félagskonur f jölmenniö og takiö meö ykkur nýja félaga.
Stjórnin.
Keflavík
Sjálfstæðiskvennafélagið
Sókn
Aöalfundur veröur haldinn í Sjálfstæöiskvennaféiaginu Sókn mánudag-
inn 18. nóvember nk. kl. 20.30 i Sjálfstæöishúsinu Hafnargötu 46.
Dagskrá:
1. Ávarp formanns.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. önnurmál.
Fundarstjóri: Þorbjörg Guönadóttir.
Félagskonurfjölmenniö. Stjórnin.
Njarðvíkingar
— viðtalstímar
Fulltrúar sjálfstæö-
ismanna í bæjar-
stjórn veröa meö
viötalstíma í Sjálf-
stæöishúsinu Njarö-
vík, laugardaginn
16. nóvember frá kl.
14.00-16.00. Til viö-
tals veröa bæjarfull-
trúarnir Ingólfur
Báröarson og
Sveinn R. Eiríksson.
Bæjarbúar eru
hvattlr til aö líta inn
og raaöa viö bæjarfulltrúana um bæjarmál.
Sjálfstæóisfélögin ÍNjarövik.
Almennur fundur kl. 21.00
Aö loknum aöalfundl veröur opinn stjórnmálafundur. Frummælandi
Birgir isleifur Gunnarsson formaöur stóriðjunefndar. Einnig mæta á
fundinn þingmenn Sjálfstæöisflokksins í Vesturlandskjördæmi, þeir
Valdimar Indriöason og Sturla Böövarsson.
Fuiitrúaráó sjaltstæöisfélaganna á Akranesi.
Opnunarhátíð
Föstudaginn 15. nóvember kl. 21.30 verður
„Neöri deild" Valhallar opnuö eftir miklar
endurbætur á salarkynnum (.Neöri deildin"
hét áöur „Kjallari Valhallar"). Á þessari
opnunarhátiö veröa sérstakir gestir þeir
Heimdellingar sem nú prýöa framboöslista
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir borgar-
stjórnarkosningar. Þaö eru þau: Anna K.
Jónsdóttir, Árni Sigfússon, Baldvin Einars-
son, Bjarni Á. Friöriksson, Jóhanna E.
Sveinsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Kristín
Sigtryggsdóttir, Sigurbjörn Þorkelsson,
Sólveig Pétursdóttir og Vilhjálmur G. VII-
hjálmsson. Skemmtlnefnd „Neöri deildar"
fékk hátíðlegt loforö frambjóöendanna aö ræöur veröi ekki fluttar
heldur veröi rabbaö yfir „léttum veitingum og Ijúfri tónlist". Sverrir
Stormsker listamaóur mun einnig heiöra samkomuna og flytja
nokkur frumsamln verk.
Ann.
Arni Baldvin Bjarni
Sigurbjörn Sólv.ig Vilhjilmur
Helmdallur
Kveðjuorð:
Árni Kristjánsson
framkvæmdastjóri
Árni Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Vélsmiðju Kristjáns
' Gislasonar lést sl. sunnudag eftir
stutta legu.
Árni hóf snemma störf í vél-
smiðju föður síns Kristjáns Gisla-
sonar. Síðar tók Árni við rekstri
smiðjunnar, sem hann hefur rekið
með miklum myndarbrag allt til
þessa. Vélsmiðja Kristjáns Gísla-
sonar var aðili að stofnun Meist-
arafélags járniðnaðarmanna 1938.
Árni hóf þátttöku í störfum félags-
ins árið 1954 og vann alla tíð ötul-
lega að margskonar málum er
horfðu til framfara fyrir íslenskan
málmiðnað.
Árni var ákaflega heill og
traustur félagsmaður og voru
honum falin margháttuð trúnað-
arstörf. Hann var formaður Meist-
arafélagsins á árunum 1962—65
og aftur 1975—77. Hann sat einig
í stjórn félagsins sem ritari stjórn-
ar á árunum 1958—62 og 1966—68.
Jm. Auk þessa gegndi hann fjölmörg-
um störfum fyrir félag sitt. Átti
hann m.a. sæti í stjórnum Vinnu-
veitendasambands Islands og
Sambands málm- og skipasmiðja
svo og í allmörgum veigamiklum
nefndum sem fulltrúi málmiðn-
anna. Hann var formaður uppstill-
ingarnefndar Meistarafélagsins
allt frá því sú nefnd var stofnuð
til hinsta dags. Naut hann mikils
trausts félagsmanna í því starfi
sem öðrum, enda lagði hann
áherslu á að vanda val manna til
starfa fyrir félagið.
Árni lagði metnað sinn í að reka
fyrirtæki sitt vel og að standa í
skilum. Hann var orðlagður fyrir
snyrtimennsku og reglusemi og
geymdi ekki verk liðins dags til
morguns. Frágangur á skjölum og
bókhaldi var með eindæmum
vandaður og markviss. Að loknum
hverjum vinnudegi vissi Árni
hvort fyrirtæki hans hefði miðað
fram á leið og í hvaða mæli. Fyrir
allmörgum árum voru erlendir
rekstrarfræðingar fengnir til að
skoða íslensk málmiðnaðarfyrir-
tæki og benda á hvað betur mætti
fara. Við minnumst . ummæia
þeirra að lokinni heimsókn í Vél-
smiðju Kristjáns Gíslasonar. Áttu
þeir vart orð til að lýsa þeirri
reglusemi og snyrtimennsku er
þeir urðu vitni að og sem var að
þeirra mati einsdæmi.
Árni hafði óvenju fágaða fram-
komu, hann tranaði sér aldrei
fram í neinu en aðrir sóttust eftir
að njóta mannkosta hans. Fólk
Iaðaðist að Árna vegna fass hans,
réttsýni og þess trausta viðhorfs
er í honum bjó.
Dagana 24. og 25. októbr sl. sat
Árni Iðnþing íslendinga, sem full-
trúi Meistarafélagsins ásamt fleiri
félögum sínum. Var Árni sem jafn-
an giaðlegur og hógvær og ræddi
margt bæði hvað varðaði fyrirtæki
sitt og ánægjulegar samveru-
stundir með fjölskyldu sinni. Á
öðrum degi þingsins veiktist Árni
og var fluttur í skyndi á sjúkrahús
og átti ekki þaðan afturkvæmt.
Þessi sviplegi atburður markaði
spor í vitund þeirra er með honum
voru og horfðu á eftir félaga og
traustum samstarfsmanni í önn
dagsins.
Við sem höfum starfað með
Árna að málefnum málmiðnanna
í þessu landi söknum þessa vand-
aða og trausta félaga og sam-
starfsmanns. Okkur er ljóst að
þann sess, sem hann skipaði, verð-
ur vandi að fylla að nýju.
Um leið og við látum i ljós
þakklæti fyrir ósérhlífin störf
Árna vottum við eiginkonu hans,
börnum og öðrum aðstandendum
einlæga samúð okkar. Árna mun
lengi verða minnst meðal okkar
sem góðs drengs og félaga og
honum fylgja óskir um farsæla
heimkomu að lokinni þeirri ferð,
sem hann hefur nú lagt upp í.
Meistarafélag jár niðnaðarmanna
Namband málm- og skipasmiðja.
Biskup vísiter-
ar Kirkjuhvols-
prestakall
BISKUP íslands, herra Pétur Sigur-
geirsson vísiterar Kirkjuhvolspresta-
kall í Rangárvallaprófastsdæmi nú
um helgina og hefur hann þar með
lokið vísitasíu þar í prófastsdæminu,
en hin prestaköllin heimsótti hann
fyrr í sumar. Dagskráin verður sem
hér segir:
Laugardagur 16. nóvember Kálf-
holtskirkja kl. 14.00. Sunnudagur
17. nóvember Hábæjarkirkja í
Þykkvabæ kl. 10.30. Árbæjarkirkja
kl. 14.00.
Biskup hefur fund með sóknar-
presti, sr. Auði Eir Vilhjálms-
dóttur og sóknarnefnd hverrar
kirkju í tengslum við guðsþjón-
usturnar.
í för með biskupi verður bisk-
upsfrúin Sólveig Ásgeirsdóttir,
prófastshjónin, sr. Sváfnir Svein-
bjarnarson og frú Ingibjörg Hall-
dórsdóttir, svo og sr. Magnús
Guðjónsson biskupsritari.
(Frétutilkynning)
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans!