Morgunblaðið - 15.11.1985, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 15.11.1985, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR15. NÓVEMBER1985 47 „Maður verður bara að bíta á jaxlinn og vona það besta“ — segir Arnór Guðjohnsen, knattspyrnumaður, sem átt hefur við meiðsli að stríða / - - • Amór á hwmfli toraldra Binna í gær. þjálfar Stjörnuna KRISTINN Björnsson, knatt- spyrnumaöur úr Val, hofur verið ráöinn þjálfari 3. deildarliös Stjörnunar úr Garðabœ fyrir næsta keppnistímabil. Kristinn mun leika meö Stjörn- unni jafnframt því aö þjálfa liöiö. Þaö er mikill fengur fyrir Garö- bæinga aö fá Kristinn í sínar raöir og jafnframt mikill missir fyrir Vals- menn. Hann lék meö meistaraflokki Valsísumar. Mikill hugur er í Garöbæingum og binda þeir miklar vonir viö komu Kristins og ætla sér aö komast upp í 2. deild aö ári. í Garöabæ er nú kominn nýr upphitaöur grasvöilur. íslandsmeistarar Vals hafa nú misst framlínu sína frá síöasta sumri. Guömundur Þorbjörnsson leikur í Sviss, Heimir Karlsson mun þjálfa og leika meö ÍR næsta keppn- istímabil og nú er þriöji sóknarmaö- urinn búinn aö yfirgefa Hlíöarenda. Ingi Björn Albertsson, sem þjálf- aöi FH á síöasta keppnistímabili, var oröaöur viö Val, en nú hefur hann endurráöiö sig sem þjáifari FH og verður Höröur Hilmarsson honum til aöstoöar, en hann aö- stoöaði lan Ross, þjálfara Vals, síöastasumar. Skotar sigruöu ÍSLENSKA unglingalandsliöiö í knattspyrnu, skipaö leikmönnum 18 ára og yngri, tapaöi fyrir jafn- öldrum sínum í Skotlandi, 2-0, í Evrópukeppni unglingalandsliöa { knattspyrnu í Glasgow í gær- kvöldi. Liöiö lék við Ira á mánu- dagakvöld og tapaöi þá einnig meö tveimur mörkum gegn engu. Liðiö kemur heim í dag. Leiðrétting ÞAU leéöu mistök uröu í biaöinu í gær er viö sögöum frá landsliðe- hópnum í handknatttoik, aö þrjú nöfn fétlu niöur. Þaö voni nöfn Þorbergs Aöalsteinasonar, Geirs Sveinssonar og Egiis Jóhannssonar. Beöist er vetviröingará þessum mistökum. ÞAÐ er ekki alltaf dans á rósum hjá atvinnumönnum í knatt- spyrnu. Það hefur Arnór Guöjohn- sen, landsliösmaður, fengið að reyna. Arnór hefur veriö mjög óheppinn, þar sem hann hefur átt viö meiðsli aö stríöa um alllangt skeið. Hann er atvinnumaöur í knattspyrnu og hefur veriö þaö í sjö ár, hann er nú á samning hjá belgíska liöinu Anderlecht. 17 ára gamall geröist Arnór atvinnumaö- ur í knattspyrnu hjá Lokeren í Belgíu og var hjá félaginu í 5 ár, áður en hann skipti yfir í And- erlecht, sem hefur veriö eitt besta fólagslið Evrópu á undanförnum árum. Arnór hefur lítiö sem ekkert getaö leikið meö Anderlecht vegna meiðsla. Hann er nú stadd- ur hér á landi eftir aö hann hefur veriö skorinn upp viö hnémeiösl- um í annaö sinn. Blaöamaöur Morgunblaösins fór og heimsótti Arnór á heimili foreldra hans, til aö forvitnast um hvernig hann heföi þaö. „Þaö er mjög svekkjandi aö lenda í svona meiöslum. Þetta er eins leiöinlegt og þaö er skemmti- legt þegar vel gengur á knatt- spyrnuvellinum. Maöur veröur bara aö bita á jaxlinn og vona þaö besta og vera bjartsýnn á aö maður komist yfir þessi þrálátu meiösli,“ sagðiArnórGuðjohnsen. Lítiö leikið með Anderlecht Síöustu þrjú ár hefur Arnór meira og minna veriö meiddur, eða frá því hann kom til Anderlecht 1983. Hann lék fyrstu sex leikina meö liöinu, síöan lék hann landsleik hér heima viö ira og varö fyrir þvi óhappi aö slíta vööva í lærafestingu — átti í þeim meiöslum fram í febrú- ar 1984. Náöi þó ekki fullum styrk. Hann kom inná sem varamaður í nokkrum leikjum Anderlecht í lok síöasta keppnistímabils. Arnór spilaöi fyrstu fjóra leikina í byrjun þessa keppnistímabilsins og haföi hann þa'náö sér aö fullu af lærameiöslunum. Þá varö hann fyrir því að slíta vööva í vinstra hné,-var skorinn upp og haföi aldrei náö sér vel á strik, fann alltaf til ef hann reyndi á fótinn Haföi miklar kvalir Hann lék þó meö landsliöinu gegn Spánverjum í september og hélt aö þetta væri aö lagast. „Þetta var allt í lagi í fyrri hálfleik, en er líöa tók á var ég farinn aö finna til mikilla eymsla í fætinum. Eftir leikinn haföi ég miklar kvalir. Ég leitaöi lækna bæöi í Vestur-Þýskalandi og Hol- landi, en án árangurs. Þaö var því úr aö ég yröi skorinn aftur," sagöi Arnór. Hann var skorinn upp í síöustu viku og veröur ígipsi í hálfan mánuö og fer þá i endurhæfingu. — Er ekki tekjumissir fyrir þig aö geta ekki leikiö? „Nei þaö er ekki svo mikiö, ég held mínum föstu launum hjá félag- inu. Aö vísu missir maöur bónus- inn.“ Landsliðsmenn í hverri stöðu — Anderlecht var meiatari í Belg- íu í fyrra, telur þú að liöiö nái aö verja titilinn á þessu keppnis- tímabili? „Já liöið er geysilega sterkt og ætti aö endurheimta titilinn. I liöinu eru landsliösmenn i hverri stööu og mikil barátta um hverja stöðu. Hjá liðinu eru nú 15 landsliösmenn. Við vorum aö vísu slegnir út úr bikar- keppninni fyrir stuttu, en iiöiö hefur alla buröi til aö veröa belgískur meistari.“ Liöiö er nú i þriöja sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir FC Burges. Knapp góður þjálfari — Nú hefur mikið veriö rætt um Tony Knapp, sem landsliösþjálf- ara og hann jafnvel veriö gagn- rýndur fyrir val á landsliösmönn- um. Hvaö finnst þér um Tony Knapp, sem þjálfara? „Knapp er góöur þjálfari og nær góöum tökum á leikmönnum. Hann les leikinn vel og veit vei hvaö hann er aö gera. Hann nýtur viröingar hjá leikmönnum. Þaö eru skiptar skoöanir meö val á landsliöi hverju sinni og veröur alltaf. — Nú hefur þú veriö atvinnumaö- ur í knatspyrnu í sjö ár. Hver hefur veriö skemmtilegasti tíminn hjá þér? „Þaö var mjög skemmtilegur tími hjá Lokeren er við lékum í Evrópu- keppninni og náöum þá langt og mér gekk vel. Þaö er alltaf skemmti- legt aö leika meö landsliöinu og eru mér þá leikirnir viö Wales, Tékka og Englendinga minnisstæöastir. Þaö hefur veriö góöur andi í hópn- um og alltaf gaman aö hittast.“ Brasilíumenn sigurstranglegir — Að lokum, viltu spá um hverjir veröa heimsmeistarar 1 knatt- spymu á næsta ári? „Þaö getur veriö erfitt aö spá um þaö. Brasilíumenn eru alltaf sigur- stranglegir og ieika létta og skemmtilega knattspyrnu. Eng- lendingar gætu blandaö sér í bar- áttuna og hafa þeir veriö aö vinna mikiö á. Þeir eiga mikiö af góöum leikmönnum, þaö er svo bara spurningin hvernig þeir ná saman.“ FC Bruges á toppnum FC BRUGES er nú efst í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu. And- erlecht er í þriöja sæti fjórum stigum á eftir. 14. umferö fór fram á miövikudagskvöld. Staðanernúþannig: FCBruges t4 10 2 2 34—12 22 Ghent 14 8 3 3 22—10 19 Anderlecht 13 7 4 2 27—14 18 Beerschot 14 6 5 3 23—20 17 FC Liege 14 7 2 5 22—16 16 Beveren 14 7 2 5 25—24 16 Waregem 14 6 4 4 25—10 16 • Arnór Guöjohnsen, knattspyrnumaóur, sem leikur meö belgíska liðinu Anderlecht, hefur átt viö þrálát meiösli aö stríöa um nokkurt skeió. Hann er hér í leik meö belgíska lióinu Lokeren þar sem hann hóf sinn feril sem atvinnumaóur í knattspyrnu fyrir 7 árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.