Morgunblaðið - 05.12.1985, Qupperneq 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 19&
*
áster...
... að vera alltaf
jákvœð.
TM Reg. U.S. Pat. Off.—all ríghts reserved
* >978 Los Angetea Times Syndicate
>
i
bi
r'--
t 1
f *
r
HÖGNI HREKKVISI
Jólalög
útvarpsins
Kæri Velvakandi.
Þar sem ég sit hér við gluggann
og horfi út á snjóbreiðuna, leiði ég
hugann að því senn er stutt til jóla.
Mig langar til að þakka útvarp-
inu fyrir margt gott. Ég hlusta
mikið á útvarp og það gerir heimil-
isstörfin skemmtilegri, ef góð
dagskrá er í útvarpinu.
Nú fara jólaannirnar að hefjast,
bakstur og fleira og því bíð ég eftir
að heyra jólalögin leikin í útvarp-
inu, sem gjarnan mættu fara að
heyrast í byrjun desember. íslend-
ingar eru farnir að hefja jólaund-
irbúninginn fyrr en áður tíðkaðist,
og þá skapa jólalögin réttu
stemmninguna. Vissulega gæti ég
sett jólaplötu á fóninn en það er
ekki það sama og að heyra þá frá
gamla Gufunesradíóinu.
Með bestu kveðjum til útvarps-
ins. H.H.
Velvakandi hvetur lesendur til aö
skrifa þættinum um hvaöeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 11.30, mánu-
daga
til föstudaga, ef þeir koma því ekki
við aö skrifa. Meöal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til aö
beina þvf til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálk-
unum.
1500 trillukarlar
fá 1 % ársafla
Ef trillusjómenn hefðu sætt sig
við aflaúthlutun sjávarútvegsráð-
herra hefði þeim hlotnast 1% af
ársafla landsmanna í ár, sem talið
er að verði í heild um eða yfir eina
milljón tonna. En sem kunnugt er
varð afli trillumanna meiri, þann-
ig að í þeirra hlut komu um 2%
af heildaraflamagni.
Um 6.000 menn eru skráðir fiski-
menn í landinu og þar af eru um
1.500 svonefndir trillukarlar, eða
25%. Ef hinn mannlegi þáttur
hefðu gilt um úthlutun veiðileyfa
hefði a.m.k. 75.000 tonn átt að
koma í hlut trillumanna í stað
þeirra ellefu þúsunda sem úthlutað
var til þeirra af þorski og ýsu.
Vegna árgæsku varð aflinn yfir
20 þúsund tonn og flokkast eftir
það sem lögbrot af ríkisvaldinu.
Þá eru stærri veiðiskipin ein um
allar veiðar, karfa, grálúðu, ufsa,
og annarra fisktegunda og ekki
má gleyma síld og allri loðnunni.
Alls verður aflinn um eða yfir
milljón tonn, þar af fá trillukarlar
2% en hinir 98% aflamagns af
veiddum fiski á árinu.
Það er ekki að ástæðulausu að
smábátasjómenn eru óánægðir
með sinn hlut og óviðeigandi er
að kalla þá frekjuhundahóp.
Ólafur Á. Kristjánsson
Víkverji skrifar
Breytingarnar, sem gerðar
hafa verið á neðsta hluta
Laugavegar eru ákaflega vel
heppnaðar. Frágangur götunnar
er skemmtilegur og til þess fallinn
að laða að fólk og þar með við-
skiptavini fyrir þær verzlanir, sem
við götuna standa. Enda má heyra
það á kaupmönnum við þennan
hluta Laugavegar og raunar ofar
að þeir telja að vel hafi til tekizt.
Það er beinlínis skemmtilegt að
ganga um nýja Laugaveginn á
laugardögum, þegar verzlanir eru
opnar þar til síðdegis og mikið er
af fólki á ferli. Víkverji hvetur fólk
eindregið til þess að leggja leið
sína um Laugaveginn á þessum
tíma dags og kynnast af eigin raun
því fjölbreytilega mannlífi, sem
þar má finna.
Þessar skemmtilegu breytingar
á neðsta hluta Laugavegar eiga
áreiðanlega eftir að ýta undir óskir
um að áfram verði haldið með
framkvæmdir við Laugaveginn.
Kannski er ekki fráleitt að láta sér
detta í hug, að eftir nokkur ár
verði komin lífleg göngugata frá
Lækjartorgi inn á Hlemm, sem
fljótt mundi fá á sig svipað yfir-
bragð og Strikið í Kaupmanna-
höfn, sem liggur milli Ráðhúss-
torgsins og Kóngsins nýja torgs.
Reykjavík er að verða skemmtileg
borg og borgarlífið er nú þegar
orðið ótrúlega fjölbreytt. Nýi
Laugavegurinn á sinn þátt í því.
XXX
Afgreiðslutími verzlana á höf-
uðborgarsvæðinu er að breyt-
ast neytendum til hagsbóta. Nú
eru t.d. ýmsar helztu matvöru-
verzlanir opnar þar til kl. 16.00 á
laugardögum. Af þessu er mikið
hagræði fyrir fólk um leið og það
skapár meiri ró á vinnustöðum.
Arum saman hafa verzlanir verið
opnar á sama tíma og vinnutími
flestra launþega er. Þetta hefur
leitt til þess að annað hvort er fólk
að verzla á síðustu stundu og þá
mikil þröng á þingi eða hitt, sem
er öllu verra, að fólk er að hverfa
af vinnustað til þess að sinna
þessum einkaerindum sínum. Með
því að hafa matvöruverzlanir og
aðrar verzlanir opnar þar til síð-
degis á laugardögum verður gjör-
breyting á þessu og ekki ólíklegt,
að laugardagar verði vinsælir
verzlunardagar almennings. í öðr-
um löndum þykir sjálfsagt, að
verzlanir séu opnar á laugardögum
en í þess stað lokaðar t.d. á mánu-
dögum eða fyrri hluta mánudaga.
Það er svo augljóst, að þessi af-
greiðslutími er til mikils hagræðis
fyrir hinn almenna viðskiptavin,
sem áreiðanlega beinir viðskiptum
sínum til þeirra verzlana, sem
veita þessa þjónustu.í þessum
efnum sem öðrum hefur sam-
keppnin haft jákvæð áhrif fyrir
neytendur. Samtökin, sem nýlega
hafa verið stofnuð til þess að efla
gamla miðbæinn, m.a. sem verzl-
unarsvæði, hafa einmitt hvatt fé-
lagsmenn sína til þess að hafa
opið á laugardögum og veita með
því stórmörkuðunum verðuga
samkeppni. Það fer ekkert á milli
mála, að þessi afgreiðslutími verzl-
ana í gamla miðbænum ásamt nýja
Laugaveginum og veitinga- og
kaffihúsum í miðborginni laðar
fólk að.
XXX
Annars er það umhugsunar-
efni, hvað mikið er um það að
fólk fer af vinnustað í vinnutíma
til þess að sinna einkaerindum.
Þetta er landlægt og þykir sjálf-
sagt en veldur því auðvitað að
vinnudagurinn verður ódrjúgur og
afköstin ekki eins mikil og eðlilegt
er. Þetta er ósiður, sem þjóðin
þarf að venja sig af og á áreiðan-
lega sinn þátt í því, hvað okkur
gengur illa að halda til jafns við
aðrar þjóðir í lífskjörum. Hjá ná-
grannaþjóðum okkar ríkir mun
meiri vinnuagi en hér. Vinnudag-
urinn er tvímælalaust styttri en
fólk er á vinnustað meðan á vinnu-
tíma stendur. Vinnudagurinn hér
er lengri en það er alltof mikið um
það að fólk hverfi af vinnustað í
miðjum vinnutíma í öðrum erinda-
gjörðum. Verkalýðssamtök og
vinnuveitendur þurfa að taka
höndum saman og breyta þeim
hugsunarháetti, sem veldur þesu
háttalagi fólks. Auðvitað gerir
enginn athugasemdir við það að
starfsmaður fari til læknis eða
sinni öðrum brýnum persónuleg-
um erindum í vinnutíma, en að
öðru leyti á það að vera regla, að
fólk hverfi ekki úr vinnu meðan á
vinnutíma stendur. Tækist almenn
samstaða um slíkt mundi það fljótt
skila sér í aukinni framleiðni og
bættum lífskjörum þjóðarinnar.
XXX
Islendingur í háu embætti, sem
starfs síns vegna hefur sótt þing
Sameinuðu þjóðanna nokkur und-
anfarin ár, hafði orð á því við
Víkverja á dögunum, að mikil
breyting hefði orðið á drykkju-
venjum fólks á þeim vettvangi á
þeim árum, sem hann hefði komið
þar við sögu. í upphafi þess tíma-
bils, hefðu sterkir drykkir verið
áberandi í síðdegisboðum en nú
sæist lítið af þeim en þeim mun
meira ef léttum vínum og óáfeng-
um drykkjum. Þessi frásögn stað-
festir þá þróun, sem er að verða í
hinum vestræna heimi að mjög er
að draga úr drykkju og léttari vín
og óáfengir drykkir ryðja hinum
sterkari til hliðar og jafnvel áfeng-
um bjór. Hafa menn orðið varir
við sambærilega þróun hér?