Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 41
41 varpi eru svo mikils metnar í lög- um, að með 176. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er sér- ákvæði um refsinæmi þess verkn- aðar að trufla þessa starfsemi með ólögmætum hætti. Engin ástæða er til að ætla, að löggjafinn hefði ákveðið einkarétt til útvarps rík- inu til handa, nema aðeins í órjúf- anlegum tengslum við þá megin- hugsun útvarpslaganna, að út- varpað væri. Einkaréttinum fylgir því skylda til útvarps. Sé henni ekki sinnt fellur einkarétturinn vitaskuld niður a.m.k. meðan svo stendur. Þegar ákærðu sendu út útvarps- efni dagana 5. og 6. október höfðu allar útsendingar íslenzka ríkisins á útvarpsefni verið felldar niður. Sýknukrafa þeirra byggist á því, að þar með hafi einkarétturinn skv. 1. mgr. 2. gr. laganna verið fallinn niður. Vegna lögskýringarinnar að þessu leyti er nauðsynlegt að átta sig á gegn hvaða hagsmunum sá maður telst brjóta, sem útvarpar á tíma þegar ríkið hefur fellt niður sitt útvarp. Ekki brýtur hann gegn neinum hagsmunum ríkisins af útsendingum sínum, þar sem þeir eru engir, meðan ekki er sent út. Alveg var af hálfu ákærðu ljóst að útsendingar þeirra myndu falla niður, þegar ríkið byrjaði aftur að útvarpa. Reyndar hættu þeir strax eftir að hinar takmörkuðu frét- taútsendingar ríkisútvarpsins 6. október hófust á ný og það jafnvel þótt með þeim útsendingum væri í reynd verið að veita öðrum aðil- anum í harðri kjaradeilu einkarétt til útvarps (sem sá aðili notaði sér á mjög ósvífinn hátt). Það var því ekki brotið gegn neinum „útsend- ingarhagsmunum" íslenzka ríkis- ins. Og ekki var brotið gegn nein- um réttindum eða hagsmunum almennings á ísafirði. Þeir sem vildu hlusta gátu gert það, hinir þurftu þéss ekki. Hverjir voru þá hagsmunirnir, sem brotið var gegn? Svarið við því er augljóst. Einu hagsmunirnir voru þeir sem starfsmenn ríkisútvarpsins (og aðrir starfsmenn ríkisins) töldu sig hafa af því að stöðva alla fjöl- miðlun í landinu til að knýja á um bætt kjör sín. Og þá blasir næsta spurning við: Eru það þessir hags- munir, sem verið er að vernda með ákvæði 2. gr. útvarpslaga? Auðvit- að ekki. Þetta sýnir mjög vel hina lagalegu stöðu. Þeir hagsmunir, sem einkaréttarákvæðinu er ætlað að vernda, þ.e. hagsmunir ríkisins af því að ástunda útsendingar sínar í friði fyrir samkeppni frá öðrum, voru ekki til staðar. Þar með var einkaréttarákvæðið orðið óvirkt. 1.2. Þegar ákærðu hófu útsend- ' ingar sínar var ríkjandi neyðar- ástand í landinu á sviði fjölmiðlun- ar frétta og annars efnis. Engin blöð komu út og ríkisfjölmiðlarnir, hljóðvarp og sjónvarp höfðu stöðv- ast. Þetta leiddi til slíkrar einangr- unar borgaranna í landinu, að það fær engan veginn staðizt í þjóð- félagi nútímans, þar sem frétta- MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 flutningur og opinber umfjöllun um hvers kyns málefni er eitt af megineinkennum. Slíkri einangr- un fylgir bæði mikið öryggisleysi fyrir borgara, auk þess sem með nokkrum hætti má segja, að hið opna, lýðræðislega stjórnkerfi sé tekið úr sambandi. Fólkið í landinu hefur verið svipt möguleikanum til að fylgjast með gerðum stjórn- málamanna og valdsmanna og hefur þar með í reynd verið svipt réttinum til löglegra afskipta af gerðum þeirra t.d. með fundar- höldum, félagssamtökum og opin- berri tjáningu svo eitthvað sé nefnt. í reynd hafa því menn verið I sviptir öllum raunhæfum mögu- | leikum til að neyta réttinda til afskipta, sem þeim eru tryggð með beinum ákvæðum í stjórnar- skránni. Við þessar aðstæður, sem upp voru komnar, þegar ákærðu sendu út útvarpsefni dagana 5. og 6. október, verður að telja, að við háttsemi þeirra hafi átt 13. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/ 1940. felldu um útsendingar þess, þó viðurkenndur sé neyðarréttur í tilviki, þegar engar útsendingar eiga sér stað. Um neyðarréttasjónarmiðin vil ég svo að lokum benda á að for- svarsmenn ríkisútvarpsins og kjaradeilunefndin komust að þeirri niðurstöðu að hér væri a.m.k. slík vá fyrir dyrum, ef ekk- ert væri útvarpað, að nauðsyn bæri til að útvarpa tveimur frétt- atímum á dag hjá ríkisútvarpinu. Var þetta ákveðið á grundvelli ákvæðis 26. gr. laga nr. 29/1976 og þar með fellt undir nauðsynlegá öryggisvörslu og heilsugæslu. Minni ég á að ákærðu hættu sínum útsendingum strax og þessar tak- mörkuðu útsendingar ríkisút- varpsins hófust á ný. 1.3. Við skýringu á 2. gr. útvarp- slaganna og beitingu hennar á þau atvik, sem hér eru til meðferðar verður að hafa í huga að lagafyrir- mæli um einkarétt íslenzka ríkis- ins til útvarps voru á þeim tíma, sem hér um ræðir áreiðanlega komin mjög í andstöðu við ríkjandi um er einkaréttur ríkisins til út- varps felldur niður sbr. 2. gr. lag- anna. Þetta sýnir betur en nokkuð annað hversu einkaréttarákvæði útvarpslaga voru komin úr tengsl- um við réttarvitund þjóðarinnar þegar þeir atburðir urðu, sem ákært er fyrir. c) í mörg undanfarin ár hafa verið reknar hljóðvarps- og sjón- varpsstöðvar víða um land. Skulu hér nefndar stöðvar sem rekið hafa kerfi til útsendinga á sjón- varpsefni t.d. á Akranesi, Borgar- nesi, Ólafsfirði, og Ólafsvík auk fjölmargra staða í Reykjavík. Út- varpsstöð var um tíma rekin á Skagaströnd, svonefnt „Kántrýút- yarp“ og í mörgum skólum hafa um árabil verið reknar útvarps- stöðvar, t.d. Samvinnuskólanum að Bifröst í Borgarfirði. Fyrirtæki í Reykjavík hafa lengi starfað við að útbúa fréttaefni á spólum fyrir þessi sjónvarpsútsendingarkerfi. Sú starfsemi sem hér er lýst hefur ekkert farið leynt. Frá henni hefur mörgum sinnum verið skýrt í öðrum („löglegum") fjölmiðlum, Tíu Ísfírðingar dæmdir í sektir fyrir óiöglegan útvarpsrekstur í BSRB-verkfaiiinu: Ekki fallist á að neyðarréttur hafi réttlætt útvarpssendingar TÍU MRNN á Wlrái í f*r d**dir í féæktir fyrir a* kafa atarírækt filltlrrTi itTirprlft ^r ( bnun (tro daga ( verkfalli BSRB ( fyrrakauaL f\mm Mrra, aem mjwdmto „útrarpará*“ atMrarimmar, roni dmmdir í 5.000 kréaa aekt krer mm afif ea ffaaiu aérir. aem rora atarfanmaa atMrariaaar, f 3.000 króaa ækt krer. TU rara komi rarékaki í ffanm of krjá dafa. Lfkleft ..........................-.............* ‘ “ ~i eiaa kinaa aakfellda klukkustund annan daginn, sem sent var út, aft sögn Úlfars Ágústs- sonar. Tlmenningarnir eru vift- riftnir fjölmiftlun á ísafirfti og nokkrir eru starfsmenn rafeinda- fyrirtaekisins Pólsins þar (bæ. var Jón Steinar Gunnlaugsson hri. Sex önnur mál vegna sömu «etl- uftu brota eru nú til meftferftar í dómskerfinu, þrjú i Reykjavfk, tvö á Akureyri og eitt á Siglufirfti. Ákærur i þeim málum, sem nú eru En það er deginum ljósara, að með starfsemi sinni leituðust ákærðu við að vernda lögmæta hagsmuni alls almennings á ísafirði (sbr. áður) fyrir yfirvof- andi hættu. Og svo sem áður er komið fram, var þetta gert, án þess að skertir væru neinir aðrir hagsmunir. En jafnvel þó ekki væri á það fallizt er þó engu að síður ljóst að hinir skertu hags- munir (íslenzka ríkið á eitt rétt á að útvarpa, þó ekkert sé útvarpað á þess vegum) eru miklum mun minni, heldur en hinir vernduðu hagsmunir (almenningur á ísafirði á rétt á að fá að ganga að fréttum og annarri umfjöllun um þjóð- félagsleg málefni). Um almenn skilyrði neyðarréttar sem refsi- leysisástæðu leyfi ég mér að vísa til rits Stephan Hurwitz: Den danske kriminalret, alm. del, 4. útg. Kh. 1969 bls. 194-206. Ég bendi sérstaklega á það sem höfundur fjallar um á bls. 202, og varðar tillitið til almennrar löghlýðni, því ætla má að sjónarmið sem tengjast henni komi til athugunar i þessu máli. Segir höfundur þar m.a., að lögbrotið þurfi að vera þess eðlis, að ekki sé stofnað í hættu hinu almenna markmiði laganna, þó viðurkenndur sé neyðarréttur. Hér háttar einmitt svo til, að ekki er ástæða til að ætla, að menn fari almennt að líta framhjá einkarétti ríkisútvarpsins, þegar allt er með réttarviðhorf í landinu. Til þess benda ýmis atriði: a) í stjórnarskrárfrumvarpi, sem flutt var á Alþingi 1982-1983 (sjá Alþingistíðindi 1982-1983 þingskjöl, bls. 2721-2753) af þáver- andi forsætisráðherra Gunnari Thoroddsen var lögð til gagnger breyting á 72. gr. stjórnarskrár- innar um tjáningarfrelsi, með því að ekki var ráðgert að tjáningar- frelsi skyldi vera bundið við prent svo sem nú er, skv. texta 72. gr. Hljóðaði 68. gr. frv. svo: „Virða ber skoðanafrelsi manna. Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar. Þó verður hann að ábyrgjast þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða." Þetta frumvarp fól í sér niðurstöðu stjórnar- skrárnefnar, sem fulltrúar allra stjórnmálaflokka áttu aðild að. Var ekki neinn ágreiningur í nefndinni um þetta ákvæði. Enginn vafi er á að í þessu frum- varpi felst skipan sem hefði í för með sér að ekki mætti lögákveða einkarétt ríkisins á útvarpi. Þar með væru settar tálmanir á tján- ingarfrelsi sem ekki fengjust staðizt texta frumvarpsins. Fyrir liggur því hér viljayfirlýsing um þetta, sem allir stjórnmálaflokkar í iandinu eiga aðilda að. b) Nú hafa verið sett ný út- varpslög nr. 68/1985, sem taka gildi 1. janúar 1986. í þessum lög- blöðum og ríkisútvarpi. Ég leyfi mér því að fjalla um þetta hér sem alkunnar staðreyndir (notorisk facta), sem ekki þarf að sanna sér- staklega í máli þessu. Sendi ég með vörn þesari til framlagningar í málinu blaðaúrklippur úr Morg- unblaðinu frá því fyrir fáum dög- um, þar sem skýrt er frá kapal- kerfi í Ólafsvík, sem alþingismenn hagnýta sér til að ná þar til al- mennings. Er þetta lagt fram í dæmaskyni. Allt þetta sýnir vel hvert viðhorf almennings í lar.dinu er orðið á síðari árum gagnvart einkarétt- arákvæðum í útvarpslögum. 1.4. Ég hlýt að benda á, að ákær- an í þessu máli er sprottin af póli- tískum hvötum. Svo er einnig um ákærur í nokkrum öðrum málum, sem nú eru rekin fyrir íslenzkum dómstólum gegn mönnum, sem hófu útsendingar útvarpsefnis, þegar ríkið hætti því I október 1984. Það liggur nefnilega fyrir, að aðeins hefur verið ákært í mál- um, þar sem útvarp hófst gagngert vegna stöðvunar ríkisútvarpsins. Ekki hefur verið ákært í málum fjölmargra annarra útvarpsstöðva í landinu sem störfuðu fyrir októ- ber 1984 og hafa einnig haldið áfram starfsemi síðan með blóma. Þetta er þeim mun undarlegra, þegar þess er gætt, að þessar stöðvar útvarpa ekki á grundvelli neinna sérstakra sjónarmiða um réttlætingu starfsemi sinnar svo sem var um stöðvarnar í október. Þessar stöðvar byggja ekkert á því að einkaréttur ríkisins sé niður fallinn, þar sem ekki sé sent út, né höfða þær til neyðarréttar til réttlætingar starfsemi sinni. Þær einfaldlega brjóta gegn einkarétt- inum viðvarandi ogótímabundið. En starfsemi þessara útvarps- stöðva er ekki stöðvuð með lög- regluvaldi. Og engar ákærur eru gefnar út í tilefni þeirra. Þær starfa áfram í blóma og átölulaust af ríkissaksóknara og lögregluyfir- völdum. Hvers vegna? Hvaða ástæður liggja til þess að lögregla og ákæruvald fer af stað með of- forsi gegn októberstöðvunum, sem eiga sér augljósar lagalegar rétt- lætingar en ekki gegn hinum sem engar slíkar réttlætingar eiga? Ástæðan er pólitízk. Hún er sú, að opinberir starfsmenn í verkfalli hrópuðu á lögregluaðgerðir gegn októberstöðvunum. Þeir vitdu fá að stöðva allt útvarp í landinu til að knýja fram kjarabætur sér til handa. Ög undan þessu var látið. Lögregla og ákæruvald virðast hafa kynnt sér sérstaklega hvaða stöðvar í landinu voru reknar í óþökk BSRB og ráðizt gegn þeim en sleppt hinum, sem opinberum starfsmönnum var sama um. Meðferð lögreglu- og ákæru- valds er vandasöm. Þar ber aðeins að fara eftir lögum, en ekki póli- tízkum hagsmunaþrýstingi. Allir eiga að vera jafnir fyrir lögunum. Svo er ekki ef sakfellt verður í þessu máli. Sé það gert hefur dóm- stóllinn lagt blessun sína yfir þann hátt, að refsingum verði því aðeins beitt í tilteknu falli, að nógu há- værar pólitízkar kröfur séu uppi um það. Yrði það niðurstaðan, væri það meira í takt við aðferðir í alræðisríkjum, þar sem refsing ákveðst af stjórnmálaástæðum, heldur en aðferðum í réttarríkjum, þar sem refsingar ákveðast af hlutlausri almennri lagafram- kvæmd. 2. Um brot gegn fjarskiptalögum. Allar röksemdirnar í 1. lið eiga við um sýknukröfuna gegn þessum ákærulið, nema að sjálfsögðu rök- semdin í lið 1.1. um að einkaréttur ríkisins til útvarps falli niður ef ekki er útvarpað. Einkum er hér vísað til sjónarmiðanna um neyð- arréttinn. Þessu til viðbótar er nauðsynlegt að benda á, að ákærðu höfðu ekki nein tök á að sækja um ráðherraleyfi til fjarskipta skv. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 73/1984, þar sem öll póstþjónusta lá niðri í verkfallinu. Er væntanlega ljóst, að verði neyðarréttur talinn eiga við um fyrri ákæruliðinn, verður vart sakfellt fyrir þennan lið á þeim grundvelli, að sækja hefði átt um leyfi til fjarskipta til að mega „neyta neyðarréttarins". Höfundur er hæstaréttarlögmaður \ fleira „Vift Islendingar stönd- um í þeirri trú, aö við séum velvakandi um menningarerfðir okkar og annt til dæmis um minningu okkar fremstu andans leið- toga. Þó er það nú svo, að það var dönsk kona sem setti upp skjöld á húsið þar sem Jónas Hallgrímsson fótbrotn- aði...“ Kopp að nafni, hengdi fram skilti um það, að í verslun hans þyrftu íslendingar ekki að vænta þess að fá afgreiðslu. Sá góði Koppur er reyndar kominn á hausinn núna, Sveinn Einarsson eða að minnsta kosti kominn á annan stað. Nú, hér heima setjum við auðvitað ekki skilti á gömul sögufræg hús. Við rífum þau bara og búum til bílastæði. Ég er hér ekki að fara fram á það, að öllum tónskáldum landsins verði umsvifalaust reistir minnis- varðar, þó að ég nú reyndar viður- kenni, að svona söguleg áminning, eins og ég minntist á hér að fram- an, gerir, þó kannski í litlu sé, bæjarbrag og umhverfi meira lif- andi; mikið finnst mér til dæmis Seyðisfjarðarkaupstaður stækka við minnsvarða Inga T. Lárusson- ar. En erfitt held ég sé fyrir þann grúa ferðamanna, sem þarna fer um árlega, innlendra og erlendra, að glöggva sig á þeirri merkilegu sögu athafnalífs, sem hér átti sér stað fyrir og um aldamótin og lesa má úr byggingum þess tíma, sem enn standa, eða þá menningarsögu, sem lesa má úr merkri blaðaútgáfu þessara ára þar eystra. En víkjum nú aftur að tónskáld- unum. Mér finnst hreinlega sagt ankannalegt og illa við hæfi, þegar sungnir eru sálmar, að höfunda laganna sé að engu getið, líkt og þessi lög hafi verið alsköpuð frá því í árdögum og bar beðið þess að sálmaskáldin gripu í skottin á þeim, þannig að á sálminn væri hægt að líma merkimiðann: Með- sínu-lagi. Ég var annars nýlega að blaða í Nýju söngvasafni handa skólum og heimilum, sem út kom 1949 og þar sem safnað er saman þeim lögum, sem um þær mundir þóttu alþýðleg og líkleg til þess að fólk færi að raula sér, ef það yndi sér sæmilega við vinnu sína eða þegar það kæmi saman í rútubíl. Tilefnið var það, að spurningakeppni leiðir iðulega í ljós, að við erum með öllu grunlaus um, hverjir samið hafa ljóð og lag við til dæmis algengustu ættjarðarkvæði, sem við þykjumst þó hafa kunnað frá blautu barnsbeini. Það leiddi sitt- hvað í ljós, að blaða í þessari bók. Hversu margir eru til dæmis kunnugur því, að Ef væri ég söngv- ari og Út um græna grundu eru eftir Weber (ég vona að það sé sá sami), að A,b,c,d, er eftir Rameau, Hann Tumi fer á fætur eftir Mozart og Vorið góða grænt og hlýtt eftir Mendelsohn, svo eitt- hvað sé nefnt? En lögin í sálma- bókinni eru eftir engan. Og svo vel á minnst. Hvaða skáld eru það, sem gegna heitinu M. Joch, V. Briem, H. Hálfd., P. Jóns- son, H. Pétursson, B. Halld. o.s.frv. Eru þetta einhverjir útlendingar, danskir kannski? Mér var barni kennt það, að á Islandi gilti ekkert minna en fullt nafn og að þar væri stórum mikilvægara skírnar- nafn en sú einkunn, sem felst í því að kenna sig til föður eða móður. Ritstjórar þjóðskrár, símaskrár og annarra merkra skráa, hafa hing- að til einnig verið á þessari skoðun. Það hafa í rauninni ekki verið nema einstaka verslunarmenn, sem hafa tekið upp þennan útlenda sið í nöfnun fyrirtækja sinna og sjálfsagt þótt það gefa firmaheit- inu heimsborgaralegrayfirbragð. Þó að um smekk stoði sjálfsagt ekki að deila, er mér ómögulegt að víkja burt þeirri hugsun, að íslenskri sálmabók beri að haga sér í samræmi við íslenska mál- venju og íslenska máikennd. Og þó að skáldskapur hafi lengur verið í heiðri hafður hérlendis en tónlist, er samt ekki tími til kom- inn að draga fram nöfn verka manna í þeim víngarði úr gleymsku. Tónsmíðir landsmanna eiga ekki að þurfa að vera nein feimnismál lengur. Höfundur er leikstjóri og rithöf- undur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.