Morgunblaðið - 05.01.1986, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR1986
7
Símtöl við
Djúp heyrast
í útvarpinu
„ÞETTA er því miður rétt. Tækni-
deild Pósts og síma er kunnugt um
þetta, en unniö er aö því aö finna
búnað sem leysir málið,“ sagði Jó-
hann Iljálmarsson blaöafulltrúi
Pósts og síma, er hann var spurður
að því hverju það sætti að símtöl
sjálfvirka símans viö Djúp heyrðust
í útvarpinu.
Hann sagði að ekki væri um það
að ræða að samtöl heyrðust í út-
varpi nema menrj legðu sig sér-
staklega eftir þvi að hlera þau.
„Þetta gildir aðeins um einstaka
útvarpstæki og einungis er hægt
að hlusta á lítinn hluta þeirrar
símarásar sem er í notkun á hverju
svæði.“
Hættir Stálfélagið
við starfsemi sína?
Forsætisráð-
herra segir
ríkið ekki
geta hjálpað
Aðalfundi félagsins
frestað fram í janúar
en stjórnarformaður-
inn hefur sagt af sér
MIKIL óvissa ríkir nú um framhald
starfsemi Stálfélagsins hf. þar sem
ríkisstjórnin hefur tekið þá ákvörö-
un að ríkissjóður leggi ekki fram
hlutafé það sem lofað hafði verið,
fyrr en félaginu hefur tekist aö
safna tilskyldu hlutafé, og afla sér
bankafyrirgreiöslu, sem engar líkur
eru á að takist. Aöalfundi félagsins
sem halda átti þann 27. desember
var frestað fram í janúarmánuð,
vegna ónógrar þátttöku. Á þeim
fundi sagði Leifur ísaksson af sér
stjórnarformennsku, og mun Leifur
Ilannesson gegna stjórnarfor-
mennsku fram að aðalfundi.
„Við afgreiddum erindí Stálfé-
lagsins í ríkisstjórninni á þann veg
að okkur væri ekki fært að gera
neitt frekar fyrir félagið að svo
stöddu," sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra í
samtali við Morgunblaðið. Stein-
grímur sagði að Stálfélagið gæti
fengiö ríkisábyrgð fyrir láni frá
Norræna fjárfestingabankanum
og Framkvæmdasjóður hefði lofað
ákveðnu hlutafjárframlagi. Það
sem kæmi í veg fyrir að félagið
gæti fengið þessa fyrirgreiðslu nú
þegar væri það skilyrði að félagið
væri búið að safna tilteknu hlutafé
áður en framlag ríkisins kæmi til,
en það hefði ekki enn tekist. Jafn-
framt hefði félaginu ekki tekist
af afla sér bankaviðskipta.
Forsætisráðherra var spurður
álits á ummælum forsvarsmanna
félagsins, þess efnis að þátttaka
ríkisins í fyrirtækinu væri svo
skilyrt, að ekki væri hægt að
uppfylla skilyrðin nema til kæmi
þátttaka ríkisins: „Það má segja
að þátttakan sé ansi skilyrt, en
svona er þetta nú í þelm lögum sem
Alþingi samþykkti fyrir ríkis-
ábyrgðinni."
Forsætisráðherra var spurður
hvort nokkuð annað blasti við Stál-
félaginu en hætta rekstri, raunar
áður en hann nokkurn tíma var
hafinn: „Það getur vel verið. Vissu-
lega hefur þetta mál tekið allt of
langan tíma, og dregist úr hömlu,
til dæmis það að veita félaginu
ríkisábyrgöina. Það hefur valdið
Stálfélaginu miklum skaða, á því
er enginn vafi. Hvort það hefur
riðið þeim að fullu skal ég ekki
segjaum."
Við bjóðum flug frá
Keflavík til New York
og áfram til Dallas,
Los Angeles, New
Orleans, og aftur til
Keflavíkur fyrir aðeins..
Og þetta er aðeins dæmi. Ein leið af fjölmörgum. Þú gætir
t.d. bætt fjórum bandarískum borgum við þennan lista, og
aukakostnaðurinn yrði aðeins kr. 1.450 fyrir hvern áfangastað!
Þetta einstaka verð er dæmi um frábæran árangur stöðugrar
leitar okkar að hagstæðustu ferðamöguleikunum fyrir fólk á
leið til útlanda í einka- eða viðskiptaerindum.
Hjá Samvinnuferðum-Landsýn ersérþjálfað starfsfólk reiðubúið
að leiðbeina hverjum einasta viðskiptavini í gegnum vand-
rataðan fargjaldafrumskóginn. Þá þjónustu, sem e.t.v. getur
sparað þér þúsundir, færðu án nokkurs aukagjalds.
Góð sambönd okkar við útlenskar ferðaskrifstofur og flugfélög
gera okkur einnig kleift að bjóða margskonar sérferðir sern
annars stæðu ekki til boða. Að auki bókum við svo fyrir þig
hótelgistingu erlendis, bílaleigubíla, jafnvel aðgöngumiða í
leikhús og fleira - allt á augabragði.
Láttu okkur um að finna hagkvæmustu leiðina fyrir þig!
Miðaðerviðbókun 14dögumfyrirbrottför, aðferðin
standi í 7-60 daga og að hún hefjist fyrir 21. mars 1986.
1
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727