Morgunblaðið - 05.01.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR1986
29
cmn huwrsþoz hjá mmzíiaúmiuH
Fyrsta beina
áætlunarflugið
tí I Horlda r
Dvfll í St.Peterstaurg vlö Mexicúfttiann
Viö í Kanaríklúbbnum ætlum aö færa út kvíarnar á nýju ári og tökum
þátt í fyrsta beina áætlunarfluginu frá íslandi til Flórída 17. janúar nk.
Þetta einstaka tækifæri nýtum við okkur til að bjóða sérstakt
kynningarverð á lúxusdvöl í einni vinsælustu ferðamannaparadís
veraldar. Þessi fyrsta Flórídaferð Kanaríklúbbsins er áreiðanlega
farsælt hliðarspor - sannarlega efnileg byrjun á nýju ári!
Flórída
Við fljúgum beint frá Keflavík til Orlando, en þaðan er um 2 klst. akstur til St. Petersburg
á vesturströnd Flórídaskagans, við Mexíkóflóann. Á þessum árstíma er hitinn á Flórída
um 22-26°C og sjávarhiti er 22°C - einstaklega þægilegt loftslag.
Flórída - ævintýraland ferðamannsins
Óvíða í heiminum er að finna annan eins aragrúa stórbrotinna skemmtigarða, þar
sem fólk á öllum aldri nýtur ógleymanlegra stunda. Við nefnum heimsfræg dæmi:
Disney World - vinsælasti ferðamannastaður veraldar, Future World, World
Showcase, Sea World, Sircus World, Masterpeace Gardens, Wet ’n Wild - að
ógleymdum Everglades þjóðgarðinum.
Gistingin
Viö gistum á Sandpiper Resort Hotel, 150 herbergja Iúxushóteli alveg við ströndina.
í þessu frábæra hóteli eru fjölmargir veitingastaðir, inni- og útisundlaug, nuddpottar,
æfingasalur, íþróttavellir, leiktækjasalur og seglbrettasiglingar.við ströndina.
(5 m ínútna fjarlægð er keppnisgolfvöllur og sjálfsagt er að reyna stórfiskaveiði úti á
flóanum. Stúdíóíbúðir.
Hagstætt kynningarverð!
(tilefni af þessu fyrsta beina áætlunarflugi bjóðum við upp á sérlega hagstætt
kynningarverð á fyrstu ferðinni:
Kr. 39.500
(Innifalið: Flug: Keflavík - Orlando - New York - Keflavík, ferðir. til og frá flugvelli
erlendis, gisting í tvær vikur, íslensk fararstjórn.)
Flórída - lifandi dvalarstaður
Það er sama hvert litið er - fjölbreytnin er ótrúleg:
• Seglbrettasiglingar
• köfun
• sjóskíði
• seglbátar
• golf - 40 af bestu golfvöllum veraldar
• hundaveðhlaup
• kappakstur
• mótorhjólakappakstur
• verslun með allt milli himins og jarðar
• næturllf ( öllum myndum
• kvikmyndahús með þvl nýjasta og besta á hvíta tjaldinu
ÚRVAL ÚTSÝN Samvinnuferdir Landsýn FLUGLEIDIR
\