Morgunblaðið - 05.01.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR1986
37
Blásarar á námskeiöi, en þeir halda tónleika í MH á morgun. Mornunblaðiii/Jú!ius
Tónleikar sin-
fóníuhljómsveitar
æskunnar
Sinfóníuhljómsveit Æskunnar var
stofnuð fyrir u.þ.b. ári. Haldin hafa
veriö tvö hljósveitarnámskeiö og er
hiö þriöja áætlað í febrúar nk. undir
stjórn Paul Zukofskys.
Alltaf hafa talsvert fleiri blásar-
ar sótt um á hljómsveitarnám-
skeiðin en komist hafa að, og þess
vegna var ákveðið að halda sér-
stakt námskeið fyrir blásara ein-
göngu, og stendur það yfir nú undir
leiðsögn Bernards Wilkinson,
flautuleikara, Odds Björnssonar,
básúnuleikara, og Josephs Ogni-
bene, hornleikara. Yfir 30 blást-
urshljóðfæranemendur taka þátt í
námskeiðinu, sem hófst laugar-
daginn 28. desember sl. og lýkur
með tónleikum á morgun. Æft
hefur verið í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og í Hagaskólanum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
og á efnisskránni er tónlist fyrir
málmblásturshljóðfæri eftir Sus-
ato, Gabrieli og Grieg, tónlist fyrir
tréfblásturshljóðfæri eftir Mozart
og Sæverud, og fyrir blásarasveit
tónlist eftir Milhaud og Stravin-
sky. Stjórnendur eru Bernard
Wilkinson og Oddur Björnsson.
(Fréttatilkynning.)
Kambaröst viö nýja hafnargarðinn.
Stöðvarfjörður:
Nýr hafnargarður
tekinn í notkun
Stödvarfíröi, 29. desember.
21. DESEMBER sl. lagðist skip í
fyrsta sinn að nýja hafnargarðinum
á Stöðvarfiröi. I’að var togskipið
Kambaröst SU-200 sem var að koma
frá Bretlandi, en þar hafði skipið
selt afla fyrir gott verð.
Unnið var við nýja hafnargarð-
inn á þessu ári, m.a. rekið niður
stálþil, steyptur kantur og komið
fyrir raflýsingu og fríholtum undir
stjórn Aðalsteins Aðalsteinssonar
frá Hafnarmálaskrifstofunni.
Ennþá er eftir að steypa hluta af
kantinum svo og alla þekju hans.
Ennfremur er eftir að dýpka botn-
inn innan við kantinn svo að stærri
skip geti athafnað sig með fullu
öryggi þar. Steinar
Áramótaspilakvöld
Varðar verður í kvöld
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður Sjálfstæðisflokksins flytur ávarp
heldur aramótaspilakvöld sunnu- og Ómar Ragnarsson skemmtir.
daginn 5. januar í Súlnasal Hótels Glæsilegir vinningar eru í boöi,
Sögu. Husid opnað kl. 20:00. m.a. utanlandsferðir, bækur o.fl.
Þorsteinn Pálsson formaður
BALLETTSKOLI
EDDU
SCHEVING
Skúlatúni 4
Kennsla hefst mánudaginn 6. janúar. Allir aldurs-
hópar frá 5 ára. Innritun nýrra nemenda í síma
25620 kl. 16—18 daglega: Framhaldsnemendur
mæta á sömu tímum og áður. Afhending og end-
urnýjun skírteina sunnudaginn 5. janúar kl. 14—16.
ÚTSALA
Stórkostleg verðlækkun í báðum búðunum.
Kjólar — kápur — dragtir — jakkar — pils —
peysur — sloppar — náttkjólar og margt fleira. Nú
er tækifæriö.
Laugavegi 26 — sími 13300 — Glæsibæ — sími
31300.
lympí
ARAMOTA-
SPILAKVÖLD
VARÐAR
LandsmálafélagiÖ Vöröur heldur
áramótaspilakvöld sunnudaginn
i 5. janúar í Súlnasal Hótel Sögu.
Húsiö opnaö kl. 20.00.
Glæsilegirvinningar, þ. á m.
flugferö til Kaupmannahafnar,
bækur og matarkarfa.
Kortiö kostar aöeins 250 kr.
Þorsteinn Pálsson flytur ávarp.
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Spilakort afhent viö innganginn
• — mætiö tímanlega.w
Landsmálafelagið Vöröur.
v •
i