Morgunblaðið - 05.01.1986, Síða 40

Morgunblaðið - 05.01.1986, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR1986 . 4 \ m. t Eiginkona mín og móöir okkar, UNNUR GUÐBERGSDCTTIR, Silfurteigi 1, sem lést 26. desember veröur jarösungin frá Laugarneskirkju mánudaginn 6. janúar kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Samband íslenskra kristniboðsfélaga. Fyrir hönd tengdabarna og barnabarna. Auöunn Hermannsson, Guörún Auöunsdóttir, Guöbergur Auðunsson, Hermann Auöunsson, Herborg Auöunsdóttir. t Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur, afa og langafa okkar, RAGNARS S. ÓLAFSSONAR, húsgagnabólstrara, Laugavegi 100, Rvík hefur fariö fram í kyrrþey, aö ósk hins látna. Fyrir hönd aöstandenda, Helga Jósefsdóttir, Guörún Rósa Ragnarsdóttir, Gunnar Björnsson, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Agnes Guöný Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu, langömmu og langa- langömmu, STEINUNNAR MAGNÚSDÓTTUR, Reynihvammi 25, Kópavogi. Jóhanna Bóel Síguröardóttir, Magnea I. Siguröardóttir, Agúst L. Eiösson, Svava Siguröardóttír, Siguröur Ingimundarson, og ömmubörnin. t Útför GUDMUNDAR S. EINARSSONAR kennara, Kópavogsbraut 77, Kópavogi, fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 8. janúar kl. 15.00. Guörún Jónsdóttir, Jón Ármann Guömundsson, Ármann Kojic Jónsson, Halldór J. Guömundsson. Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIDJÓN GUOLAUGSSON, vélstjórí, Arnarhrauni 4, Hafnarfiröi, verður jarösunginn frá Hafnarfjarðarkirkju á rhorgun, mánudaginn 6. janúar, kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Hulda Hansdóttir, Ólafur Helgi Friöjónsson, Katla Þorkelsdóttir, Guölaug Hanna Friöjónsdóttir, Ólafur Ingimundarson, Guðrún H. Friðjónsdóttir, Friðrik H. Friöjónsson, Sólveig H. Friöjónsdóttir, Júlíanna H. Friójónsdóttir, Guðlaugur H. Friöjónsson, Arni Sigurvinsson, Margrét Valdimarsdóttir, Kristjón Sigurbrandsson, Magnús Pétursson, Guörún Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURÐUR GRÍMSSON, Kaplaskjólsvegi 60, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 7. janúar kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á líknar- félög og stofnanir. Ragnheiöur Guómundsdóttir, Vilborg Siguröardóttír, Sigurður Hermannsson, Ásthildur Siguröardóttir, Sigmundur Arthúrsson Ásdís Siguröardóttir, og barnabörn. t Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUDFINNA JÓNA TORFADÓTTIR, Hverfisgötu 123, . sem lést 23. desember verður jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. janúar kl. 15.00. Auöur Hákonardóttir, Hafliöi Hákonarson, Helga Hákonardóttir, Guðbjörg Hákonardóttir, Ástríöur Hákonardóttir, Gunnar H. Jónsson, Rós Steindórsdóttir, Bergþór Magnússon, Hilmar Hafsteinsson, Karl Snorrason. Unnur Guðbergs- dóttir - Minning Fædd 7. maí 1912 Dáin 26. desember 1985 Að kvöldi dags, annars í jólum, lést kær vinkona mín, Unnur Guðbergsdóttir, til heimilis á Silf- urteigi 1 hér í borg. Nýkomin heim úr ánægjulegu fjölskylduboði hneig hún örend í faðm eiginmanns síns, Auðuns Hermannssonar, sem hafði verið hennar stoð og sty tta í 46 ára löngu ogfarsælu hjónabandi. Kynni okkar Unnar hófust árið 1937 þegar ég kom hingað til ís- lands í fyrsta skipti. Unnur bjó þá hjá foreldrum sínum, Herborgu Jónsdóttur frá Bústöðum og Guð- bergi Jóhannssyni málarameist- ara, ættuðum úr Hafnarfirði, á Hverfisgötu 99a í Reykjavík og dvaldi ég hjá þeim í góðu yfirlæti Í3vikur. Eftir nám í Kvennaskólanunj í Reykjavík vann Unnur við verslun- arstörf og síðan við hattasaum. Árið 1939, þann 20. október, gengu þau Unnur og Auðunn í hjónaband og eignuðust þau fjögur börn: Guðrúnu, Guðberg, Her- mann og Herborgu. Barnabörnin eru átta. Sterkasti þáttur í lífi Unnar var ást, hlýja og umhyggja fyrir heim- ilinu, börnunum og barnabörnun- um. Annar þáttur var áhugi henn- ar á handavinnu. Mörg og falleg verk hennar prýða nú fjölskyldu- heimilin. Fyrir nokkrum árum gekk hún í Kristniboðsfélag kvenna og þótti henni innilega vænt um félagskon- urnar og naut samverustundanna í Betaníu. Unnur veiktist alvarlega fyrir þremur árum, en bjartsýni og umhyggja eiginmannsins gaf henni gleði og kjark á erfiðum tímum. Fyrir margra ára órjúfanlega vináttu þakka ég Unni að leiðar- lokum og megi hinn algóði Guð blessa og styrkja ástvini hennar í sorg þeirra og söknuði. „Eilífðardagur, ununarfagur eilíf skín sól í Paradís. Ó, hve fegri og yndislegri unun mín sú, er þar er vís.“ Astrid S. Hannesson t Móöir mín, tengdamóöir, amma og langamma, GUDRÚN ÞÓRA ÞORKELSDÓTTIR, Hátúni 10B, sem andaðist aö kvöldi 24. desember verður jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 7. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd aöstandenda, Guörún Halldóra Magnúsdóttir, Pétur Sigurösson, barnabörn og barnabarnabörn. t Fööursystir min, MATTHILDUR JÓNSDÓTTIR, Tómasarhaga 24, lést aöfaranótt 31. desember. Útförin veröur gerö frá Neskirkju mánudaginn 6. janúar klukkan 3 síödegis. Fyrir hönd vandamanna, Ragnheiöur Guöbrandsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR MAGNÚS SVEINSSON fyrrverandi bifreiöaeftirlitsmaöur á Reyöarfiröi, andaöist í Borgarspítalanum á jóladag. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. desember kl. 15.00. Björg Bóasdóttir og börn hins látna. t Móöir okkar, STEINUNN Þ. GUÐMUNDSDÓTTIR, rithöfundur, Arahólum 2, veröur jarösungin frá Laugarneskirkju 6. janúar kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Helgi Guöjónsson, Valsteinn Guöjónsson. t Innilegustu þakkir fyrir auösýnda vináttu og samúö vegna fráfalls ANDRÍNU GUÐRÚNAR KRISTLEIFSDÓTTUR frá Sveinatungu. Börn, tengdabörn, barnabörn og systkini hinnar látnu. t Þökkum innilega auösýnda samúö við andlát og jarðarför eigin- konu minnar og móöur okkar, STEFANÍU ÓLAFAR JÓHANNSDÓTTUR. Jón Andersen, Nanna Maronsdóttir, Hanna Maronsdóttir. Ég vil með fáum orðum minnast tengdamóður minnar Unnar Guð- bergsdóttur. Eins og minningar um hana eru tengdar sumarbirtu er andlát hennar sem haustið. Það var árið 1972, sem ég kom fyrst á heimili hennar og tengda- föðurs míns, Auðuns Hermanns- sonar. Þau hjónin höfðu eignast eiginkonu mína, Herborgu, seint á lífsleiðinni. í stað þess að aldurs- munurinn orsakaði óbrúanlegt kynslóðabil, hafði fæðing konu minnar yngt Unni upp og augljóst var, að hún mótaði viðhorf sín í átt til yngri kynslóðarinnar á margan hátt. Þetta gerði þær mæðgur að vinkonum og samband þeirra var sérstaklega náið. Unnur fann þetta og þakkaði dóttur sinni það, aö viðhorf og smekkur hélst í takt við tímann. Mér þótti nokkuð óvanalegt, að vinir barna þeirra hjóna höfðu mikið samband við þau, þó börnin væru löngu farin að heiman og var þá oft gripið til spila. Ég skildi þetta ekki í fyrstu, en það rann upp fyrir mér, að hér kom meira til en ánægja þeirra af því, að taka slag. Þau hjónin tóku á móti fólki án fordóma og eyddu þannig kyn- slóðabilinu. Það var kærleikur, vinskapuroggleði, sem laðaði fólk- iðaö. Unnur var mikil hannyrðakona. Einnig á því sviði var hún sérstök. Þeir munir, sem hún gerði voru gerðir af listfengni, vandvirkni og smekkvísi. Hlutir hennar fylgdu tíðarandanum, þannig að þeir voru vel þegnir af yngri kynslóöinni og bera heimili barna hennar þess ljósan vott. Munir hennar voru oftar un ekki hugsaðir til gjafa. Hún hafði unun af því að gefa og alltaf fylgdi mikil hugulsemi gjöf- um } nnar. í pökkum frá henni var áiltaf eitthváo, sem kom sér sérstaklega vel og alltaf var svo smekklega frá.gjöfunum gengið, að unun var að. Allt fram til síð- asta dags var hún að vinna að gjöfum fyrir börnin sín. Tengdafaðir minn hefur tekið sér margt fyrir hendur um dagana en bak við manninn var kona, sem i' ,uddi hann af kærleika og treysti onum. Eftir að vinna hans fluttist inn á heimilið stuttu eftir að við hjónin byrjuðum að búa, tók hún virkan þátt í störfum hans, bæði við stofnun og rekstur Fasteigna- úrvalsins og við stofnun og stjórn- störf í samtökum aldraðra. Hún studdi hann með ráðum og dáðum á þeim tímamótum, þegar hann hætti sem forstjóri Hrafnistu og hóf eiginn rekstur kominn á sjö- tugsaldur. Eins hafa þau sagt mér að þau hafi staðið saman við aðrar erfiðar aðstæður í lífinu og hún stutt hann í ákvörðunum hans þó þær kostuðu óvissu eða jafnvel atvinnumissi. Unnur bjó sérstaklega smekk- legt heimili. Þó má ráða af frá- sögnum barna hennar, að það hafi aldrei þrengt að þeim í leik þeirra. Unnur var mamma af sama kær- leika og lifandi ástúð, sem ein- kenndi líf hennar. Ég hóf þessar línur með samlík- ingu við haustið. Ég lýk þeim með ósk um, að það vori í hjörtum vorum, og þau kærleiksfræ, sem Unnur Guðbergsdóttir sáði megi vaxa og bera ávöxt. Jón Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.