Morgunblaðið - 05.01.1986, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR1986
. 4
\
m.
t
Eiginkona mín og móöir okkar,
UNNUR GUÐBERGSDCTTIR,
Silfurteigi 1,
sem lést 26. desember veröur jarösungin frá Laugarneskirkju
mánudaginn 6. janúar kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Fyrir hönd tengdabarna og barnabarna.
Auöunn Hermannsson,
Guörún Auöunsdóttir,
Guöbergur Auðunsson,
Hermann Auöunsson,
Herborg Auöunsdóttir.
t
Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur, afa og langafa okkar,
RAGNARS S. ÓLAFSSONAR,
húsgagnabólstrara,
Laugavegi 100, Rvík
hefur fariö fram í kyrrþey, aö ósk hins látna.
Fyrir hönd aöstandenda,
Helga Jósefsdóttir,
Guörún Rósa Ragnarsdóttir, Gunnar Björnsson,
Ólafur Bjarki Ragnarsson, Agnes Guöný Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
móöur okkar, tengdamóöur, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
STEINUNNAR MAGNÚSDÓTTUR,
Reynihvammi 25,
Kópavogi.
Jóhanna Bóel Síguröardóttir,
Magnea I. Siguröardóttir, Agúst L. Eiösson,
Svava Siguröardóttír, Siguröur Ingimundarson,
og ömmubörnin.
t
Útför
GUDMUNDAR S. EINARSSONAR
kennara,
Kópavogsbraut 77,
Kópavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 8. janúar kl. 15.00.
Guörún Jónsdóttir,
Jón Ármann Guömundsson, Ármann Kojic Jónsson,
Halldór J. Guömundsson.
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FRIDJÓN GUOLAUGSSON,
vélstjórí,
Arnarhrauni 4,
Hafnarfiröi,
verður jarösunginn frá Hafnarfjarðarkirkju á rhorgun, mánudaginn
6. janúar, kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir,
en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Hulda Hansdóttir,
Ólafur Helgi Friöjónsson, Katla Þorkelsdóttir,
Guölaug Hanna Friöjónsdóttir, Ólafur Ingimundarson,
Guðrún H. Friðjónsdóttir,
Friðrik H. Friöjónsson,
Sólveig H. Friöjónsdóttir,
Júlíanna H. Friójónsdóttir,
Guðlaugur H. Friöjónsson,
Arni Sigurvinsson,
Margrét Valdimarsdóttir,
Kristjón Sigurbrandsson,
Magnús Pétursson,
Guörún Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
SIGURÐUR GRÍMSSON,
Kaplaskjólsvegi 60,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 7. janúar kl.
10.30. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á líknar-
félög og stofnanir.
Ragnheiöur Guómundsdóttir,
Vilborg Siguröardóttír, Sigurður Hermannsson,
Ásthildur Siguröardóttir, Sigmundur Arthúrsson
Ásdís Siguröardóttir,
og barnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUDFINNA JÓNA TORFADÓTTIR,
Hverfisgötu 123, .
sem lést 23. desember verður jarösungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 6. janúar kl. 15.00.
Auöur Hákonardóttir,
Hafliöi Hákonarson,
Helga Hákonardóttir,
Guðbjörg Hákonardóttir,
Ástríöur Hákonardóttir,
Gunnar H. Jónsson,
Rós Steindórsdóttir,
Bergþór Magnússon,
Hilmar Hafsteinsson,
Karl Snorrason.
Unnur Guðbergs-
dóttir - Minning
Fædd 7. maí 1912
Dáin 26. desember 1985
Að kvöldi dags, annars í jólum,
lést kær vinkona mín, Unnur
Guðbergsdóttir, til heimilis á Silf-
urteigi 1 hér í borg.
Nýkomin heim úr ánægjulegu
fjölskylduboði hneig hún örend í
faðm eiginmanns síns, Auðuns
Hermannssonar, sem hafði verið
hennar stoð og sty tta í 46 ára löngu
ogfarsælu hjónabandi.
Kynni okkar Unnar hófust árið
1937 þegar ég kom hingað til ís-
lands í fyrsta skipti. Unnur bjó
þá hjá foreldrum sínum, Herborgu
Jónsdóttur frá Bústöðum og Guð-
bergi Jóhannssyni málarameist-
ara, ættuðum úr Hafnarfirði, á
Hverfisgötu 99a í Reykjavík og
dvaldi ég hjá þeim í góðu yfirlæti
Í3vikur.
Eftir nám í Kvennaskólanunj í
Reykjavík vann Unnur við verslun-
arstörf og síðan við hattasaum.
Árið 1939, þann 20. október,
gengu þau Unnur og Auðunn í
hjónaband og eignuðust þau fjögur
börn: Guðrúnu, Guðberg, Her-
mann og Herborgu. Barnabörnin
eru átta.
Sterkasti þáttur í lífi Unnar var
ást, hlýja og umhyggja fyrir heim-
ilinu, börnunum og barnabörnun-
um. Annar þáttur var áhugi henn-
ar á handavinnu. Mörg og falleg
verk hennar prýða nú fjölskyldu-
heimilin.
Fyrir nokkrum árum gekk hún
í Kristniboðsfélag kvenna og þótti
henni innilega vænt um félagskon-
urnar og naut samverustundanna
í Betaníu. Unnur veiktist alvarlega
fyrir þremur árum, en bjartsýni
og umhyggja eiginmannsins gaf
henni gleði og kjark á erfiðum
tímum.
Fyrir margra ára órjúfanlega
vináttu þakka ég Unni að leiðar-
lokum og megi hinn algóði Guð
blessa og styrkja ástvini hennar í
sorg þeirra og söknuði.
„Eilífðardagur, ununarfagur
eilíf skín sól í Paradís.
Ó, hve fegri og yndislegri
unun mín sú, er þar er vís.“
Astrid S. Hannesson
t
Móöir mín, tengdamóöir, amma og langamma,
GUDRÚN ÞÓRA ÞORKELSDÓTTIR,
Hátúni 10B,
sem andaðist aö kvöldi 24. desember verður jarösungin frá
Fossvogskirkju þriöjudaginn 7. janúar kl. 13.30.
Fyrir hönd aöstandenda,
Guörún Halldóra Magnúsdóttir,
Pétur Sigurösson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Fööursystir min,
MATTHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Tómasarhaga 24,
lést aöfaranótt 31. desember. Útförin veröur gerö frá Neskirkju
mánudaginn 6. janúar klukkan 3 síödegis. Fyrir hönd vandamanna,
Ragnheiöur Guöbrandsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR MAGNÚS SVEINSSON
fyrrverandi bifreiöaeftirlitsmaöur á Reyöarfiröi,
andaöist í Borgarspítalanum á jóladag.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. desember
kl. 15.00.
Björg Bóasdóttir og börn hins látna.
t
Móöir okkar,
STEINUNN Þ. GUÐMUNDSDÓTTIR,
rithöfundur,
Arahólum 2,
veröur jarösungin frá Laugarneskirkju 6. janúar kl. 10.30. Fyrir
hönd aðstandenda,
Helgi Guöjónsson,
Valsteinn Guöjónsson.
t
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda vináttu og samúö vegna fráfalls
ANDRÍNU GUÐRÚNAR KRISTLEIFSDÓTTUR
frá Sveinatungu.
Börn, tengdabörn, barnabörn og
systkini hinnar látnu.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö við andlát og jarðarför eigin-
konu minnar og móöur okkar,
STEFANÍU ÓLAFAR JÓHANNSDÓTTUR.
Jón Andersen,
Nanna Maronsdóttir,
Hanna Maronsdóttir.
Ég vil með fáum orðum minnast
tengdamóður minnar Unnar Guð-
bergsdóttur.
Eins og minningar um hana eru
tengdar sumarbirtu er andlát
hennar sem haustið.
Það var árið 1972, sem ég kom
fyrst á heimili hennar og tengda-
föðurs míns, Auðuns Hermanns-
sonar. Þau hjónin höfðu eignast
eiginkonu mína, Herborgu, seint á
lífsleiðinni. í stað þess að aldurs-
munurinn orsakaði óbrúanlegt
kynslóðabil, hafði fæðing konu
minnar yngt Unni upp og augljóst
var, að hún mótaði viðhorf sín í
átt til yngri kynslóðarinnar á
margan hátt. Þetta gerði þær
mæðgur að vinkonum og samband
þeirra var sérstaklega náið. Unnur
fann þetta og þakkaði dóttur sinni
það, aö viðhorf og smekkur hélst
í takt við tímann.
Mér þótti nokkuð óvanalegt, að
vinir barna þeirra hjóna höfðu
mikið samband við þau, þó börnin
væru löngu farin að heiman og var
þá oft gripið til spila. Ég skildi
þetta ekki í fyrstu, en það rann
upp fyrir mér, að hér kom meira
til en ánægja þeirra af því, að taka
slag. Þau hjónin tóku á móti fólki
án fordóma og eyddu þannig kyn-
slóðabilinu. Það var kærleikur,
vinskapuroggleði, sem laðaði fólk-
iðaö.
Unnur var mikil hannyrðakona.
Einnig á því sviði var hún sérstök.
Þeir munir, sem hún gerði voru
gerðir af listfengni, vandvirkni og
smekkvísi. Hlutir hennar fylgdu
tíðarandanum, þannig að þeir voru
vel þegnir af yngri kynslóöinni og
bera heimili barna hennar þess
ljósan vott. Munir hennar voru
oftar un ekki hugsaðir til gjafa.
Hún hafði unun af því að gefa og
alltaf fylgdi mikil hugulsemi gjöf-
um } nnar. í pökkum frá henni
var áiltaf eitthváo, sem kom sér
sérstaklega vel og alltaf var svo
smekklega frá.gjöfunum gengið,
að unun var að. Allt fram til síð-
asta dags var hún að vinna að
gjöfum fyrir börnin sín.
Tengdafaðir minn hefur tekið
sér margt fyrir hendur um dagana
en bak við manninn var kona, sem
i' ,uddi hann af kærleika og treysti
onum. Eftir að vinna hans fluttist
inn á heimilið stuttu eftir að við
hjónin byrjuðum að búa, tók hún
virkan þátt í störfum hans, bæði
við stofnun og rekstur Fasteigna-
úrvalsins og við stofnun og stjórn-
störf í samtökum aldraðra. Hún
studdi hann með ráðum og dáðum
á þeim tímamótum, þegar hann
hætti sem forstjóri Hrafnistu og
hóf eiginn rekstur kominn á sjö-
tugsaldur. Eins hafa þau sagt mér
að þau hafi staðið saman við aðrar
erfiðar aðstæður í lífinu og hún
stutt hann í ákvörðunum hans þó
þær kostuðu óvissu eða jafnvel
atvinnumissi.
Unnur bjó sérstaklega smekk-
legt heimili. Þó má ráða af frá-
sögnum barna hennar, að það hafi
aldrei þrengt að þeim í leik þeirra.
Unnur var mamma af sama kær-
leika og lifandi ástúð, sem ein-
kenndi líf hennar.
Ég hóf þessar línur með samlík-
ingu við haustið. Ég lýk þeim með
ósk um, að það vori í hjörtum
vorum, og þau kærleiksfræ, sem
Unnur Guðbergsdóttir sáði megi
vaxa og bera ávöxt.
Jón Sigurgeirsson