Morgunblaðið - 05.01.1986, Page 42
> 42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR1986
IÞROTTIR UNGUNGA UmsjónA/ilmar Pétursson
»>
K.
Drengjalandsliðiö
Drengjalandsliö pilta í körfuknattleik. Þeir eru í efri röö frá vinstri: Björn Leósson þjálfari, Gunnar
Sverrisson, Kristinn Traustason, Herbert Arnarson, Þórir Þorsteinsson, Brynjar Harðarson, Ottó D.
Tynes, Ari Gunnarsson. í neöri röö frá vinstri: Aöalsteinn Ingólfsson, Friörik Ragnarsson, Höröur
Gunnarsson, Steinar Adolfsson, Skúli Skúlason og Þórir Ingólfsson. Á myndina vantar Árna Guö-
mundsson og Jón Pál Haraldsson.
• Reykjavíkurmeíslarar Vals í 4.
flokki karla 1985. Neóri röö frá
vinstri: Hákon Kristinsson, Hall-
grímur Friögeirsson, Þorkell Hjálm-
arsson, Sigurjón Þráinsson, Lárus
Sigurósson, Kristinn Unnarsson,
Magnús Haraldsson, Alfreö Chiarol-
anzio. Efst frá vinstri: Magnús
Blöndal, þjálfari, Trausti Ágústsson,
Óskar Finnbjörnsson, Birgir Guö-
björnsson, Þorkell Másson, Ármann
Sigurvinsson, Örn Árnason, Björg-
vin Rúnarsson, Egill Sigurösson,
þjálfari. Unnu ÍR, 19—9 í úrslitaleik.
Haldið til
móts við
snjóinn
ÞESSI glaðbeitti hópur skíöafólks
úr Víking og Fram hélt til Geilo í
Noregi 29. desember til æfinga
og keppni á skíðum.
Hópurinn mun dvelja hjá frænd-
um vorum norsurum í hálfan mán-
uð og væntanlega veröur orðið
skíöafæri hér heima þegar þau
koma til baka þannig aö þau geti
haldiö ótrauð áfram að renna sér
í allan vetur.
Ekki mun af veita fyrir ungt
skíðafólk að komast í æfingu þvi
í vetur munu verða háðar margar
keppnir á þessum vettvangi. Auk
ýmissa innanfélagsmóta munu
veröa fjögur mót i bikarkeppni Is-
lands á skíöum i hverjum aldurs-
flokki.
Góður árangur í
Norðurlandaferð
Undirbúningurinn hófst í raun í
ágúst síöastliðnum þegar flestir
þessara pilta fóru saman í æfinga-
búöir. í haust fór hópurinn síöan í
keppnis- og æfingaferö til Sviþjóö-
ar og Danmerkur. Tveir leikir voru
spilaðir viö Kaupmannahafnarúr-
val og vannst fyrri leikurinn nokkuö
létt meö 20 stiga mun.
Seinni leikurinn var allsöguleg-
ur. Danirnir voru meö 20 stiga
forystu í leikhléi og útlitið allt
annaö en bjart. I seinni hálfleik
spiluöu okkar menn pressuvörn
og náðu aö minnka muninn smám
saman. Þegar 1 mínútavar til leiks-
loka var forysta Dananna komin
niöur í 7 stig og undir öllum eölileg-
um kringustæöum áttu þeir aö eiga
sigurinn vísan. En íslensku strák-
arnir voru á ööru máli, þeir ná
boltanum, bruna upp og skora
þriggja stiga körfu og pressa á
Danina á þeirra vallarhelmingi.
Danirnir komast fram fyrir miðju
og eiga þá misheppnaöa sendingu
og islendingar ná bolttanum oc
skora aftur 3 stiga körfu og munur-
inn var því orðinn 1 stig en aöeins
20 sek. eftir og Danir voru meö
boltann. I staö þess aö reyna aö
halda boltanum skjóta þeir þegar
10 sek. eru til leiksloka en hitta
ekki. Islendingar ná frákastinu,
bruna fram og ná aö skora. íslend-
ingar hafa þar meö náö forystunni
og 2 sek. til leiksloka. Danirnir taka
leikhlé og ráöa ráöum sínum og
síöan að því loknu reyna þeir skot
af löngu færi en hitta ekki og ís-
lenskur sigur' er í höfn. islensku
strákunum tókst því aö skora 8
stig á einni mínútu og sigra meö
1 stigsmun.
Auk þessara leikja tóku strák-
arnir þátt í alþjóölegu móti í Sví-
þjóö í þessari ferö þar sem þeir
spiluöu 7 leiki, sigruöu í 6 og höfn-
uðu í 3. sæti á mótinu.
Erfiður riðill
Björn Leósson þjálfari pilta-
landsliösins taldi aö Evrópumeist-
aramótið 1987 yrði geysilega erfitt
því íslendingar væru í mjög sterk-
um riöli þar sem auk islendinga
spila liö frá Ítalíu, Grikklandi, Israel
og Kýpur. í þessum liöum eru 3-4
menn yfir tvo metra og því verður
það helst hæðin sem veröur okkar
strákum erfiö á mótinu.
Margt framundan
Mikill undirbúningur er fyrir-
hugaður áður en að Evrópumeist-
aramótinu kemur og taldi Björn
mikilvægt aö hópurinn hittist
reglulega til aö ná aö byggja upp
sterka liösheild og góöan liðsanda.
Fyrirhugaö er aö fara á alþjóölegt
mót í Stokkhólmi næsta sumar og
jafnvei til Bandaríkjanna um næstu
áramót með liöiö, auk þess sem
áframhald veröur á að liöið hittist
helgi og helgi og æfi saman.
Steinar Adolfsson:
Leikur í
tveimur
lands-
liöum
STEINAR Adolfsson 15 ára Ólafs-
víkingur er einn þeirra sem valdir
hafa verið til að æfa með pilta-
landsliðinu í körfuknattleik.
Steinar er fjölhæfur íþróttamaöur
og hann var síðastliöið sumar t
piltalandsliöinu í knattspyrnu.
Steinar var tekinn tali á æfingu
piltalandsliösins í körfu og hann
fyrst inntur eftir gengi Ólafsvíkur-
piltanna i körfu á íslandsmótinu,
en Steinar spilar meö 4. flokki.
„Það hefur gengiö mjög vel, viö
byrjuðum í fyrstu umferö í C-riöli
og unnum hann. I annarri umferö
kepptum viö því í B-riðli og þar
tókst okkur einnig aö sigra þannig
aö í 3. umferð munum viö spila í
A-riöli. Annars er aöstaöan heima
á Ólafsvík ekki nógu góö því húsiö
er í þaö minnsta en ég vona aö
þaö hái okkur ekki í þeim leikjum
sem eftir eru í íslandsmótinu aö
viö æfum í minna húsi en hin iiöin
í A-riölinum.“
Þar sem þaö viröist vera reyndin
aö þegar menn koma upp í meist-
araflokka er erfitt aö stunda tvær
íþróttagreinar svo vel sé og því var
Steinar spuröur hvort hann væri
farinn aö hugsa um hvora íþróttina
körfubolta eöa fótbolta, hann
myndi velja ef aö þaö væri of mikið
aö vera á fullu í báöum.
„Ég er aö vísu farinn að hugsa
um aö sennilega þurfi ég aö gera
upp á milli fót- og körfuboltans en
get ekki ennþá sagt um hvor grein-
in veröur ofaná. Hingaö til hefur
gengið ágætlega aö sameina þetta
tvennt og einnig hefur gengiö
þokkalega aö sameina íþróttirnar
og skólann þó aö mikill tími fari í
æfingar, keppnir og feröalög sem
tengjast íþróttum," svaraöi Stein-
ar.
Steinar sagðist vera mjög
ánægöur meö undirbúning pilta-
landsliösins fyrir Evrópumótiö, þaö
væri mjög gaman aö taka þátt í
honum og þjálfarinn Björn Leósson
væri frábær.
Drengjalandsliðið í körfu:
Unnu upp sjö stiga
forystu á einni mínútu
og unnu þar meö Danl
í mars-aprfl 1987 verður næst I senda liö á þaö mót. Undirbúning- I
haldiö Evrópumót drengjalands- ur er þegar hafinn fyrir þetta mót
liða í körfuknattleik og mun ísland I og helgina 13.-15. desember hitt- |
ist hópurinn sem valinn hefur
verið til aö taka þátt í undirbún-
ingnum og æfðu þeir saman tvisv-
ar á dag. Umsjónarmaður ungl-
ingasíðunnar heimsótti piltana og
þjálfara þeirra Björn Leósson á
æfingu þessa helgi og forvitnaöist
um undirbúninginn fyrir Evr-
ópumótið.