Morgunblaðið - 08.01.1986, Page 1

Morgunblaðið - 08.01.1986, Page 1
56 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 5. tbl.-72. árg. MIÐVIKUDAGUR 8. JANUAR 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sýrlendingar skjóta á her- þotur Israela Beirút/Nes Ziyyona, ísrael, 7. janúar. AP. SYRLENDINGAR skutu í morgun tveimur sovéskum SAM-6-loftvarn- arskeytum á ísraelskar orrustuþotur í lágflugi yfir Beka-dal í Líban- on. Hvorugt skeytanna hæfði skotmark sitt. Israelar neita að árásin hafi átt sér stað. Miklar deilur hafa staðið um það undanfarið að Sýrlendingar skuli hafa sett upp eldflaugaskotpalla í Líbanon og meðfram landamærum Sýrlands. Hermt hefur verið að ísraelskar orrustuþotur, sem vörpuðu sprengj- um á bækistöðvar skæruliða í Líban- on þrettán sinnum á síðasta ári, Afganistan: Uppljóstr- anir valda reiði Rússa Islamabad, 7. janúar. AP. FIMM hershöfðingjar afganska hersins voru handteknir nýverið fyrir að veita skæruliðaforingja upplýsingar um herflutninga Sovétmanna í Afganistan og önnur leynileg mál, að þvi er ónafngreindir heimildarmenn sögðu í dag. Einn heimildarmaður sagði að fjórir herforingjar hefðu verið hand- teknir í Kabúl 5. desember og annar sagði að sá fimmti hefði einnig verið handtekinn þegar afgönsk yfírvöld létu til skarar skríða gegn uppljóstr- urum. Herforingjar þessir voru að sögn háttsettir í vamarmálaráðuneytinu áður en þeir voru handteknir og bendir allt til þess að þeir hafi gefíð skæruliðaforingjanum Ahmadashah Massoud upplýsingar. Ekkert er vitað um örlög herforingjanna. Massoud er einn nafntogaðasti skæruliði Afgana og stjómar hann sveitum skæruliða í Panshjer-dal norðaustur af Kabúl. Þar hafa farið fram einhveijir mestu bardagar í styijöldinni í Afganistan og hafa skæruliðar Massouds unnið þar mikla sigra á heijum Afgana og Sovétmanna. Sovétmenn voru æfir jrfir upp- ljóstrunum herforingjanna og er haft eftir áreiðanlegum heimildum að framvegis fái yfirmenn stjómar- hersins aðeins að vita um liðsflutn- inga Sovétmanna með fjögurra klukkustunda fyrirvara. Fyrstu viku ársins var barist á götum úti í Kabúl. Stríðandi öfl í kommúnistaflokknum, sem stendur að leppstjóm Sovétmanna í Afgan- istan, börðust með vélbyssum og handsprengjum í miðbæ höfuðborg- arinnar. Kommúnistaflokkurinn í Afgan- istan skiptist í tvo vængi, Pachram og Khalq, og árum saman hefur ríkt ágreiningur milli þeirra um það hvemig koma skuli á kommúnisma í Afganistan. Babrak Karmal, leið- togi afgönsku stjómarinnar, tilheyrir Pachram-vængnum og ágerist nú ( Kabúl orðrómur um að andstæðing- ar hans í Khalq-vængnum séu ákveðnir í að bola Karmal frá völd- um. hafí í dag sett á svið loftárás á herstöðvar í Beka-dal. í útvarpsstöð kristinna manna í Beirút sagði að ísraelsku þotumar ,hefðu sleppt purpurarauðum belgj- um, sem skeytin hefðu elt uppi. Onnur sprengjan sprakk yfir þorpi kristinna manna í Beka-dal án þess að valda tjóni. Skeytunum var skotið á loft í Jdeitat Yabous við sýrlensku landamærin. Síðar í dag flugu tvær ísraelskar orrustuvélar yfír Beirút, Beka-dal og suðurhluta Líbanons og heyrðust miklar drunur, þegar þær sprengdu hljóðmúrinn. ísraelar neita að skotið hafí verið á ísraelskar orrustuvélar, en viður- kenna að þotur sínar hafí flogið könnunarflug yfír Líbanon. Sýrlendingar, sem hafa margoft varað ísraela við að fljúga í líbanskri lofthelgi, hafa varist sagna af at- burðinum í dag. AP/Símamynd Flugræningi leiddur fyrir rétt Valletta, Möltu, 7. janúar. AP. LÖGREGLAN á Möltu bar í dag vitni fyrir rétti í málinu, sem höfðað hefur verið á hendur Omar Mohammed Ali fyrir að ræna Boeing 737-flugvél egypska flugfélagsins Egyptair í nóvember. Þrír flugræningjar rændu vélinni og létust tveir þeirra þegar storms veitir Egypta gerðu áhlaup á flugvél- ina með þeim afleiðingum að 58 manns létu Iffið. Þegar yfírheyrslumar hófust í gær bannaði Gino Camilleri, dómari, birtingu sönnunargagna að ósk veijanda Omars Mohammeds Alis, sem sagði að það kynni að hafa áhrif úrskurð tilvonandi kviðdómenda. Réttarhöldin fara fram í virkinu St. Elmos, sem reist var á sextándu öld. Ali gengur fyrir miðju á myndinni hér að ofan með jámaðar hendur í skauti sér. Reagan bannar öll viðskipti við Líbýu Washin^ton, 7. janúar. AP. SEINT I kvöld lýsti Ronald Reag- an, Bandaríkjaforseti, yfir þvi að bandariskum borgurum og fyrir- tækjum yrði skipað að hætta öll- um viðskiptum við Líbýumenn. Forsetinn sagði að þetta hefði verið ákveðið vegna þess að óræk- ar sannanir lægju fyrir þvi að leiðtogi Líbýu, Moammar Kad- hafy, hefði lagt hryðjuverka- mönnunum lið í árásunum á flug- vellina í Róm og Vín. Reagan sagði að fyrirtækjum, sem brytu bannið, yrði refsað harð- lega. Allir bandarískir borgarar, utan blaðamenn, verða að yfírgefa Líbýu. Hver sá, sem dvelur áfram í Líbýu og stundar þar viðskipti — þar með talin kaup á matvöm — getur átt yfír höfði sér allt að 10 ára fangelsisdóm. Utanríkisráðherrar ákváðu á ráð- stefnu samtaka 45 þjóða múham- eðstrúarmanna að gefa út stuðn- ingsjrfírlýsingu við Líbýumenn, sem telja landi sínu ógnað af bæði Banda- ríkjamönnum og ísraelum. Vestur-Evrópuríki eru treg til að taka undir efnahagsþvinganir Bandaríkjamanna gegn Líbýumönn- um vegna þess að þúsundir Vestur- Evrópubúa vinna þar og einnig kaupa Evrópumenn mikla olíu frá AP/Símamynd Flugmóðurskipið Coral Sea er nú statt skammt frá Líbýu ásamt öðrum bandarískum herskipum. Líbýu. Það eru helst Bretar, sem hafa beitt Líbýumenn efnahags- þvingunum. Bretar bönnuðu vopna- sölu til Líbýu eftir að lögreglukona var skotin til bana úr líbýska sendi- ráðinu í London 1984. Hans-Dietrich Genscher, utanrík- isráðherra Vestur-Þýskalands, sagði á blaðamannafundi með Roland Dumas, utanríkisráðherra Frakk- lands, að stjómin í Bonn hefði ávallt farið gætilega þegar um viðskipta- bönn væri að ræða. Dumas sagði að Frakkar vildu fá að vita hvaða aðgerðir Reagan myndi leggja til áður en þeir tækju afstöðu til þess hvort grípa ætti til efnahagsþving- aha. ítalar hafa um langt skeið haft náin samskipti við Líbýumenn og flytja mikið inn af olíu þaðan. Bett- ino Craxi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði í dag að endurskoða þyrfti samskipti þjóðanna ef sannaðist að Líbýumenn legðu hryðjuverkamönn- um lið. Leopold Gratz, utanríkisráðherra Austurríkis, sagði eftir ríkisstjómar- fund að stefna Austurríkismanna gagnvart Líbýu mjmdi haldast óbreytt, en það gæti breyst á skömmum tíma. Bent var á það að engar sannanir lægju fyrir um aðild Líbýumanna að árásinni á flugvöll- inn í Vín og Fred Sinowatz, kansl- ari, sagði að stefna stjómarinnar í Miðausturlöndum réðist ekki af verkum glæpamanna. Caspar W. Weinberger, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, varaði á mánudag við því að nota Bandaríkja- her til hefndaraðgerða fyrir hryðju- verk. Afstaða bandarískra yfírvalda til þess hvort gripið verði til hemaðar- legra hefndaraðgerða gagnvart Líbýumönnum er mjög óljós. Larry Speakes, talsmaður Bandaríkja- stjómar, segir hyggilegast að halda Líbýumönnum milli vonar og ótta um það til hvaða hemaðaraðgerða verði gripið - og hvort til slíks komi. Khadafy, leiðtogi Líbýu, hélt því fram í dag að ísraelskar herþotur væm um borð í bandaríska flug- móðurskipinu Coral Sea, sem nú er með öðmm bandarískum herskipum við heræfingar skammt undan Líbýu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.