Morgunblaðið - 08.01.1986, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JANtJAR 1986
60 ára hjú-
• skaparafmæli
Stykkishólmi, 2. jóladag.
í GÆR, jóladag, voru liðin 60 ár
síðan þau Jakobina Jakobsdóttir og
Gestur Sólbjartsson stofnuðu til hjú-
skapar. Þau giftu sig og hófu búskap
í Stykkishólmi. Jakobina kom hingað
með foreldrum sínum vestan af
Qörður, þeim Ingibjörgu Ólafsdóttur
og Jakob Jakobssyni og stundaði
Jakob hér skósmíðar fyrstu árin hjá
Olgeiri Kristjánssyni sem hér var
lengi skósmiður. Einnig vann hann
við sjóinn og öll algeng störf. Gestur
er Eyjamaður, sonur Sigríðar Gests-
dóttur og Sólbjarts Gunnlaugssonar
sem lengi bjuggu í Bjamareyjum,
og var þá mannmargt í Bjamareyj-
um, enda 8 býli auk verbúða.
Þau Jakobina og Gestur bjuggu
til ársins 1931 hér í Stykkishólmi,
en þá fluttu þau í Svefneyjar og
vom þar yfir 7 ár, en þaðan var flutt
í Bjamareyjar og loks á Hrappsey
sem Gestur fékk eftir 4 ár kauparétt
á og bjó þar yfir 14 ár eða til þess
tíma er hann flutti hingað í Hólminn
og hefir búið hér síðan, eða frá 1958.
Gestur átti 8 systkini og enn lifa
auk hanstvö.
Jakobína Jakobsdóttir og Gestur Sólbjartsson
Lengst af búmennsku sinnar urður Sveinbjömsson sem var Gesti
stundaði Gestur sjóinn og þótti þar samtíða í Vestureyjum að hann hefði
mjög liðtækur. Það sagði mér Sig- engan vitað duglegri og áræðnari
Bætt kiör með
SÉRSTAKRI
VAXTAVIÐBÓT, AUK
VAXTA OG VERÐBÓTA
SIQASTAARS
BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
en Gest og vont hefði það veður
verið sem Gestur sat heima ef hann
vissi von fiskjar. Sagði hann mér til
dæmis um það sögu af Gesti sem
hann síðar staðfesti. Er Gestur ekki
í vafa um að það var hreinasta mildi
að hann skyldi þá sleppa lífs, en þá
sótti hann út undir Grundaríjörð í
slæmu útliti og fyrr en varði var
komið manndrápsveður. Með honum
var þá Þorgeir Jónsson, dugnaðar-
forkur, og samstilling þeirra og
heppni bjargaði þeim í land.
Gestur og Jakobína eignuðust 9
böm og ólu upp sem sinn eigin son,
Gest Má, dótturson sem ætíð heflr
reynst þeim eins og best verður á
kosið.
Eftir að Gestur kom í land, stund-
aði hann almenna vinnu og frysti-
húsavinnu þar til, hann fyrir nokkru
hætti, enda þá kraftar famir að
gefa sig.
Þau hjón em minnug og hafa tekið
vel eftir á langri leið. Með sameigin-
legu átaki og bjartsýni hafa þau
komið upp stómm hópi bama. Eins
og gefur að skilja og þeir vita sem
reynt hafa þá var oft erfitt, sérstak-
lega á kreppuámnum, en allt bjarg-
aðist það.
Við Gestur höfum oft hist og
rætt saman og hefír það verið mér
sérstakt ánægjuefni og þau hjón
hafa margt sagt mér frá dvöl sinni
í eyjunum þegar þær áttu sinn mesta
sjarma en of langt yrði að fara út
í það nú.
En tilgangurinn með þessari frétt
var að minna á að enn eigum við
hjá okkur fólk af gamla skólanum
sem við erfið kjör efldi sinn mann-
dóm, trúði á hjálp guðs sem veitti
kraftinn til bjargar. Og það em þau
sammála um, gömlu hjónin, að án
hans máttar er allt vort traust,
óstöðugt veikt og hjálparlaust.
Árni
Mývatnssveit:
20stiga
frost
umjólin
Milt um áramót
Mývatnssveit, 6. janúar.
HELDUR var köld tíð hér í Mý-
vatnssveit um jólin. Allhvöss norð-
anátt á annan dag jóla með snjó-
komu og skafrenningi. Frost var
nálægt 20 stigum.
Töluverðan snjó setti niður svo
þungfært varð á vegum. Þurfti því
að moka vegina og var það í fyrsta
skipti á þessum vetri. Síðan hefur
verið ágæt færð á vegum hér. Jóla-
hald var með hefðbundnum hætti.
Messað var í báðum kirkjum um jól
og áramót og var kirkjusókn mjög
góð. Jólatrésskemmtun var fyrir
böm milli jóla og nýárs og var þar
mikið fjölmenni. Ungmennafélagið
hélt sinn árlega jólafund, ennfremur
sýndi það leikritið „Margt býr í
þokunni".
Ágætt veður var hér um áramót,
stillt og bjart. Álfabrenna var á
gamlárskvöld á íþróttavellinum við
Krossmúla. Þá var og dansleikur í
Hótel Reynihlíð á nýársnótt. Mikið
var um flugeldaskot og má segja
að Mývatnssveit hafi verið vel upp-
lýst um miðnættið. Vonandi verður
hið nýbyrjaða ár öllum landsmönn-
um gjöfult og gott.
Kristján.
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!