Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 6

Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986 Tryggvi b ■■ egar lokið verður við að iramleiða myndir um helstu braut- ryðjendur í íslenskum listum fram- anaf þessari öld, verður mestallur hópur þeirra listamanna sem nú er á miðjum aldri og hefur náð fullum þroska, kominn í gröfína eða orðinn elliær." Svo farast Baldri Hrafnkeli Jónssyni orð í Helgarpóstinum 2. janúar síðastliðinn um heimildar- mynd þá er hann hefir gert um Tryggva Ólafsson listmálara í Kaupmannahöfn en sú mynd rataði á skjáinn síðastliðið sunnudags- kveld og Baldur segir ennfremur: „Mig langaði til að gera íslenska nútímalist skiljanlega. Og ég vil ekki missa þessa listamenn úr höndunum og vera kannski neyddur síðarmeir að vinna upp liðna tíð. Þess vegna ákvað ég að hefjast handa í nútímanum og láta aðra um fortíðina". Síðan lýsir Baldur Hrafnkell því hversu erfíðlega gekk að íjármagna myndina en eftir tveggja ára þref hljóp Kvikmynda- sjóður, menningarsjóður SÍS og Sjónvarpið undir bagga ... en engu að síður eru 40% af kostnaði við gerð myndarinnar fjármögnuð með bankalánum og eigin framlagi. Frjálst framtak: Baldur Hrafnkell Jónsson á mikið lof skilið fyrir að fílma Tryggva Ólafsson myndlistarmann og ég held að óhætt sé að lýsa því yfír að hér sé að fínna hið frjálsa fram- tak í sinni tærustu og fegurstu mynd. Baldur Hrafnkell hefði alveg eins getað sleppt því að fílma Tryggva, hann er hvorki ráðinn til starfans af opinberri stofnun né sá hann hér hagnaðarvon, en hann bjó yfír nægu innra frelsi til að takast á við þetta verkefni. Ég hélt satt að segja að slíkir hugsjóna- menn væru annaðhvort horfnir í náðarfaðm ríkissjónvarpsins eða gin auglýsingaiðnaðarins. í þessu sambandi hvarflar hugurinn til bandarísks sjónvarps sem hæst er hrópað um „frjálst framtak". Sá er hér stýrir penna hefír haft nokkur kynni af bandarísku sjónvarpi, en hvergi orðið var við að þar fyndist smuga fyrir slíka hugsjónamenn sem Baldur Hrafnkel Jónsson. Satt að segja virðist miðstýringin alls- ráðandi hjá bandarísku sjónvarps- risunum og hafa reyndar forstjórar þar kvartað undan þrýstingi auglýs- ingamarkaðarins. Það er þá helst að frelsið birtist í mynd þekktra sjónvarpsmanna er hafa rutt nýjum þáttum braut og fengið þar umtals- vert olnbogarými. Ég held að ekki sé ofmælt að þessir sjónvarpsmenn beri kyndil frelsis í „sjónvarps- landinu" vestra. Myndin afTryggva: Baldur Hrafnkell brá upp afar notalegri mynd af Tryggva Ólafs- syni listmálara. Hann rakti feril Tryggva en sparaði viðtöl við lista- manninn þannig að myndir Tryggva og listaferill sátu í fyrirrúmi. Þessi vinnuháttur er vissulega fullgildur en ég hefði kosið að heyra meira frá listamanninum sjálfum. Þá hefði Baldur mátt skoða svo- lítið nánar æskuslóðir Tryggva á Norðfírði. Undirritaður man vel þá tíð er Tryggvi og bróðir hans Loftur tannlæknir voru einhverjir harðsvír- uðustu snjókastarar bæjarins. Annars voru þetta bestu strákar og ég veit til þess að Tryggvi hefur alla tíð haldið tryggð við átthagana. Hafa Norðfírðingar tekið miklu ást- fóstri við myndir Tryggva og hver veit nenia Tryggvi sé alltaf að mála gamla góða Norðfjörð þama úti í hinum stóra heimi? Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / SJÓNVARP Poppgátan fyrsti þáttur undankeppni ■■■■ Fyrsti þáttur 9QOO undanúrslitar & O ““ Poppgátunnar hefst á rás 2 kl. 23.00 í kvöld og verða keppendur þá þeir Pétur Kristjánsson söngvari og Ólafur Jónsson kennari. Það eru sigurvegarar síð- ustu átta þátta í forkeppni sem nú eigast við í næstu fjórurn þáttum. Eftir að úr- slit verða kunn í þeim eru þrír þættir eftir þangað til sigurvegarinn stendur einn eftir og hlýtur hann vegleg verðlaun - ferð fyrir tvo til Lundúna í boði Flugleiða og rásar 2. í dagsins önn — neytendamál Gunnlaugur Stefánsson í Pakistan. „Þjóð í stríði“ — um afganskt flóttafólk í Pakistan í kvöld kl. 20.00 sex ár liðin frá því að stríðið 9n00 verður ádagskrá hófst, en það hófst fyrir hlióðvarns. rásar alvöru á jólum 1979. Talið er að þriðjungur afganskrar þjóðar hafi flúið land frá því að stríðið hófst. hljóðvarps, rásar 1, þáttur um afganskt flóttafólk er nefnist „Þjóð í stríði" í umsjá Gunnlaugs Stefánssonar, starfsmanns Hjálparstofnunar kirkjunn- ar. Gunnlaugur heimsótti afganskar flóttamannabúð- ir í norðvestur Pakistan á landamærunum við Afgan- istan í nóvember og des- ember sl. Á þessu svæði dvelja um tvær og hálf milljón afganskra flótta- manna, sem flúið hafa stríð- ið heima fyrir. Talið er að þetta séu stærstu flótta- mannabúðir heims. Nú eru í þættinum í kvöld mun Gunnlaugur lýsa ástandinu í flóttamannabúðunum, segja frá hjálparstarfinu sem þar fer fram og fjalla um stríðið í Afganistan og afleiðingar þess bæði innan Afganistan og Pakistan. Þá verður einnig Qallað um þá spurningu, hvernig pakist- önsk þjóð, sem hefur 26 sinnum minni þjóðarfram- leiðslu á hvern íbúa en ís- land, getur tekið á móti jafn miklum fjölda flóttamanna og raun ber vitni. ■■■■ Neytendamál "I Q 30 verða á dagskrá lð~ þáttarins „í dagsins önn“ kl. 13.30 á rás 1 í dag. Umsjónarmaður er Sigurður Sigurðarson. Hann ræðir við fram- kvæmdastjóra Neytenda- samtakanna, Guðstein V. Guðmundsson, um starf- Gestag'angur — Birna Þórðardóttir ■■■■ Bima Þórðar- Q-| 00 dóttir verður A ““ gestur Ragn- heiðar Davíðsdóttur í þætt- inum Gestagangur, sem hefst á rás 2 í kvöld kl. 21.00. Bima hefur barist fyrir brottflutningi vamarliðsins af Keflavíkurflugvelli og hefur hún m.a. starfað mikið með Æskulýðsfylk- ingunni á undanfömum ámm. semi samtakanna, útgáfu- mál og kvörtunarþjónustu þeirra. Þá verður spjallað við hlustendur um ýmislegt sem neytendum kemur að góðu í daglegu lífi og einnig gefst hlustendum kostur á að senda inn fyrirspurnir í þáttinn sem svarað verður í næsta þætti eftir að bréfín berast, að sögn Sigurðar. Birna Þórðardóttír ÚTVARP FIMMTUDAGUR 9. janúar 7.00 Veöurfregnir. Fréttir Baen. 7.15 Morgunvaktin 7.20 Morguntrimm 7.30 Fréttir. Tilkynningar 8.00 Fréttir. Tilkynningar 8.15 Veðurfregnir 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Stelpurnar gera uppreisn" eftir Fröydis Guldahl. Sonja B. Jónsdóttir les þýðingu sina (4). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir. 10.05Málræktarþáttur. Endur- tekinn þáttur frá kvöldinu áöur sem Helgi J. Halldórs- son flytur. 10.40 „Ég man þá Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liönum árum. 11.10 Morguntónleikar a. Dorothy Dorow syngur lög eftir Adolphe Adam, Evu Dell'Acqua, Julius Benedict og fleiri. Gunilla von Bahr og Lucia Negro leika með á flautu og pianó. b. Kontrabassakonsert I D-dúr eftir Johann Baptist Vanhal. Ludwig Strecher og Kammersveitin I Innsbruch leika. Erich Urbanner stjórn- ar. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12A5 Veöurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 13.30 I dagsins önn — Neyt- endamál. Umsjón: Sigurður Sigurðarson. 14.00 Miödegissagan: „Ævin- týramaöur", — af Jóni Ól- afssyni ritstjóra Gils Guðmundsson tók sam- anog les (6). 14.30 Afrlvaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög sjómanna. (Frá Akureyri). 15.15 Frá Suöurlandi. Umsjón: Hilmar Þór Hafsteinsson. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 „Fagurt galaði fuglinn sá“. Sigurður Einarsson sér um þáttinn. 17.00 Barnaútvarpið Stjórnandi: Kristln Helga- dóttir. 17A0 Listagrip. Þáttur um listir . og menningarmál. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.50 Daglegtmál. Siguröur G. Tómasson flytur þáttinn. 20.00 Þjóö I strlöi. Þáttur af afgönsku flóttafólki. Umsjón: Gunnlaugur Stefánsson. 20.30 Tónleikar Sinfónluhljóm- sveitar Islnds I Háskólablói — Fyrri hluti. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einleikari: Jos- eph Ognibene. a. Sinfónla eftír John Speight. b. Hornkonsert nr. 1 I Es-dúr op. 11 eftir Richard Strauss. Kynnir: Jón Múli Arnason. 21.20 „Gegnumllfiðásjötluog- áttasnúningahraöa". Þáttur um Ijóö Einars Más Guö- mundssonar. Slmon Jón Jó- hannsson tekur saman. 21.45 Tónleikar 22.00 Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veöurfregnir. 22.20 Einsöngur I útvarpssal. Michael John Clarke syngur Islensk og erlend lög. Soffla Guðmundsdóttir leikur með á pfanó. (Frá Akureyri). 22.50 Tlmans rás. Skemmti- þáttur á nokkrum rásum eftir Einar Georg Einarsson. Umsjón: Þórhallur Sigurös- son. (Endurtekinn frá öörum degi jóla). 23.25 kammertónleikar. Ros- witha Staege, Raymund Havenith og Ansgar FIMMTUDAGUR 9. janúar 10.00—12.00 Morgunþáttur. Stjórnendur: Asgeir Tómas- son og Kristján Sigurjóns- son. Hlé. 14.00—16.00 I fullu fjöri. Stjórnandi: Asta R. Jóhann- SJÓNVARP 19.10 A döfinni Umsjónarmaður: Karl Sig- tryggsson 19.20 Nú getur hann taliö kýrn- ar (Ná bara man kan tælle köerne) Dönsk barnamynd um það hvernig drengur I Bhútan eignast gleraugu. Þýöandi: Jóhanna Jóhanns- dóttir. (Nordvision — Danska sjónvarpiö) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður FÖSTUDAGUR 10. janúar 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kastljós 21.10 Skonrokk Innlendur poppannáll 1985 Umsjónarmenn: Haraldur Þorsteinsson og Tómas Bjarnason. 22.10 Derrick Þrettándi þáttur. Þýskur sakamálamyndaflokkur. Aðalhlutverk: Horst Tappert og Fritz Wepper. Þýðandi: Veturliði Guönason 23.10 Seinni fréttir 23.15 Astogkvöl (Love and Pain) Bresk bló- mynd frá 1973. Leikstjóri Alan J. Pakula. Aöalhlut- verk: Maggie Smith og Ti- mothy Bottoms. Fertug kona og átján ára piltur verða sessunautar I hópferð um Spán. Þrátt fyrir aldursmun- inn fella þau hugi saman og fara tvö ein I ævintýraleit. Þýöandi: Rannveig Tryggva- dóttir. 01.10 Dagskrárlok. Schneider leika á flautu, planó og selló. a. Inngangur og tilbrigöi eftir Friedrich Kuhlau um stef eftir Carl Maria von Weber. b. Trió i g-moll op. 63 eftir Carl Maria von Weber. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. esdóttir. 16.00—17.00 í gegnum tlðina. Stjórnandi: Jón Ólafsson. 17.00—18.00 Einu sinni áöur var. Vinsæl lög frá rokktlmabil- inu, 1955—1962. Stjórn- andi: Bertram Möller. Þriggja mlnútna fréttir sagð- ar klukkan 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. Hlé. 20.00—21.00 Vinsældalisti hlusenda rásar 2. Tlu vinsælustu lögin leikin. Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 21.00—22.00 Gestagangur. Stjórnandi: Ragnheiður Dav- Iðsdóttir.. 22.00—23.00 Rökkurtoóar. Stjórnandi: Svavar Gests. 23.00—24.00 Poppgátan. Spurningaþáttur um tónlist. Stjórnendur: Jónatan Garö- arsson og Gunnlaugur Sig- fússon. SVÆÐISÚTVÖRP AKUREYRI 17.00—18.30 Rlkisútvarpið á Akureyri — Svæöisútvarp. REYKJAVÍK 17.00—18.00 Svæöisútvarp Reykjavlkur og nágrennis (FM 90,1 MHz).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.