Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 7
/
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986
7
Franski ráðherrann
Morgunblaöið/J úllus
Franski aðstoðarutanríkisráðherrann Jean-Michel Baylet veifar í kveðjuskyni þegar hann hélt af landi
brott frá Reykjavíkurflugvelli síðdegis í gær.
Blaðburóarfólk
óskast!
Austurbær
Ingólfsstræti
Barónsstígur
Hverfisgata 63—120
Grettisgata 64—98
Vitastígur 11 —17
Þingholtsstræti
Skerjafjörður
Gnitanes
Úthverfi
Nökkvavogur
fór beint til Póllands
„FRAKKLAND mun fylgja
sem fyrr þeirri höfuðreglu utan-
ríkisstefnu sinnar að byggja á
viðræðum en ekki valdbeitingu.
Mál Líbýu er i senn flókið og
vandasamt en því er ekki að
leyna að aðgerðir stjórnarinnar
í Trípólí hafa oftar en einu sinni
vakið furðu. Viðbrögð okkar við
yfirlýsingu Reagans um við-
skiptabann munu einkennast af
gætni og yfirvegun." Þetta sagði
Jean-Michel Baylet, aðstoðarut-
anríkisráðherra Frakklands, en
hann kom hingað til lands til
viðræðna við íslenska ráðamenn
í gær.
Ráðherrann sagði að „viðskipti
væru eitt og hryðjuverk annað" og
taldi ekki ráðlegt að blanda þessu
tvennu saman. „Frakkland hefur
ætíð barist einarðlega gegn hryðju-
verkamönnum, jafnt heima sem
erlendis og svo mun verða áfram."
Milliganga um f lutning
gyðinga?
Það vekur óneitanlega talsverða
athygli að ráðherrann hélt ekki til
Pansar að lokinni heimsókn sinni
til Islands, heldur til Varsjár í Pól-
landi. Samkvæmt óstaðfestum
heimildum mun ráðherrann ræða
þar við pólska ráðamenn um hugs-
anlegan brottflutning sovéskra
gyðinga til ísraels fyrir milligöngu
Frakka og Pólveija.
Jean-Michel Baylet sagði á fundi
með fréttamönnum að fímmtán ár
væru liðin frá síðustu heimsókn
fransks utanríkisráðherra til ís-
lands og útaf fýrir sig væri það næg
ástæða fyrir komu sinni. „Ég hef
átt viðræðufundi við íslenska ráða-
menn í því skyni að efla vináttu og
samvinnu landanna. Samskipti Is-
lendinga og Frakka standa á göml-
um merg. Franskir sjómenn stund-
uðu um langt skeið fískveiðar við
íslandsstrendur og það má því segja
að samskipti þjóðanna hafí hafíst
snemma. Ég varð áþreifanlega var
við að íslendingar eru allkunnugir
franskri menningu. Menningu bar
einmitt oft á góma í viðræðum við
íslenska ráðamenn. ekki síst er ég
ræddi við forseta íslands, Vigdísi
Finnbogadóttur. Hún sýndi mér þá
einstöku vinsemd að sýna mér
Reykjavík með því að aka mér um
borgina í bifreið sinni.
Eg ræddi við íslenska ráðamenn
m.a. um aðgerðir vegu fímmtugusta
ártíðar strands franska skipsins
Pourqoui Pas? við fslandsstrendur.
Af því tilefni mun skip úr franska
flotanum heimsækja ísland og sýn-
ingar verða haldnar í Frakklandi.
Það kom fram ánægja af beggja
hálfu með framkvæmd samningsins
frá 1983 um menningarsamskiptin.
Ýmsar áætlanir eru á pijónunum
um að auka þau, m.a. er í bígerð
að franskur ballettflokkur og þekkt-
ur barítónsöngvari heimsæki ísland
á Listahátíð næsta sumar."
Ræddu vandamál
vegna EB
Franski aðstoðarútanríkisráð-
herrann sagði að á sviði alþjóða-
stjómmála hefði ekki komið fram
neinn grundvallarágreiningur í við-
ræðum sínum við utanríkisráð-
herra.
„Ég ræddi meðal annars um
vamarmál og Atlantshafsbandalag-
ið við Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra. Vandamál íslendinga
vegna stækkunar Evrópubanda-
lagsins var rætt sérstaklega. Ég
átti einnig viðræður við iðnaðarráð-
herra og viðskiptaráðherra um ýmis
mál. Við Matthías Bjamason við-
skiptaráðherra komust að þeirri
niðurstöðu að auka bæri viðskipta-
tengsl þjóðanna."
Um stöðuna í alþjóðastjómmál-
um sagði Jean-Michel Baylet m.a.
að stefna Frakka og Bandaríkja-
manna í geimvamarannsóknum
væru ekki andstæður. „Við tókum
ekki tilboði Bandaríkjamanna um
þátttöku í geimvamarannsóknum
undir þeirra yfirstjóm. Francois
Mitterrand, forseti Frakklands,
ákvað að bjóða öðmm þjóðum til
samvinnu í vísindarannsóknum,
áætlun sem nefnist „Eureka".
Margar þjóðir hafa lýst áhuga sín-
um á að taka þátt í þessu með
Frakklandi. Ég vil taka skýrt fram
að „Eureka" beinist síður að hem-
aði en „stjömustríðs" rannsóknir
Bandaríkjamanna. Engu að síður
em þessar áætlanir ekki í andstöðu
hver við aðra og eiga vonandi eftir
að verða í sameiningu öllum þjóðum
til framdráttar."
Jean-Michel Baylet, aðstoðamt-
anríkisráðherra, er ekki sósíalisti
eins og meirihluti ráðherra í stjóm
Fabiusar heldur vinstri-radíkali.
Hann tók þátt í að stofna hreyfíngu
vinstir-radíkala (Radicaux de Gauc-
he) og var kosinn forseti þeirra
1983. Baylet er lögfræðingur að
mennt, en hefur lengst af starfað
við blaðamennsku. Arið 1975 varð
hann forstjóri íjölmiðlahringsins
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
„La Depeche du Midi“, sem gefur
út sex blöð og tímarit og á auglýs-
:---^krifstofu og útvarpsstöð.
Á VILLERQY & BOCH
FLISUM
Rýmum fyrir nýjum flísum, og seljum restar á tilboðsverði.
Nú er hægt að gera hagstæð kaup á hinum vinsælu Villeroy og
Boch vegg- og gólfflísum, með 15-50% afslætti.
Missið ekki af þessu einstæða tækifæri.
BYGGINGAVORUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.