Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 12

Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986 AF ERLENDUM VETTVANGI EFTIR MATTHEW C. VITA • • • • SAMFELOGIN TVO f PÓLLANDI liðsforingjana árið 1941 en pólska þjóðin og sagnfræðingar einnig telja, að morðin hafi átt sér stað ári fyrr og að Sovétmenn hafí þar verið að verki. Þegar komið var í kirkjugarðinn fyrir nokkrum dögum sást, að einhver hafði skrifað með krít á granítvarðann: „1940 — Katyn“. „Þetta er sannleikurinn," sagði kona nokkur, sem var að kveikja á kerti við minnisvarðann, og benti á krotið. í Gdansk, fæðingarbæ Sam- stöðu, er annað og meira minnis- merki, þrír stórir jámkrossar til minningar um verkamennina, sem féllu í óeirðunum árið 1970. Er það til vitnis um baráttu pólskra verkamanna og jafnframt fundar- staður, Lech Walesa og aðrir leið- togar Samstöðu koma þar saman á stórum stundum. Samstaða er þó miklu meira en táknræn mynd á minnisvarða. Hún stendur fyrir umfangsmiklu starfí í mennta- og menningar- málum og mikilli útgáfustarfsemi „neðanjarðar", gefur út um 800 fréttabréf og tímarit, mörg hundr- uð bækur, kasettur, myndbönd og Samstöðudagatöl og -barm- merki. Bannaðar kvikmyndir eins og t.d. „Jámmaðurinn" eftir Andrzej Wajda, mynd um stofnun Sam- stöðu, eru reglulega sýndar á myndbandstækjum á einkaheimil- um eða í kirkjum og neðanjarðar- forlagið „Nowa“, stærsta útgáfu- fyrirtæki í landinu, hefur tekið að sér að dreifa myndböndum um landið allt. Fólk, sem sækir mynd- bandssýningamar, greiðir um 30 kr. ísl. í aðgangseyri og fer sá peningur til að kosta framleiðslu myndbandanna. Bækur eins og „Félagi Napó- leon“ og „1984“ eftir George Orwell og bæklingar eftir pólska rithöfunda, sem fá ekki verk sín gefín út opinberlega, eru prentuð í miklu upplagi og vikuriti Sam- stöðu er dreift í 40.000 eintökum. Samstöðumenn segja sjálfír, að 80% prentunarinnar séu unnin á laun í opinberum prentsmiðjum, á kvöldin eða nóttunni eftir að vinnudegi er lokið. „Fyrir 1980 voru það aðeins pólitískar vangaveltur, sem gefn- ar voru út neðanjarðar,“ segir einn Samstöðumannanna. „Nú er það hins vegar allt milli himins og jarðar, allt, sem kommúnistar amast við.“ Samkvæmt leynilegri könnun, sem stjómvöld létu gera, hafa rúmlega þrjár milljónir Pólveija, um 10% þjóðarinnar, reglulegan aðgang að fréttablöðum Sam- stöðu en allt að 70.000 manns sjá um að dreifa þeim um landið. Samstaða styður fólk einnig Qárhagslega og er það þáttur í þeirri stefnu að koma á „öðm samfélagi" fýrir utan hið opin- bera. Hún úthlutar skólastyrkjum og styður vísindalegar rannsóknir, veitir árlega verðlaun þeim, sem vel hafa staðið sig í ýmsum grein- um, og hjálpar ásamt kirkjunni fjölskyldum þeirra verkamanna, sem reknir hafa verið úr starfí eða fangelsaðir. (Höfundur er fréttamaður AP-fréttastofunnar í Póllandi.) Fólkið í kirkjunni hélt allt á spjöldum með nöfnum pólitískra fanga og margir viknuðu þegar presturinn skoraði á ráðamenn kommúnista að hætta að ofsækja pólitíska andófsmenn og leysa þá úr fangelsi. Klökkvinn vék þó brátt fyrir öðrum tilfinningum þegar fólkið rétti upp hönd, gerði sigurmerki með fingrunum og söng sálminn, sem sunginn er við allar kaþólskar messur i Póllandi, „Guð, sem vakir yfir Póllandi“. S amstaða er bönnuð en andóf á borð við messuna í Kirkju heil- ags Stanislaws Kostka í Varsjá er orðið óaðskiljanlegur hluti af lífi pólsku þjóðarinnar. Mótmæli á götum úti eru fátíð en baráttan fyrir auknu lýðræði heldur áfram. Samstaða, fyrstu ftjálsu verka- lýðsfélögin í kommúnistaríki, var stofnuð í ágúst árið 1980 eftir mikil verkföll en bönnuð með lögum skömmu eftir setningu herlaganna í desember 1981. Þrátt fyrir það rekur Samstaða mjög umfangsmikið menningar-, útgáfu- og hjálparstarf, oft í skjóli kirkjunnar, og taka þátt í þessu starfí tugþúsundir manna, sem ávallt eiga það yfír höfði sér að vera handteknir og fangelsaðir. Nú um síðustu hátíðar söfnuð- ust um 300 manns saman kvöld eitt í fundarsal Erkibiskupssafns- ins í Varsjá til að hlýða á nýja sálma eftir höfunda, sem komm- únistar hafa bannfært, menn eins og Emest Bryll og Wojciech Mlynarski. Leikarar og leikkonur, sem ekki hafa fengið að koma fram opinberlega síðan Samstaða var bönnuð, fluttu sálmana, sem voru aðallega trúarlegs eðlis en þó með pólitískum undirtón. Einn var um móður, sem skrifar bréf til sonar síns af því að hann getur ekki verið með fjölskyldunni á jólunum. Kannski var hann í fangelsi en í sálminum segir ekkert um það. í bréfinu segir m.a.: „Jólatréð hefur verið fagurlega skreytt og brátt munum við setj- ast að veisluborðinu eins og alltaf á jólum. Ég skrifa þetta bréf til þín grátandi... Við trúum því öll, að þú komir fljótt aftur.“ í nóvember sl. voru um 210 pólitískir fangar leystir úr haldi en þrátt fyrir það halda hand- tökumar áfram. Enginn veit með vissu hve margir eru í fangelsi vegna stjómmálaskoðana sinna. Andófíð og andstaðan eru þó ekki aðeins látin í ljós innan öruggra veggja kirkjunnar. Í Powazki- kirkjugarði í Varsjá er minnis- merki um 4.000 pólska liðsfor- ingja, sem myrtir voru í Katyn- skógi í Sovétríkjunum á dögum síðari heimsstyijaldar. í áletruninni á minnismerkinu er dagsetningunni sleppt og eru fyrir því pólitískar ástæður. Sov- étmenn og pólska stjómin halda því fram, að nasistar hafí drepið Sigurmerkið og fáni Samstöðu eru einkennandi fyrir „hitt sam- félapð“, það, sem er fyrir utan það opinbera. Það var skræpa Bókmenntir Jenna Jensdóttir Andrés Indriðason Það var skræpa Myndir eftir Brian Pilkington Námsgagnastofnun 1985 Saga úr hversdagsleikanum verður til litrík og sönn þegar slyngur höfundur skráir hana á blöð sín. Vekur minningar langt aftur í tím- ann, er litlir pollar í bæjum og kauptúnum áttu sér dúfur og smíð- uðu hús handa þeim. Háðu sín hljóðlátu stríð og keppni um verð- mætar dúfur. Skiptust í tvo hópa í viðhorfi sínu til málleysingjanna. Annars vegar þeir sem bám í bijósti sér nokkra harðneskju gagnvart lítilmagna meðal dúfna. Og hinir sem settu GUNNHILDAR- GERÐISÆTT Bókmenntir Sigurjón Björnsson Gunnhildargerðisætt. Niðjatal Sigmundar Jónssonar og Guðrúnar Ingibjargar Sig- fúsdóttur. íslenskt ættfræði- safn. Niðjatal II. Ritstjórn: Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn-bókaforlag. Reykja- vík 1985.176 bls. Ættfeður Gunnhildargerðisættar, sem hér er rakið frá, voru þau hjónin Sigmundur Jónsson og Guðrún Ingi- björg Sigfúsdóttir. Þau bjuggu í Gunnhildargerði í Hróarstungu frá því á ofanverðri 19. cld og til ársins 1919. Þau hjón eignuðust tíu böm og komust níu þeirra til fullorðins aldurs. Frá átta þeirra eru afkom- endur og eru þeir taldir hér. AUs eru afkomendur Gunnhildargerðishjóna rúmlega 300. Langflestir eru komnir af Björgu Sigmundsdóttur. Framan við sjálft niðjatalið eru nokkrar ritgerðir (31 bls.) um ætt- foreldrana, skráðar af skyldum og Flugbj örgunars veitin: Fimm auka- vinningar dregnirút Á Þorláksmessu voru dregnir út fimm aukavinningar í lands- happdrætti Flugbjörgunarsveit- anna. Vinningar komu á eftirtal- in númer: Nordmende-myndbandstæki é miða númer 46886 og 111425 Nordmende-myndbandsupptöku- tæki á miða númer 108328 og 145694. Mclntosh-heimilistölva á miða númer 115452. Væntanlegir vinningshafar snúi sér til Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík í síma 91-25851. Aðrir vinningar í landshappdrætti Flug- björgunarsveitanna, 189 talsins, verða dregnir út þann 17. febrúar nk. kunnugum, og aftan við niðjatalið er ritgerð um „Gamla bæinn í Gunn- hildargerði" ásamt teikningum og uppdráttum. Er ritgerðin skráð af Sigfúsi B. Sigmundssyni. Þá eru framættir beggja hjóna raktar all- langt aftur í aldimar eftir því sem heilmikldir leyfðu og að lokum er nafnaskrá yfír niðjatalið. Niðjatal hvers af bömum Sig- mundar og Ingibjargar hefst á allýt- arlegu æviágripi og fylgir jafnan mynd af heimili viðkomanda svo og mynd af honum/henni sjálfum/ sjálfri ásamt maka. Sjálf niðjaskrán- ingin er með sama sniði og í Niðja- tali I í þessari ritröð og vísast því til umsagnar um það rit (Mbl. 15. des. 1985). Þó er það frávik að öllu meira er hér sagt um æviferil við- komanda. Mikið er af myndum í bókinni og eru þær ávallt þar sem fjallað er um einstaklinginn. Eins og fram hefur komið er þetta fámennt niðjatal. Einungis fímm ættliðir eru framgengnir þar sem lengst er komið. Hafa niðjamir dreifst vítt um land, þó að enn sé líklega mikill meiri hluti á Austur- landi. Ættfræðigrúskurum færir niðjatal þetta vegna þess hve stutt það er, takmarkaðan fróðleik, enda þótt rækileg framættaskráning bæti raunar nokkuð úr. Þar sem niðjatalið er svo stutt hefði að ósekju mátt segja meiri deili á mökum niðjanna, þ.e. rekja ættir þeirra eitthvað aftur (en það fínnst mér raunar alltaf kostur við niðjatöl). Ritnefnd úr hópi niðja hefur staðið að riti þessu undir leiðsögn Þorsteins Jónssonar ættfræðings og með að- stoð ættfræðinganna Sigurgeirs Þorgrímssonar og Theodórs Arna- sonar. Enda þótt mér þykir þetta niðjatal æði stutt, er þó sá einn kostur við, sem ekki má undanfella að minnast á. Niðjamir sjálfír fá hér mjög handhæga yfírsýn yfír skyldulið sitt og ættu hér eftir að geta haft á reiðum höndum fjórmenningsskyld- leika. En sá hlýtur einmitt að vera megintilgangur niðjatala að stuðla að góðri þekkingu manna á frænd- garði sínum. Mjög er vel vandað til þessa rits á alla lund og er verulega ánægjulegt að sjá hversu glæsileg ritröð er hér í uppsiglingu. Er vonandi að fram- hald geti orðið á. 11 liitTTi jffnn ~

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.