Morgunblaðið - 09.01.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9.JANÚAR1986
13
Andrés Indriðason höfundur.
velferð þessara vina sinna ofar öllu
öðru. Kannski þeirra vegna þreifst
þetta samfélag vel - undantekn-
ingalítið.
Og sama sagan gerist enn. í
grundvallaratriðum eins — þótt
samkeppni og hættur í þjóðfélaginu
hafí aukist hér sem á öðrum vett-
vangi. Böm að byggja dúfnakofa —
og veiða dúfur.
Tveir harðsnúnir stráklingar sem
líta stórt á sig og veröld sína hefja
byggingu á dúfnakofa. Þeir velja
sér hjálparlið að geðþótta og með
skilyrðum. Vísa vini burtu.
Einmana og sár byijar vinurinn
á eigin framkvæmdum. Fullorðnu
mennimir — smiðimir — em í
baksýn. Til þeirra leitar hann. Þeir
eig^a efnivið, þeir veita og em vin-
gjamlegir, skapa tækifæri til stór-
ræða í litlum hug — hjá litlum
höndum. „Skræpan", lítilmagni
meðal dúfna í samfélagi bamanna,
verður orsök þess að telpa, jafnaldri
hans, hverfur frá hinum til hans.
Hinir hafa misþyrmt „skræpunni",
hún er ekki „toppfugí". Sameigin-
lega breyta þau dúfnakofanum í
sjúkrastofu. Þar á „skræpan" að
vera.
Smiðimir — vinir þeirra — gera
þeim allt auðveldara.
En strengimir í bijóstum hinna
fullorðnu em veðraðir. Þeir hrærast
ekki á sama hátt og fíngerðir glitr-
andi strengir í ungu bijósti er skelf-
ingin dynur yfír. — Dúfnakofínn
er jafnaður við jörðu — véltæknin
hefíir fengið sitt.
Ósköp er eitt skræpuiíf mikils
virði og fögnuður í ungum sálum
einlægur, þegar því varð bjargað.
Og ósköp er heimurinn dapur þegar
sorgin kemur í heimsókn.
Ungt mannlíf á sín form og eftir
þeim er farið. Enginn hávaði þegar
hinir koma með „toppdúfu".
Mannvit blómstrar í bijóstum
þeirra tveggja þegar þau hjóla frá
sorg sinni móti sólu og nýrri gleði.
Andrés Indriðason hefur ritað hér
listilega góða sögu af miklum skiln-
ingi á litlum sálum í leik og starfi.
Það er ánægjulegt að Námsgagna-
stofnun skuli láta sig treglæs böm
og byijendur svo miklu varða sem
hún nú hefur sýnt og sannað.
Eg er ekki sátt við þessa uppsetn-
ingu á íslenskum bamabókum —
eins og um ljóð sé að ræða — eink-
um órímuð.
Kannski er ég ein um það hér. Ég
veit við höfum tekið þetta upp eftir
frændum vomm á Norðurlöndum.
Samhljómar hinna hárfínu þátta
tungunnar, hrynjandi, fegurðar og
tónræmis em hvergi jafn viðkvæmir
og í ljóðinu, sem er æðsta ijáning
orðsins.
Ég tel að okkur beri því að varð-
veita eðli þess og sérstæða uppsetn-
ingu fyrir sig. Annað getur mglað
og slævt tilfinningu fyrir ljóði. Þau
ólíku form sem tungan hefíir mark-
að sér frá öndverðu komu innan
frá. Sagan er skemmtilega mynd-
skreytt.
Orthulf Prunner
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Orthulf Pmnner er orgelleikari
við Háteigskirkju og um síðustu
helgi flutti hann á nýja orgelið í
Dómkirkjunni sex orgelsónötur
eftir Bach. Orgelsónötur þessar
em þriggja radda og meðal þeirra
verka er mörgum orgelleikaranum
stendur stuggur af og því sjaldnar
flutt en mörg önnur orgelverk
meistarans. Að flytja allar sónöt-
umar á einum tónleikum em
nokkur tíðindi og að gera það jafn
vel og fallega og Orthulf Pmnner
skilaði þessum öndvegis verkum,
em einnig mikil tíðindi. Eitt af
því sem fór vel við verkin var
einföld raddstiiling orgelsins, og
að aldrei var gerð tilraun til að
blása verkin út, heldur leitast við
að draga fram skírleika og sjálf-
stæði raddanna. Þar fyrir varð
flutningurinn léttari í blæ en oft
má heyra í meðferð þessara verka.
Allar sónötumar em sjötíu og
fímm blaðsíður og sameiginlegt
innbyrðis er kaflaskipanin, þ.e.
þrír kaflar með hægum miðþætti.
Verkin em talin samin um 1727,
í Leipzig. Ur þriðju sónötunni
notar Bach síðar í einn af konsert-
unum (nr. 1044) og sú fjórða, er
endurraddsetning úr kantötunni
Die Himmel erzáhlen die Ehre
Gottes. Verkin em þrátt fyrir
þetta sérkennilega samstæð en
einnig ólík hvað snertir stefgerðir
og stíl. Þau em öll án nokkurra
forskifta um styrk og í flutningi
Pmnners vom þessi einkenni látin
njóta sín. Léttleiki sá er einkenndi
Dr. Orthulf Prunner.
leik Pmnners á mjög vel við verkin
og fyrir bragðið vom þetta stuttir
og skemmtilegir tónleikar. Með
þessum tónleikum hefur Orthulf
Pmnner skipað sér í röð fremstu
orgelleikara hér á landi.
TÓNLEIKAR ORGANISTA
Sjöundu tónleikar Félags ís-
lenskra orgelleikara fóm fram í
Dómkirkjunni og komu þar fram
sjö orgelleikarar. Fyrri hluti tón-
leikanna vom að efni til sálm-
forleikir. Sálmforleikir eftir meist-
ara Bach era sumir hveijir meist-
aralega gerðir en innan um em
tónverk, sem bæði era lítil að
vöxtum og innihaldi. Að leika slík
verk sérstaklega fer ekki vel, en
í réttu samhengi, t.d. við messu,
eða sem hluta af samfelldri heild
er allt annað mál. Þegar við
bætist að flutningurinn er í hönd-
um margra flytjenda, sem sumir
hveijir ráða ekki við að flytja
verkin á boðlegan máta, er um
að ræða í hæsta máta vafasaman
greiða, bæði við flytjendur og svo
ekki sé talað um hlustendur. Á
seinni hluta tónleikanna vom flutt
stærri og viðameiri verk en þar
má af flytjendum helst nefna
Glúm Gylfason og Bjöm Sólbergs-
son. Giúmur flutti tvö verk, það
fyrra er ekki eftir Bach, heldur
talið eftir J. L. Krebs. Seinna
verkið er meðal meiri háttar verka
meistarans og þar mátti heyra að
Glúmur Gylfason er orðinn hörku
orgelleikari, þó enn eigi hann
ógengin nokkur þrep upp þann
langa stallaveg er liggur upp að
Pamassum. Verkið sem Glúmur
lék var Tokkata, Agagio og Fuga
í C-dúr, sem talið er að meistarinn
hafí samið á Weimar-áram sínum,
1712 til 17, glæsilegt og erfitt
verk. Síðasti orgelleikarinn, Bjöm
Sólbergsson, er einn af okkar
efnilegustu orgelleikuram og
flutti hann ijögur verk, fyrst sálm-
forleik um sálminn Ofan af himn-
um hér kom ég og síðan kanón-
ísku tilbrigðin yfír sama sáim, sem
era feikna erfiðar tónsmíðar.
Þriðja verkið var Aria í F, sem
er endurritun meistarans á lagi
eftir Couperin. Síðasta verkið var
Fantasía í G-dúr, skemmtilegt
verk en eitt af þeim verkum, sem
Bach umritaði fyrir orgel. Bjöm
Sólbergsson er feikna efnilegur
örgelleikari þó ekki flytti hann
„óskaverk" að þessu sinni. Um
margt vom þetta slakir tónleikar
og aðallega vegna lélegs flutnings
í fyrri hlutanum.
ÞRJÁR SPENNANDI FERÐIR
í HÆSTA GÆÐAFEOKKI
Á HAGSTÆÐU VERÐI
Á nokkrum síöustu árum hefur Úrval boðið einstaka ferðir til framandi landa. Nú
getum við með stolti boðið þrjár ólíkar en stórkostlegar ferðir til spennandi staða.
3 VIKUR í AUSTURLÖNDUM FJÆR
Ferðin er í samvinnu við thailenska flugfélagið THAI sem þekkt er af öryggi og góðri
þjónustu. Fyrir valinu urðu þær þrjár borgir í Austurlöndum fjær, sem hvað ólikastar
eru þ.e. Bangkok, Hong Kong og Singapore. Dvalið verður að meðaltali 3 nætur í
hverri borg. Auk þess er slappað af á hinni frægu baðströnd Thailands, Pattaya, í 10
daga og notið lystisemda lúxushótelsins Royal Cliff. Ókeypis skoðunarferð er í hverri
borg og alls staðar dvalið á lúxuxhótelum. Möguleiki er að stoppa í Kaupmannahöfn
á bakaleið. Brottför 21. febrúar. Áætlað verð pr. mann í tvíbýli kr. *92.650,-
2]A VIKNA PÁSKAFERÐ í BRASILÍU
Flogið er þann 25. mars með brasilíska flugfélaginu Varig til Brasilíu. Markmiðið verður
að kynnast landi og þjóð sem best auk þess að njóta lystisemda Brasilíu. Siglt veröur á
Amason, Iguacu fossarnir skoðaðir, einnig borgin Brasilía, ein nýtískulegasta höfuðborg
heims og síðast en ekki síst dvalið á Rió og hinar margvislegu hliðar hennar kannaðar.
Ýmsar skoðunarferðir og lúxushótel innifalin. Möguleiki á að stoppa i London i bakaleið.
Áætlað verð pr. mann í tvíbýli kr. ‘82.300,-
SIGLING UM KARABISKA HAFIÐ
Brottför er 9. október og verður siglt á lúxusskipi Royal Caribbeán Cruise Line, — 5
MS Sun Viking. Skemmtisiglingin stendur yfir í hálfan mánuð og er möguleiki að ®
framlengja dvölinni á Miami eða London um viku. Aðeins er gist í fyrsta flokks klefum s
er snúa að sjó og fullt fæði um borð er innifalið í verði.
Komið verður til eftirtalinna staða: Virgin Islands, St. Thomas, St. Kitts, Martinique,
Grenada, Barbados, Dominica, St. Maaren, Puerto Rico, St. Croix og Florida.
Áætlað verö pr. mann í tvíbýli er kr. ‘116.000,- Aukavika á Miami, kr. ‘11.000,- pr. mann í tvíbýli.
FERÐASKRIFSTOFAH ÚRVAL
YAPIG
'&taxiúoaii
Ferdaskrifstofan Úrval við Austurvöll, sími (91)-26900.
*Allt skv. gengi 27.12.1985.