Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 20

Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986 Frá álf agleði Hattarmanna. Egilsstaðir: Álfagleði á þrettánda Egilsstöðum, 7. janúar. Iþróttafélagið Höttur gekkst fyrir áifagleði hér á Egilsstöð- um í gær, á þrettánda degi jóla. Fjöldi manns safnaðist saman við íþróttahúsið — en þaðan var gengið fylktu liði um bæinn og fóru blysberar fyrir göngunni ásamt álfakóngi og álfadrottn- ingu í þar til gerðum skraut- sleða sem gæðingur einn dró. Hersingin staðnæmdist siðan á íþróttavellinum þar sem upp- hófst mikil álfagleði eftir að kveikt hafði verið í myndarleg- um bálkesti. Álfakóngur lét þess getið í ávarpi sínu til manna að hvergi væri lífvænlegra fyrir álfa og aðra hulda vætti að búa en á Egilsstöð- um. Má þetta rétt vera — því að mikill fjöldi torkennilegra vera kom a.m.k. til álfagleðinnar, gamlar og hrumar nomir, bergris- ar, diýslar auk hjarðsveina kóngs og drottningar. Við brennuna voru þjóðkunn þrettándalög kyijuð og dragspilin þanin. Þá var efnt til veglegrar flugeldasýningar. Þrettándagleði sem þessi er ekki hefðbundin skemmtun hér um slóðir — en þó hafa ýmis fé- lagasamtök hér áður gengist fyrir þvílíkri þrettándagleði. En hafí fréttaritari skilið þá Hattarmenn rétt eru þeir nú staðráðnir í því að láta ekki álfagleði á þrettánda misfarast hér eftir. Veður var í gær eins og best verður á kosið til slíkrar útisam- komu — enda tóku þátt í leiknum um átta hundruð manns. - óiafur Bolvíkingum fæddum 1 fyrra afhent skírnargjöf UM MIÐJAN desember bauð stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur öUum Bolvíkingum sem fæddir voru á árinu 1985 ásamt foreld- rum tíl veislu þar sem þessum nýju borgurum voru afhentar skímargjafir frá Sparisjóðnum. Þama voru samankomnir þeir tuttugu einstaklingar sem fæddust í Bolungarvík á sl. ári, og veittu þeir móttöku hver fyrir sig spari- sjóðsbók með 2.500 króna innstæðu og þar að auki sparibauk sem án efa kemur í góðar þarfír í mark- vissri vinnu þessara einstaklinga til að auka sína innstæðu því eins og Sólberg Jónsson sparisjóðsstjóri vék að í ávarpi sínu við þetta tækifæri, þá er aftur í gildi orðtækið „grædd- ur er geymdur eyrir" með betri verðtryggingu spariljár og vonandi varanlegri hjöðnum verðbólgu. Hér eftir mun Sparisjóður Bol- ungarvíkur færa nýfæddum Bolvík- Sólberg Jónsson sparisjóðsstjórí afhenti skímargjafimar fyrír hönd sparísjóðsins. ingum skímargjöf. Innlánsaukning sparisjóðsins nam 43% á síðasta ári. Bol víkingamir 20 sem fæddust á sl. árí ásamt foreldrum. Grindavík: Námskeið í slysa- vörnum fyrir sjómenn Grindavík, 5. janúar. AÐ frumkvæði björgunarsveitar- innar Þorbjöms í Grindavík var haldið fjölþætt námskeið um slysavamir fyrir sjómenn 3.-5. janúar í húsi björgunarsveitar- innar við Hafnargötu. Námskeið- ið var verklegt og bóklegt. Þorvaldur Axelsson leiðbeinir á námskeiðinu í Grindavík. Aðalstjómendur voru Þorvaldur Axelsson, erindreki Slysavamafé- lags íslands, sem hefur sérhæft sig í öryggismálum sjómanna, og Hös- kuldur Einarsson, frá Landssam- bandi slökkviliðsmanna, sern leið- beindi um eldvamir í samvinnu við Slökkvilið Grindavíkur og kenndi meðferð slökkvitækja og reykköf- un. Verkleg æfíng var í meðferð gúmmíbáta á sjó og notkun flug- línutækja. Á námskeiðið komust aðeins 27 yfir- og undirmenn á fískiskipum, en fyrirhugað er annað námskeið fyrir þá sem frá þurftu að hverfa því hvert námskeið er miðað við um 25 nema. — Guðfmnur Hópurínn, sem brautskráðist frá Fjölbrautaskóla Suðumesja. Keflavík: 79 brautskráðir frá Fjöl- brautaskóla Suðurnesja Keflavík, 2. ianúar. Keflavík, 2. janúar. 21. DESEMBER lauk 19. starfs- önn Fjölbrautaskóla Suðuraesja með brautskráningu nemenda i Ytri-Njarðvíkurkirkju. Var þetta fjölmennasti hópurínn sem brautskráðst hefur frá skólan- um, en frá upphafi hefur hann útskrífað 807 nemendur. Fjölbrautaskóli Suðumesja er í mikilli þenslu, bæði hvað snertir fjölda nemenda og þær námsgrein- ar sem kenndar em. Nú útskrifuð- ust nemendur í fyrsta skipti úr rétt- indanámi skipstjóra og er það einn- ig í fyrsta sinn sem skóli á Suður- nesjum brautskráir skipstjóra. Að þessu sinni skiptist útskriftarhópur- inn þannig: 17 nemendur af flug- liðabraut, af tveggja ára viðskipta- braut einn nemandi, 6 nemendur af iðnbrautum, einn af verknáms- braut, 17 af stúdentsbrautum, 21 úr réttindanámi vélstjóra og 16 úr réttindanámi skipstjóra. í tali aðstoðarskólameistara, Jón Sigurðsson tekur við blóm- vendi frá Hjálmari Áraasyni skólameistara i tilefni af þvi að hann var 800. nemandinn sem brautskráðist frá skólanum. Sturlaugs Ólafssonar, kom fram að aldrei hafa fleiri sótt nám við skól- ann en í vetur, eða um 1200 talsins á ýmsum sviðum. Minntist hann á þá nýbreytni sem skólinn hefur bryddað uppá með starfsnámi og námsflokkum. Hjálmar Ámason skólameistari kvaddi brautskráða og kom víða við í ræðu sinni. Sagði hann meðal annars að kennsla við skólann hafí farið fram á 8 stöðum í vetur og vonaðist hann eftir úr- bætum strax. Ræddi hann einnig um vilja skólayfírvalda til að sinna brautum á sviði sjávarútvegs og fískeldis til muna betur. Fjöldamörg verðlaun voru veitt til þeirra nema sem sköruðu framúr í ýmsum sérgreinum og einnig veittu fulltrúar Vélstjórafélags Suðumesja og Skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Vísis viðurkenn- ingu þeim mönnum sem bestu ein- kunn fengu í réttindanámi vélstjóra og skipstjóra. Fjöldi gesta var við brautskrán- inguna og söng kór FS við athöfn- ina undir stjóm Kjartans Más Kjart- anssonar. — EFI. ttgargrgii!*.-?** aegesa uæaaagg;-. .attRJiSsr '':TSXBmas*BeBBB!!5*BHBE

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.