Morgunblaðið - 09.01.1986, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 09.01.1986, Qupperneq 21
GEB/SÍA MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986 21 Morgunblaðið/Kári Jónsson Kór skipaður 30 ungum skátum söng við undirleik blásarakvintetts Tónlistarskólans á Sauðárkróki. Sauðárkrókur: Eldri borgarar í fagnaði Sauðárkróki, 5. janúar. FÉLAGSMÁLARÁÐ Sauðár- króks bauð rosknum borgurum i bænum til fagnaðar í Hótel Mælifelli sl. föstudag. Um 70 manns þágu boðið og nutu veglegra veitinga og góðrar skemmtunar. Matthías Viktorsson félags- málastjóri setti og stjómaði sam- komunni. Blásarakvintett Tónlist- arskólans á Sauðárkróki lék nokk- ur lög og kór skipaður 30 ungum skátum söng. Sveinn Friðvinsson las upp og Friðrik J. Friðriksson héraðslæknir minntist þess að rétt 30 ár eru frá því að hann hóf störf meðal Skagfírðinga. Að lokum var stiginn dans við harm- onikuleik Geirmundar Valtýsson- ar. Þótti þessi nýársfagnaður takast vel í alla staði. Kárí Dagskráratríðin vöktu hrifningu viðstaddra. Nýtt íþróttahús vígt í Grindavík Grindavík, 5. janúar. NÝTT íþróttahús við Austurveg var vígt hér í Grindavík sunnu- daginn 5. janúar. Framkvæmdastjóri bygginga- nefndar fyrir hönd bæjarstjómar, Gunnar Vilbergsson, stjómaði at- höfninni. Formaður bygginga- nefndar, Aðalgeir Jóhannsson, lýsti byggingu hússins, sem er nú 1537 fermetrar, en verður fullbúið 2122 fermetrar. Byggingarkostnaður er nú 40 milljónir. Verkfræðingur er Ágúst Jónsson, en innanhússarki- tekt Jón Ólafsson, utanhúss Guð- mundur Þór Pálsson. I húsinu em tveir körfuknattleiksvellir þversum eða einn langsum. Forstöðumaður hússins verður Guðjón Sigurðsson. Séra Öm Bárður Jónsson vígði húsið og flutti bæn. Menntamála- ráðherra, Sverrir Hermannsson, heiðraði Grindvíkinga með nærvera sinni og flutti ræðu. Reynir Karls- son, íþróttafulltrúi ríkisins, flutti ávarp. Jón Ármann Héðinsson tal- aði fyrir hönd framkvæmdastjómar í SÍ og fleiri fluttu ávörp. í tilefni vígslunnar vora íþrótta- sýningar, t.d. var Jóhannes Har- aldsson, júdómeistari, með íþrótta- sýningu eldri og yngri nemenda íþróttahópar sýndu listir sínar, meðal annars júdóflokkar úr Grinda- vík. Séra Órn Bárður Jónsson flutti bæn og vígði íþróttahúsið. sinna. Þar sást hvemig iítill getur fellt þann stóra í júdó. Gestir Grind- víkinga meðal íþróttamanna vora flokkar Armenninga úr Reylq'avík. Sérstaka athygli vöktu stúlkur, sem sýndu frábæra leikni í leikfími. Auk þess vora ýmsir leikir heimamanna, svo sem handknattleikur, körfu- knattleikur og innanhússknatt- spyma. í tilefni dagsins bauð bæjar- stjóm öllum bömum í bíó í félags- heimilinu Festi þar sem var fullt hús. — Guðfinnur . ~j.-. .. þegar við segjum útsaki - pá meawm við útsala aÍhokmrehir MARKAÐURVÐSUND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.