Morgunblaðið - 09.01.1986, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986
„Langamma eignaðist tvö pör ..
Herrakanínur
teknar til starfa
Sjö þúsund
karlmenn sóttu um
Sagt var frá því hér á síðunni
fyrir nokkru að til stæði að
„herrakanínur" tækju til starfa
hjá Playboy Empire-klúbbnum í
New York.
Nú er semsé búið að ráða sextán
„karlkanínur" á móti þeim 52
kvenkyns sem þar starfa og það
voru um sjö þúsund herrar sem
föluðust eftir starfinu.
Kröfurnar sem gerðar voru til
umsækjenda voru, að nóg væri af
bringuhárum og að drengimir
gætu haldið uppi samræðum án
vandræða við viðskiptavinina.
Heiðrún
í verslunarleiðangri
DIDDU
með tvíburastelpurnar sínar
tekur til við að syngja á nýjan
leik.
„Stelpumar mínar voru svo
samvinnuþýðar á meðan á
meðgöngunni stóð að það
raskaðist eiginlega ekkert af
því sem ég var búin að ákveða
að gera.
Það stendur svo til núna í
febrúar að halda tónleika með
Ladda og íslensku hljómsveit-
inni ef allt gengur að óskum.
Síðan er á dagskrá að halda
í ferðalag með fjölskylduna til
Italíu, því það var eiginlega
það eina sem ég varð að fresta
þegar ég varð ófrísk. Þar
hyggst ég stunda framhalds-
nám og tók inntökupróf í skóla
í apríl síðastliðnum.
Þetta er býsna sérhæft nám,
það er að segja ég mun vinna
að ákveðnum óperuhlutverk-
um. Hvað við komum til með
að dvelja þarna lengi er óvíst
og verður bara að ráðast með
tímanum."
- Til hamingju Sigrún með
tvær indælar telpur.
Heiðrún Ásta Guðmunds-
dóttir vann á dögunum
í teiknimyndasamkeppni og
er hún á sínum tíma var innt
eftir því hvemig hún hygðist
verja verðlaunafé sínu sagðist
hún meðal annars ætla að
kaupa sparibaukinn Emmu
(konuna hans Óskars) handa
sér og bróður sínum.
Þegar Heiðrún fór svo af
stað í verslunarleiðangur festi
ljósmyndari hana 'á filmu.
„Viltu fá að vita hvað ég er
með í pokunum," sagði Heiðr-
ún ogbrosti.
„Eg er með tvær Emmur,
eina fyrir Siguijón bróður
minn og hina fyrir mig. Svo
eru hérna ofan í pokunum
jólasveinahúfur handa Emm-
unum, bók, penni og límmiðar.
Iðnaðarbankinn gaf mér þetta
alltsaman. Jú og svo er ég líka
með osta héma sem hún
mamma mín var að kaupa.“
— Þú ert þá ekki búin að
eyða öllum verðlaunapening-
unum þínum?
„Ég er ekki alveg viss
hvemig það er því pabbi
geymir þá fyrir mig.“
Heiðrún Ásta með Óskara og Emmur i poka.
Það voru sjö mínútur á
milli þeirra og við vorum
öll orðin voðalega spennt að
sá það rétt fyrir miðnættið
hvort þær myndu hafa það af
að koma í heiminn sama dag-
inn,“ sagði Diddú eða Sigrún
Hjálmtýsdóttir sem hinn þrí-
tugasta desember síðastliðinn
eignaðist tvíburastúlkur.
„Fæðingin gekk afskaplega
vel, það tók mig ekki nema
fjóra tíma frá því að verkir
hófust, og þangað til tvíbur-
amir vom fæddir. Langamma
mín eignaðist tvö pör, fyrst
stúlkur svo drengina," bætti
hún svo við í gamansömum
tón.
Telpumar eru afskaplega
ólíkar í útliti, önnur með mikið
hár, hin ekki og svo framvegis
og sú sem kom á undan í
heiminn vó 12 merkur, en
seinni daman rúmlega níu
merkur og báðar voru þær 49
sentimetrar á lengdina.
Sú stærri var reyndar löngu
búin að gera upp hug sinn með
að koma á undan, því strax á
sjöunda mánuði sneri höfuðið
á henni niður. Hún er enn sem
komið er ákveðnari og ræðst
til dæmis á matinn sinn með
miklu írafári á meðan hin er
ósköp hógvær.“
Meðgangan virtist ekki
halda Sigrúnu frá söngnum og
ef að líkum lætur líður ekki
langur tími þangað til hún
Morgunblaðið/Júlíus
Diddú ásamt dætrunum sem eru afskaplega ólíkar að sjá að minnsta kosti í einni svipan. Að sögn Diddú
er þegar búið að velja þeim dömum nöfn en ekki má Segja alþjóð frá strax. Faðirinn, Þorkell Jóelsson,
var þvi miður ekki á staðnum er Ijósmyndara bar að garði.
. é'éi'