Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 52
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986
VERÐ LAUSASÖLU 40 KR.
Bandaríkjamarkaður:
Verð á frystri
ýsu hækkaði
um áramótin
Flestar f isktegundir hækkuðu nokkuð á síðasta ári
VERÐ á frystum fiski héðan hefur hækkað nokkuð í Bandaríkjunum
á síðasta ári. Karfi hækkaði til dæmis um 20% og ýsa hækkaði um
30 sent um áramótin, úr 1,80 dölum í 2,10.
Magnús Gústafsson, forstjóri
Coldwater Seafood Corporation,
dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í Bandaríkjun-
um, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að verðið á flestum flskteg-
undum frá íslandi hefði þokazt
nokkuð upp á við á síðasta ári.
Horfur um verðþróun færu síðan
eftir því, hvemig veiðar Kanada-
manna gengju og hvemig vertíðin
yrði í Eystrasalti.
Magnús sagði að ýsan hefði um
ármót hækkað í 2,10 dali úr 1,80.
Karfi hefði hækkað um 20% á síð-
asta ári, ýsu- og þorskblokkir hefðu
einnig farið upp, en aðrar þorsk-
afurðir hefði nokkum veginn staðið
í stað. Þá hefði verð á ufsa aðeins
lagazt.
30% lækkun
'á kísiljárni
VERÐ á kísiljárni lækkaði um nærri 30% á síðastliðnu ári, örast á
síðari helmingi ársins. Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri íslenska
járnblendifélagsins hf. á Grundartanga sagði að verðið væri nú
komið niður undir þau mörk að verksmiðjan færi að tapa fé á fram-
leiðslunni, en reksturinn hefði verið í járnum á árinu 1985. Verðið
er orðið það lágt að Evrópubandalagið er nú búið að setja nýtt lág-
marksverð til að veija verksmiðjur aðildarlandanna.
Að sögn Jóns er ástæða verð-
lækkunarinnar offramleiðsla á kísil-
jámi sem hófst þegar verðið náði
hámarki á árinu 1984. Sagði Jón
að eftirspumin hefði hinsvegar
haldist góð. Jámblendiverksmiðjan
'**hefur ekki safnað birgðum og eru
birgðir hennar minni en gengur og
gerist hjá framleiðendum kísiljáms.
Jón sagði að menn vonuðust til að
verð á kísiljámi færi ekki neðar,
enda væri það komið niður undir
það sem það var lægst á árunum
1982-83, en samanburður erfiður
vegna mismunandi breytinga gjald-
miðia. Jón sagði að Jámblendifélag-
ið væri mun betur í stakk búið til
að mæta þessari verðlækkun en á
ámnum 1982-83 eftir þá endurfjár-
mögnun sem fór fram á hlutafélag-
inu á árinu 1984. Nú væri fram-
leiðslukostnaður hjá þeim svipaður
og hjá samkeppnisfyrirtækjunum.
Morgunblaðið/Júlíus.
Víkingssigfur
VÍKINGUR_ sigraði Val 19:16 í æsispennandi uppgjöri tveggja
efstu liða íslandsmótsins í handknattleik í Laugardalshöll í
gærkvöldi. Víkingur á mesta möguleika að verða íslansmeistari,
dugir jafntefli í síðustu umferðinni tU þess að tryggja sér titil-
inn. Aðeins Valsmenn geta ógnað sigri Víkings, því Stjarnan
tapaði fyrir FH í gærkvöldi 31:29. Mikil harka var í leiknum i
gærkvöldi og hér má sjá Víkinginn Steinar Birgisson fá óblíðar
móttökur hjá Geir Sveinssyni.
Starfsmenn Lánasjóðsins
eru 25 en heimilt að ráða 6
STARFSMENN Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) eru fjórum
sinnum fleiri en heimild er fyrir að ráða. Um síðustu áramót voru
þeir 25, þar af þrír í hálfu starfi, en heimild er fyrir ráðningu í sex
stöðugUdi á skrifstofu sjóðsins. Auk þess greiðir LÍN af eigin fé
laun manna í 2,5 stöðugildum hjá VeðdeUd Landsbanka Islands.
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að ríkisendurskoðun hafi
gert athugasemdir við ráðningar
fyrrverandi framkvæmdastjóra LÍN
á starfsfólki umfram heimildir. í
athugasemdum ríkisendurskoðunar
við reikningsskil LÍN fyrir árið 1984
er fundið að því að starfsmenn í
fullu starfl séu 13, en heimiluð
stöðugildi 6. Vakin er athygli á
því, að launagjöld sjóðsins hafi á
árinu 1984 samtals verið 8,4 millj-
ónir króna, en samkvæmt fjárlögum
hafi þau átt að vera 2,6 milljónir.
Mismunurinn er 5,8 milljónir.
Þá hefur ríkisendurskoðun gagn-
rýnt yfirvinnu starfsmanna sjóðs-
ins, sem hún telur óhóflega, reikn-
ingsskil vegna ferðalaga starfs-
manna sjóðsins til útlanda og fleira.
í maímánuði sl. sendi launadeild
fjármálaráðuneytisins LÍN bréf
vegna erindis sem borist hafði frá
sjóðnum um endurmat á stöðu
framkvæmdastjóra' og fulltrúa
hans. í bréfinu segir, að í skipuriti
og starfslýsingum, sem erindi LÍN
hafl fylgt, sé ranglega farið með
uppiýsingar um launaflokka starfs-
manna. Þar séu taldir upp ýmsir
starfsmenn, sem ekki séu á launa-
skrá fjármálai'áðuneytisins og eng-
in vitneskja fyrirliggjandi um störf
þeirra, né ákvörðun um launa-
flokka, sem virðist ekki vera í
samræmi við gildandi kjarasamn-
inga. Er, í athugasemd ríkisendur-
skoðunar frá því f júlí 1985 er óskað
skýringa á því hvers vegna launa-
deild ijármálaráðuneytis hafi ekki
verið falið að greiða öll laun fyrir
sjóðinn.
í svari Siguijóns Valdimarsson-
ar, fyrrverandi framkvæmdastjóra
LÍN, til ríkisendurskoðunar vegna
fyrmefndra athugasemda, segir
orðrétt:
„Rétt er að heimiluð stöðugildi
hafa verið 6. í áraraðir hefur Lána-
sjóðurinn sent beiðni um Qölgun
stöðuheimilda til menntamálaráðu-
neytisins og ráðningamefndar ríkis-
ins. Við þessum kröfum hefur verið
daufheyrst.
Á árunum 1983 og 1984 svaraði
menntamálaráðuneytið bréfum LÍN
á þá leið að Könnunarstofan væri
að gera úttekt á sjóðnum og að
þeirri athugun lokinni yrði tekin
ákvörðun um starfsmannahald
sjóðsins. Ekkert gerðist þegar þessi
umrædda skýrsla birtist í mars
1984.
Á meðan á þessu stóð var ekki
mögulegt að loka sjóðnum eða
takmarka verulega starfsemi hans.
Framkvæmdastjóri nýtti sér þá 9.
mgr. 9. gr. reglugerðar (578/1982)
um heimild til að lausráða fólk til
tímabundinna verkefna.
í samræmi við þessar ráðstafanir
hefur launakostnaður hækkað
umfram fjárlög.
Launadeild íjármálaráðuneytis-
ins hefur greitt laun fastráðinna
starfsmanna. Þegar sjóðurinn hefur
lausráðið til tímabundinna verkefna
hefur það fólk gjaman fengið af-
greidd laun hjá Veðdeild Lands-
banka íslands."
Sjá forystugrein í miðopnu:
„Lánasjóður á krossgötum“,
viðtal við Sverri Hermannsson
á bls. 4 og frétt um mótmæli
SÍNEábls. 4.
HM í handknattleik:
Stefnt að
beinni út-
sendingu
íslenzku
leikjanna
SJÓNVARPIÐ hefur ákveðið að
vera með beinar útsendingar frá
heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik, sem fram fer í Sviss.
„Stefnt er að þvi að sýna alla
leiki íslands og úrslitaleikinn í
beinum útsendingum," sagði
Bjarni Felixson, íþróttafrétta-
maður Sjónvarps í samtali við
Morgunblaðið. Hann sagði að
verið væri að vinna að þessum
málum.
Þá sagði Bjami að beinar útsend-
ingar yrðu í sumar frá úrslitum
heimsmeistarakeppninnar í knatt-
spymu í Mexíkó. „Sýnt verður frá
öllum helstu leikjum keppninnar,“
sagði Bjami. Hann sagði að í
samstarfi við Norðurlönd yrðu bein-
ar útsendingar frá ensku knatt-
spymunni fram í mars og að ráð-
gert væri að sýna leik frá Þýska-
landi, að öllum líkindum frá Stutt-
gart. Á laugardag verður leikur
Leicester City og West Ham United
sýndur í beinni útsendingu og
annan laugardag leika Sheffíeld
Wednesday og Oxford United. Sem
kunnugt er leikur Sigurður Jónsson
með liði Sheffield. Og væntanlega
verða úrslitaleikir enska deildar-
bikarsins og bikarsins í beinum út-
sendingum svo og undanúrslit
enska bikarsins.
500
milljóna
tap hjá
ÍSAL
AÆTLAÐ er að um 500 míllj-
óna kr. tap hafi verið af
rekstri íslenska álfélagsins í
Straumsvík á árinu 1985, að
sögn Ragnars S. Halldórsson-
ar, forstjóra ÍSAL. Velta fé-
lagsins var um 3.500 milljónir
kr. á árinu og fer um þriðj-
ungur veltunnar til innlendra
aðila, að sögn hans.
Framleiðslan hjá álverinu var
dregin saman um 10-12%
vegna offramboðs af áli á mark-
aðnum. Ragnar sagði að álút-
flutningur frá fyrirtækinu hefði
dregist saman sem því næmi
þannig að birgðir væru svipaðar
nú og í byrjun árs, 5-6 þúsund
tonn, sem samsvaraði tæplega
mánaðarframleiðslu hjá fyrir-
tækinu.
Ragnar sagði að álverðið
hefði haldist lágt allt árið, en
væri nú farið að hækka aftur.
Sagði hann að heimsmarkaðs-
verðið hefði hækkað um 12-15%
að undanfömu, en væri enn
töluvert innan við það sem menn
teldu eðlilegt þegar jafnvægi
væri á framboði og eftirspum.
Álbirgðir í heiminum hefðu
minnkað og vonaðist hann til
að hækkun verðsins nú væri
aðeins byijun á frekari hækkun-
um álverðsins.