Morgunblaðið - 12.01.1986, Síða 1

Morgunblaðið - 12.01.1986, Síða 1
104 SÍÐUK B/C STOFNAÐ1913 9. tbl. 72. árg. SUNNUDAGUR12. JANÚAR1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Undirbýr Thatcher afsögn? London, ll.janúar. AP. DAVID Owen, leiðtogi nýja jafn- aðarmannaflokksins i Bretlandi, sagði í dag, að Margaret Thatc- her, forsætisráðherra, væri að undirbúa afsögn. Owen sagði í viðtali við Bresku fréttastofuna, að áætlanir Thateher um að segja brátt af sér hefðu valdið óvæntri afsögn Heseltines, vamar- málaráðherra stjómarinnar, sem hefði áhuga á að taka við forystunni í fhaldsflokknum af Thatcher. Tals- maður Thatcher, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði, að Owen færi með tómt bull, Thatcher hefði þvert á móti hug á að leiða flokkinn í kosningum í þriðja sinn. Rússar mót- mæla sjón- varpsþætti New York, 11. janúar. AP. BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin ABC hefur frestað gerð sjón- varpsmyndaflokks vegna mót- mæia Sovétmanna og hótana þeirra um að gera fréttamönnum stöðvarinnar í Moskvu erfitt fyrir. Sjónvarpsþættirnir áttu að fjalla um valdarán Sovétmanna i Bandarikjunum. Sjónvarpsmyndaflokkurinn, „Am- eríka", átti að fjalla um lífið í Banda- ríkjunum tíu árum eftir að útsendar- ar KGB, sovésku öryggislögreglunn- ar, höfðu rænt völdunum. Um miðj- an síðasta mánuð var yfírmaður fréttastofu ABC í Moskvu kallaður í sovéska utanríkisráðuneytið og honum skýrt frá óánægju Sovét- manna með þennan fyrirhugaða þátt. Var látið að því liggja, að starfsemi ABC í Moskvu yrði veru- lega skert ef af honum yrði. Vegna þessa hefur töku þáttarins verið frestað. Vetrarmorgunn íEyjafirði ítalir og Kanadamenn styðja refsiaðgerðimar New York, Washington og Róm, ll.janúar. AP. Italía og Kanada urðu í gær fyrst til þess af bandalagsríkjum Bandaríkjanna að styðja refsiað- gerðir gegn Libýu, sem Ronald Reagan Bandaríkjaforseti sakar um að styðja alþjóðlega hryðju- verkastarfsemi. Hefur Craxi, forsætisráðherra Itaiiu, auk þess tjáð Reagan þá skoðun sína, að herða verði á baráttunni gegn hryðjuverkamönnum i Miðaust- urlöndum. Italska stjómin hefur bannað vopnasölu til Líbýu. Var ákvörðun þess efnis tekin eftir ríkisstjómar- fund, þar sem til umræðu var sam- band Italíu og Líbýu í ljósi „alvar- legra gmnsemda um, að Líbýa Merk uppgötvun vísindamanna: Fimmti krafturinn tog- ast á við þvnffdaraflið Vorb Q ion.'.nr AP • ^ ^ New York, 9. janúar. AP. Nýjar tegundir á sex áratuga gamalli, alkunnri eðlisfræðitilraun benda til, að fimmti frumkrafturinn sé fundinn, kraftur, sem vinnur gegn þyngdaraflinu á stuttum vegalengdum. Þessi undarlegi kraftur veldur þvi, að fjöður fellur hraðar en blýlóð að þvi tilskildu, að mótstaðan sé engin Fyrir fjórum öldum mótmælti Galileo því, sem þá þótti sjátfsagt og þykir enn, að þungur hlutur falli hraðar en léttur. Segir sagan, að hann hafi látið tvo misþunga hluti falla ofan úr tuminum í Pisa og að báðir hafi komið jafn snemma til jarðar. Nýfundni krafturinn hef- ur samt sem áður haft þau áhrif, að þyngri hluturinn hefur fallið örlítið hægar ef ekki er tekið tillit til loftmótstöðu. í nýjasta hefti af „Physical Review Letters", virtu eðlisfræði- tímariti, er tilvist þessa nýja krafts kynnt og eru höfundar greinarinnar Ephraim Fischbach við Purdue- háskólann og samstarfsmenn hans. Var það upphafið, að þeir kynntu sér niðurstöður Eötvös-tilraunar- innar, sem alkunn er meðal eðlis- fræðinga. Roland von Eötvös og samstarfs- menn hans í Búdapest í Ungveija- landi héldu þvi fram árið 1922, að þeim hefði tekist að sanna kenning- ar Galileos. Hefðu þeir gert tilraunir með misþunga hluti og komist að raun um, að þyngdaraflið verkaði jafnt á þá alla. Raunar komu fram við tilraunina nokkur frávik frá meginniðurstöðunni en Eötvös kenndi því um, að mælitækin væm ekki alveg nógu nákvæm. Fischbach og félagar hans at- huguðu sérstaklega þessi frávik og fundu út, að þau hefðu ekki verið skekkjur, heldur munur, sem staf- aði af „ofurhleðslukraftinum". Vit- að er um flóra frumkrafta, þyngd- araflið, rafsegulmagnið, sterka kjamakraftinn, bindiafl frumeind- anna, og veika kjamakraftinn en hann kemur t.d. fram við geislun. Ofurhleðslukrafturinn ætti því að verafimmti frumkrafturinn. Fischbach tekur fram, að þessi uppgötvun hrófli Ktið við kenning- um Einsteins um þyngdaraflið. Það getur haft áhrif á hluti, sem eru í gífurlegri fjarlægð, en áhrifa ofur- hleðslunnar gætir aðeins á nokk- urra þúsunda metra vegalengd eða minna. Hún hefur því engin áhrif á hreyfingu himinhnattanna. umberi og styðji" hryðjuverkamenn, sem talið er, að unnið hafí hermdar- verkin á flugvöllunum í Róm og Vín í síðasta mánuði. Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, tilkynnti, að stjóm sin mundi taka fýrir hvers konar aðstoð við kandadisk fýrirtæki, sem ættu viðskipti við Lýbýu. „Til þessara ráða er ekki gripið til að þóknast Bandaríkjaforseta," sagði Mulroney við blaðamenn, „heldur er slikt siðferðileg nauðsyn, og Kanada mun ekki víkjast úndan þeirri ábyrgð," sagði hann. Utanríkisráðherrar Evrópubanda- lagsríkjanna 12 munu koma saman til fundar 21. janúar til þess að reyna að samræma afstöðu sína til refsiað- gerða Bandaríkjanna gegn Lýbýu. Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínuaraba, PLO, sagði í skólaslitaræðu, er 600 palestínskir stúdentar voru brautskráðir í Riyadh í Saudi Arabíu, að hann væri reiðu- búinn til að binda enda á deilur sfnar við Khadafy og „beijast með Lýbýu gegn áreitni Bandaríkjamanna og Israela". „Sækjum sameinaðir fram allt frá Saudi Arablu og Oman við Persa- flóa til Atlantshafsstranda Marokkó — í órofa arabískri fýlkingu," sagði hann. . Bandarískir leyniþjónustumenn hafa komist að raun um, að Líbýa notar peninga, sem geymdir eru á bankareikningum í Bandaríkjunum, til þess að standa straum af kostnaði við hryðjuverkastarfsemi, að sögn bandarískra embættismanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.