Morgunblaðið - 12.01.1986, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1986
farandhópana og hún vissi ekki hvort
hún yrði þá látin vera um kyrrt í
London þar sem hún var ráðin. En
heppnin var enn með henni. Hún var
beðin að taka við starfi yfirmanns
síns í París og þá kom öll endurskoð-
un á starfsliði og störfum í hennar
umsjá. „Nú komu t.d. í minn hlut
öll viðkvæm mál varðandi starfs-
fóikið," útskýrir hún. „Ef einhver á
í útistöðum eða agnúar finnast á
rekstrinum einhvers staðar, þá þykir
gott að hafa erlendan starfsmann
til að höggva á hnútinn. Þetta er
gert til þess að vemda heimamenn,
þar sem mun erfiðara er fyrir frama
þeirra að þurfa að leysa slík við-
kvæmnismál. En í þessu starfi var
ég um kyrrt í París í hálft þriðja
ár. Ferðaðist aðeins um Frakkland
og þá í eins til tveggja daga ferðum.
En ég hefi alltaf haft stúlkur. Fékk
fyrst 3 íslenskar, en er nú að fá
nýsjálenska stúlku. En ég vissi alltaf
að ég yrði að skipta um land í janúar
1986. Svo að ég fór að líta í kring
um mig í París eftir öðru starfi. Og
enn var ég heppin."
Aðstoðarforstjóri hjá OECD
Þessi heppni var í því fólgin að
löllu öðm starfsfólki? „Að sumu
leyti," segir Margrét. „En í rauninni
er það ekki eins mikið álag og að
vera við millistjórnun. Reiknað er
með að sá sem er á toppinum viti
hvað hann er að gera. En á hinum
stöðunum verður maður alltaf og
eilíflega að vera að sanna hvað
maður getur. Ég hefi núna ekki
annan yfirmann en aðalfram-
kvæmdastjóra stofnunarinnar og-
hann sé ég sjaldan, ekki nema ef
eitthvað sérstakt er á ferðinni. Ég
vinn mikið í nefndum. Þegar maður
er kominn í þessa stöðu þá er maður
að mestu hafinn yfir stöðuga gagn-
rýni. En maður verður að standa sig
engu að síður, því þetta er ekki
æviráðning. Um starfið er kosið á
þriggja ára fresti og þá verður regl-
um samkvæmt að greiða atkvæði.
Ég tók því töluverða áhættu þegar
ég ákvað að hætta hjá Esso og fór
í þetta verkefni."
Heimafólk með
barn og garð
Þessa áhættu tók Margrét til að
tryggja búsetu í París. Leggja þau
svona mikið upp úr því að búa þar?
„Mér þykir vænt um París, en ég
: hugsað sér að setja byggingu milli
hússins og tumsins og hafa þá borð-
stofuna í gamla tuminum. Ætla
raunar að byija á því í vor.
„Þetta er stórkostlegur garður,"
segir Margrét. „Þar er mikið af
tijám, en við höfum verið að gróður-
setja þar plöntur sem blómstra. Þær
vantaði alveg. Við erum þegar búin
að gróðurseja þar mörg hundruð
fjölærar plöntur og þúsund lauka
og eigum mikið eftir. Laukamir
byija í Frakklandi að blómstra í
febrúar og í mars standa trén í
blóma. Þannig tekur hvað við af
öðru. Við erum líka að gróðursetja
plöntur sem blómstra yfir hásuma-
rið. Þá verður garðurinn alltaf jafn
yndislegur. Þetta vinnum við allt
sjálf. Maður hugsar öðru vísi þegar
bam er á heimilinu. Þá vill maður
vera sem mest heima og vera úti
með drengnum.
Meðan við vomm barnlaus lifðum
við hinu hefðbundna Parísarlífi og
nutum þess. Fórum um og skoðuðum
listsýningar, stunduðum leikhús og
bíó, sem svo mikið er af i borginni
og fórum út að borða og í sam-
kvæmi. Við vorum orðin sérfræðing-
ar í matargerð og fórum vítt og
hún hafði spurnir af því að starf var
að losna hjá Efnahags- og fram-
farastofnuninni. En þar er maður
hennar nú starfandi sem hagfræð-
ingur í landbúnaðardeildinni. Um
þetta starf er samt ekki hægt að
sækja, því reglum samkvæmt eiga
fulltrúar þátttökulandanna 24ra að
kjósa í það. Þeir mega þá líka bera
upp einhvern og mæla með honum.
Margrét leitaði til Haraldar Kroyer
sendiherra, sem stakk upp á henni.
Uppástungur komu um 7 aðra
umsækjendur, en Margrét hlaut flest
atkvæði. Hún var sú eina af þessum
átta sem hafði starfað hjá einkafyrir-
tæki og unnið sjálfstætt að samn-
ingagerð, rekstri og eftirliti og það
var þungt á metunum.
Þegar Margrét er spurð hvort sé
erfiðara að starfa hjá einkafyrir-
tækinu eða alþjóðastofnun kveðst
hún aðeins hafa verið hjá Efnahags-
stofnuninni í fimm mánuði. „En þar
er allt svo illa skilgreint og það
veldur auðvitað erfiðleikum. Hjá
Exxon eru til leiðbeiningarreglur um
hvað eina, en hjá OECD verður svo
mikið að byggja á fordæmi og þá
minni einhvers um hvernig þetta og
hitt hefur verið leyst áður,“ segir
hún. En hún tekur fram að hún sé
að venjast nýjum starfsháttum. Hún
hefur góða hjálp, tvo einkaritara og
viðskiptafræðing á hennar eigin
skrifstofu og svo getur hún notað
allt starfsfólk stofnunarinnar i við-
komandi málaflokkum.
En ætli ekki reyni á taugarnar
að vera komin í slíka toppstöðu, ofar
Margrét og Paul Dymock
með soninn Mark.
Myndin var tekin nú um jólin
á heimili foreldra hennar,
Þórodds Th. Sigurðssonar
og Kristínar Guðmundsdóttur
í Karfavogi.
gæti held ég búið hvar sem er. Lík-
aði sérlega vel í Antwerpen, einnig
í London og Washington þegar við
vorum þar. En það er miklu erfiðara
fyrir tvo að fá vinnu svo að báðum
líki. Þegar við eignuðumst drenginn
þá breyttist margt. Okkur hafði verið
sagt að við gætum ekki átt börn.
Við höfðum keypt íbúð í sambýlis-
húsi í Sb, Cloud með dýrðlegu útsýni
yfir Bomogne-skóginn og gert hana
upp við hæfi okkar tveggja. En
tveimur árum síðar var orðið erfitt
að búa með barn og barnfóstru í
íbúð í sambýlishúsi. Og þegar við
svo vorum um jól heima hjá Paul á
Nýja-Sjálandi þar sem allir búa í
einbýlishúsum með garði, þá fundum
við enn betur hve miklu betra er að
búa þannig með barn. Við keyptum
því hús í St. Germain-en-Laye í út-
jaðri Parísar.
Þarna hefur fjölskyldan verið að
koma sér fyrir að undanförnu. Kring
um húsið er gríðarstór garður, 1.300
fermetrar að flatarmáli, þótt í miðju
þorpi sé. Landið tilheyrði höll, sem
nú er horfin, og því er í garðinum
turn frá 16. öld með 60 sm þykkum
veggjum úr hlöðnum steini. Turninn
var dúfnahús. Þar hefur barnfóstran
búið að undanförnu. En þau hafa
breitt til að velja góðan mat og góð
vín. Fórum meira að segja stundum
á matreiðslunámskeið, vorum t.d.
einu sinni á þriggja vikna kokka-
skóla í Hong Kong. En nú viljum
við heldur eyða tímanum meira í
garðinum með Mark en að vera að
búa til einhvern rétt í heilan dag og
bjóða gestum. Svona breytist við-
horfið þegar barn er á heimilinu."
Það er auðheyrt að þau Paul og
Margrét Dymock hafa ferðast mikið.
Hafa meðal annars farið nokkrum
sinnum kring um hnöttinn. Annað
hvert ár fara þau að jafnaði á æsku-
stöðvar Pauls á Nýja-Sjálandi og
taka sér þá góðan tíma til að heim-
sækja áhugaverða staði á leiðinni.
Ættingjar hans stansa líka gjarnan
hjá þeim þegar þeir leggja land undir
fót. En það tíðkast meðal ungs fólks
á Nýja-Sjálandi að halda til Evrópu
og ferðast í eitt til tvö ár áður en
alvara lífsins tekur við. Enda langt
að fara þegar lagst er í ferðalög.
Til heimalands Margrétar, íslands,
koma þau að jafnaði tvisvar sinnum
á ári. En þótt ekki sé langt þangað
ef litið er á landabréfið, þá kostar
það 14 tíma ferðalag um Lúxemborg
eða heilan dag hvora leið, nema á
sumrin þegar má fá beina flugferð
frá París. „Við höldum reglulegu
sambandi í báðar áttir,“ segir Mar-
grét. „Og það er yndislegt að vera
hér heima á jólunum."
Viðtal: Elín Pálmadóttir
Myndir: Morgunblaðið/Bjarni
Til sölu
Thiochol árgerö 1967. Allur mikiö endurnýjaöur.
Helstu upplýsingar:
Vél: Nýuppgerö 6 cyl. Benz Diesel
OM 352.
GírkaMi: Nýupptekinn 5 gíra
Benz-vörubílakassi.
Eldsneytistankur: 200 lítrar.
Stjórnbúnaður: Nýjar dælur.
Dril: Yfirfarið og nýjar legur.
Belti: Endurbyggö.
Mikiö magn nýrra og notaðra
varahluta fylgir.
Upplýsingar í síma 641202 eftir
kl. 19.00.
Hjálparsveit skáta Kópavogi.
Til sölu
Þessi vandaöi vinnuskúr, fullbúinn aö utan
sem innan, er til sölu. Hentar einnig vel
sem veiöihús eöa fyrir aöra sambærilega
aöstöðu. Húsiö er byggt á stálgrind þann-
ig aö þaö má hífa á vörubíl til aö flytja
milli staöa.
Allar upplýsingar í síma 687787.
Tími: 18. og
19. janúar kl.
10-17
Fjölbreytt og vandað námskeið í notkun einkatölvunnar
frá IBM. Kennd eru grundvallaratriði við notkun tölv-
unnar og kynnt eru algeng notendaforrit frá IBM-PC.
Leiðbeinandi: Dr.
Kristján Ingvarsson
verkfræðingur.
Dagskrá:
* Uppbygging og notkunarmögu-
leikar IBM-PC.
* Stýrikerfið MS-DOS.
* Ritvinnslukerfið WORD.
* Töflureiknirinn MULTIPLAN.
* Gagnasafnskerfið Dbase II.
* Assistant forritin frá IBM.
* Bókhaldskerfi á IBM-PC.
Innritun í símum 687590 og 686790
TÖLVUFRÆÐSLAN
Ármúla36, Reykjavík.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^stóum Moggans!
wasasBBusaaai
■•rmxaa