Morgunblaðið - 12.01.1986, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JANOAR1986
Strand og Friðgeiri Olafssyni. Það var
ákaflega skemmtilegur félagsskapur.
En svo fór ég í burtu í framhaldsnám
og var þá sjálfhætt. En í Bandaríkjun-
um kynntist ég allmikið umferðarmál-
um og ameríska bifreiðaeigendafélag-
inu AA. Nokkru eftir að ég kom heim
skrifaði ég grein í Morgunblaðið og
bar saman umferö hér og í Bandaríkj-
unum, vék m.a. að umferðarslysunum.
Þá var strax hringt til mín og ég
beðinn um að taka að mér formennsku
í Félagi ísl. bifreiðaeigenda. Eg hafði
nú ekki tækifæri til þess þá strax, en
féllst á það nokkru seinna og var for-
maður félagsins í 10 ár. Og nú er ég
aftur búinn að vera formaður þar í 5
ár.“
— Voru það kannski slysin sem
læknar kynnast oft meira en aðrir,
sem vöktu svo mikinn áhuga hjá þér
áþessum málum?
„Það má segja það. Umferðarörygg-
ismálin vega mikið hjá okkur í FIB.
Við börðumst á sínum tíma fyrir hægri
umferð. Ég átti þá sæti í nefndinni
sem samdi lögin. Það sem stendur upp
úr frá þeim tíma er að slysum fækkaði
mikið, hafa aldrei 'verið jafn fá og
þetta ár, enda var umferðarfræðsla í
hámarki. Slysum fjölgaði að vísu aftur
en þetta er talandi dæmi um árangur
af umferðarfræðslu. Satt að segja eru
umferðarslysin hér á landi geigvæn-
lega mörg. En skráning þeirra er í
molum, það koma 50% fleiri slasaðir
á Borgarspítala en skráðir eru af lög-
reglu á öllu landinu. Og hlutfall alvar-
lega slasaðra er alveg jafn hátt þar.
Fjöldi banaslysa er það eina sem ekki
fer milli mála. 1 ár munum við vera
„Fljót greining og rétt lyfjameðferö byggist á bakteríurannsóknum. Mest aökallandi er nákvæm tegundagreining
á bakteríum og mæling á næmi þeirra fyrir lyfjum, sem líkleg eru til að bera árangur gegn sjúkdóminum. Aukning
á bakteríurannsóknum hefur því vaxið gífurlega," segir Arinbjörn Kolbeinsson, læknir, sem hér er við slíkar
rannsóknir.
komin með ein 24 banaslys. Og alltof
stór hluti þeirra sem lenda í umferðar-
slysum er ungt fólk, ungir menn 17—20
ára.“
— Hafið þið einhver úrræði?
Við höfum sett fram kenningar um
hvað ætti að gera. Umferðarslysin
kosta líklega eins mikið og rekstur
ríkisspítalanna þegar aðeins er reikn-
að fjármunatjón. Þar væri hægt að
spara í peningum fjórðung til þriðj-
ung, fyrir utan þjáningar og örkuml
sem slysin valda. Það frumvarp til
umferðarlaga sem nú liggur fyrir á
Alþingi mundi þó ekki koma að veru-
legu gagni. Það er sniðið eftir skandin-
avískum lögum en ekki tekið mið af
amerískum og enskum reglum. Aftur
á móti eigum við meiri samleið með
þeim vegna þess að bílaeign okkar er
jafn mikil og raun ber vitni. Við erum
í 2.-3. sæti í heiminum með bílaeign
miðað við mannfjölda og komum þar
á hæla Bandaríkjamanna. Því ættum
við frekar að taka þá til fyrirmyndar
að þessu leyti. Bent hefur verið á að
ökuprófin séu ekki nógu ströng og
sennilega ekki nógu samræmd. Um
fram allt verður að auka umferðar-
fræð slu og koma henni inn í skólana.
í nútímaþjóðfélagi er meira virði fyrir
nemendur að kunna skil á umferðinni
og vera sér meðvitandi um hve mikil-
væg hún er heldur en þekkja styrjaldir
Napoleons. Og ökufræðslan þarf að
vera símenntun, t.d. í blöðum og út-
varpi og sjónvarpi. Þá þarf að koma
á samræmdri skrásetningu á umferð-
arslysum og einnig að setja upp slysa-
rannsóknanefnd vegna bílslysa á sama
A HAGSTÆÐU VERÐI
Á nokkrum síöustu árum hefur Úrval boöiö einstaka feröir til framandi landa. Nú
getum viö með stolti boöiö þrjár ólíkar en stórkostlegar ferðir til spennandi staöa.
3 VIKUR í AUSTURLÖNDUM FJÆR
Ferðin er í samvinnu viö thailenska flugfélagiö THAI sem þekkt er af öryggi og góöri
þjónustu. Fyrir valinu uröu þær þrjár borgir í Austurlöndum fjær, sem hvaö ólíkastar
eru þ.e. Bangkok, Hong Kong og Singapore. Dvaliö verður að meðaltali 3 nætur í
hverri borg. Auk þess er slappaö af á hinni frægu baöströnd Thailands, Pattaya, í 10
daga og notið lystisemda lúxushótelsins Royal Cliff. Ókeypis skoöunarferö er í hverri
borg og alls staöar dvalið á lúxuxhótelum. Möguieiki er að stoppa í Kaupmannahöfn
á bakaleið. Brottför 21. febrúar. Áætlaö verö pr. mann í tvíbýli kr. *92.650,-
2JAVIKNAPÁSKAFERÐ í BRASILÍU
Flogið er þann 25. mars meö brasilíska flugfélaginu Varig til Brasilíu. Markmiöiö veröur
aö kynnast landi og þjóð sem best auk þess aö njóta lystisemda Brasilíu. Siglt verður á
Amason, Iguacu fossarnir skoðaðir, einnig borgin Brasilía, ein nýtískulegasta höfuöborg
heims og síðast en ekki sist dvalið á Rió og hinar margvíslegu hliöar hennar kannaðar.
Ýmsar skoðunarferðir og lúxushótel innifalin. Möguleiki á að stoppa i London í bakaleið.
Áætlaö verö pr. mann í tvíbýli kr. ‘82.300,-
SIGLING UM KARABISKA HAFIÐ
c/]
Brottför er 9. október og verður siglt á lúxusskipi Royal Caribbean Cruise Line, — *
MS Sun Viking. Skemmtisiglingin stendur yfir í hálfan mánuö og er möguleiki aö
framlengja dvölinni á Miami eöa London um viku. Aöeins er gist í fyrsta flokks klefum §
er snúa aö sjó og fullt fæöi um borð er innifalið í verði.
Komið verður til eftirtalinna staöa: Virgin Islands, St. Thomas, St. Kitts, Martinique,
Grenada, Barbados, Dominica, St. Maaren, Puerto Rico, St. Croix og Florida.
Áætlað verö pr. mann í tvíbýli er kr. ‘116.000,- Aukavika á Miami, kr. ‘11.000,- pr. mann í tvíbýli.
Fullkomin ferðaáætlun fyrir allar þessar ferðir liggur frammi á skrifstofu Llrvals.
FERÐOSKRIFSTOFAN URVOL
FerOaskrifsLofan Urval vid Ausiurvöll, sími (91)-26900.
YÁRIG
ÞRJAR SPENNANDI FERÐIR
í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Allt skv. gengi 27.12.1985.