Morgunblaðið - 12.01.1986, Side 40

Morgunblaðið - 12.01.1986, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JANÚAR1986 ÞIMGBRÉF A uppboði samfélagsins Mynd þessi er frá uppboði í Reykjavík svipmynd úr samfélaginu. Á uppboðum manniífsins, þar sem mannréttindastaðan ræðst, hefur heima- vinnandi fólk orðið útundan um margt. Um það efitii fjallar þingbréf í dag i tengslum við tvær tillögur til þingsály ktunar. Heimavinnandi fólk: RÉTTLEYSI Stór hópur fólks er utan lífeyr- issjóða. Samkvæmt nafnaskrá líf- eyrissjóða, sem Qármálaráðuneyt- ið gaf út 1984, kemur fram, að rúmlega 25.000 einstaklingar, fæddir 1967 eða fyrr, standa utan lífeyrissjóðakerfis. Þar af eru konur 17.000 en karlar 8.000. í þessum hópi eru rúmlega 8.700 einstaklingar 67 ára og eldri, rúmlega 6.600 konur og rúmlega 2.100 karlar. Lífeyrisréttindi heima- vinnandi fólks Frá árinu 1967 hefur verið starf- andi nefnd til að semja tillögur að nýskipan lífeyriskerfisins. Skýrsla um störf þessarar nefndar var lögð fram á Alþingi veturinn 1984-85. Þar er ekkert afgerandi að finna um lífeyrisréttindi til handa heimavinn- andi fólki. Jóhanna Sigurðardóttir (A.-Rvk.) lagði fram á þingi því er nú situr tillögu til þingsályktunar, svohljóð- andi: „Alþingi ályktar að fela fjárrnála- ráðherra að beita sér fyrir því að þeim, sem eingöngu sinna heimilis- störfúm, verði tryggð lífeyrisréttindi eigi síðar en 1. júní 1986. Sérstak- lega skal athuga aðilda þeirra að Söfnunarsjóði lífeyrissjóða." í greinargerð segir m.a.: „Ljóst er að heimavinnandi fólk fer varhluta af ýmsum félagslegum réttindum, þar sem það er ekki úti á vinnumarkaðnum. Á það ekki sízt við um lífeyrisréttindi". Heimavinnandi fólk hefur ekki sama rétt og útivinnandi til fæðing- arorlofs og sjúkradagpeninga, þó í rétta átt hafi miðað. Mismunun nær einnig til skattreglna. Skattbyrði heimilis þar sem annar maki sinnir störfum utan heimilis en hinn innan (eingöngu) er oft þyngri en heimilis þar sem hjónin vinna bæði úti. Mannleg og flár- hagsleg gildi í greinargerð er réttilega á það bent' að störf heimavinnandi fólks hafi með ýmsum hætti fjárhagslegan spamað í för með sér, bæði beinan og óbeinan, fyrir þjóðfélagið. Hér er meðal annars og ekki sízt átt við spamað, sem í því felst að heimilin hafa með höndum umönnun bama og þjónustu við eldri borgara, sem ella þyrfti að sinna á stofnunum. Stofnunum. sem kosta samfélagið mikla fjármuni, bæði í fjárfestingu og rekstri. Þá segir orðrétt í greinargerðinni: „Þó að oft sé í þjóðfélagsumræð- unni talað um hin efnislegu verð- mæti og þeim gefið vægi yfir mann- leg verðmæti er grunnurinn að vel- ferð og hamingju ijölskyldunnar ekki síður falinn í hinum mannlegu verðmætum en hinum efnislegu. Það er ekki sízt hlutverk þeirra, sem eingöngu stunda heimilisstörf, að hlúa að hinum mannlegu verðmæt- um og er gildi umönnunar og uppæld- is ungu kynslóðarinnar þar hvað mikilvægust fyrir einstaklinginn, Ijölskylduna og þjóðfélagið í heild." Réttarstaða heima- vinnandi fólks Sami þingmaður flytur tillögu til þingsályktunar um kjör sjö manna nefndar sem hafi það verkefni „að meta þjóðhagslegt gildi heimilis- starfa og gera úttekt á, hvemig fé- lagslegum réttindum og mati á A PHIUPS AKB 463 BAKARAOFNINUM VERÐ AÐEINS KR.14.900.- Nú getur þú eignast þennan kostagrip á stórlækkuðu verði. Philips bakaraofninn kostaði áður kr. 18.360.-, þannig að lækkunin er umtalsverð. Ofninn er búinn mörgum góðum kostum. Hann er sjálfhreinsandi og útbúinn blástursviftu sem tryggir jafnt hitastig. Það tryggir þér síðan hnökralausa matreiðslu. Þú ættir að nýta þér þetta góða boð, en athugaðu að takmarkað magn er á boðstólum. Heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- S: 27500 *" f *1ImTr -Ti ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.