Morgunblaðið - 12.01.1986, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 12.01.1986, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR12. JANÚAR1986 Mjög glæsilegt og ég hygg að það muni einnig verða að utan.“ Af leiklist og fleiru — Er byggðasafniö þitt stærsta áhugamál? „Eg veit það nú ekki. Ég á ákaf- lega mörg áhugamál." — Kannski eitthvað gerólíkt? „Það má kannski segja það. Ég hef ákaflega mikinn áhuga á leik- list, og hef starfað mikið í leiklist- arstarfsemi hér. Leikfélagið er nú rúmlega tvítugt og ég hef verið með frá upphafi." — Mannstu fyrsta stykkið sem leikfélag Hornafjarðar setti upp? „Já, það var Ævintýri á göngu- för og lék ég þá Krang kammer- ráð.“ — Var það skemmtileg sýning? „Já, afskaplega. Þegar það var sýnt var jafnframt vígt nýtt fé- lagsheimili, Sindrabær, og síðan hefur að jafnaði verið sett upp leikrit tvisvar sinnum á vetri.“ — Hvaða sýning er þér eftir- minnilegust? „Það var þegar við fórum með MANNLÍFÁ AUSTURLANDI Farið yfir Hólmsá í MýrarsveiL Skáld-Rósu á sýningu áhugaleik- félaga á Norðurlönd fyrir tveimur árum, til Noregs. Það var afar skemmtileg ferð. Einna skemmti- legast var hvað leikhúsfólkið var áhugasamt um ísland og vildi fá að vita af hverju hlutirnir hefðu verið svona á íslandi í gamla daga. Allir settust fram á sviðsbrúnina að ræða málin. Hvers vegna var fólk á vergangi? Ég man eftir einum dönskum blaðamanni sem sagðist þurfa að athuga málin betur þegar hann kæmi heim. Ég sagði honum að verslunaránauðin hefði leikið Is- Veríð að veita Hólmsánni 1937. Fyrir lá að yfirgefa þyrfti 17 býli yrði það ekki gert Lýður Jónsson verkstjóri ásamt fjölskyldu sinni. lendinga svona grátt og hann hafði aldrei heyrt um neitt þvíumlíkt. Þetta þarf ég að athuga þegar ég kem heim, sagði hann. Svo er mér líka ógleymanleg Guttormur Þormar: Guttormur Þormar hreppstjóri í Geitagerði er fæddur og alinn upp í Fljótsdal og hefur búið þar lengst af ævi sinnar. í skógi prýddu um- bverfi við Löginn, þar sem sést yfir að Hallormsstað, hefur Guttormur stundað fjárbúskap og trjárækt, verið vel virkur í féiagsmálum og liðtækur í íþróttum eins og verð- launapeningarnir frá yngri árum hans bera glöggt vitni. Hann hefur átt Austurlandsmet í 100, 200, 300 og 400 metra hlaupi, þó hann hafi alltaf haft mest gaman af 100 metrunum. Hann vann einnig til verðlauna í langstökki og þrí- stökki og var sama met í þeim grein- um. Eftir að hafa verið í sigursveit- inni í 4x100 m hlaupi á Landsmóti UMFÍ á Akureyri 1955, fannst hon- um tími til kominn aö hætta. Þá hafði hann verið að, frá því hann fyrst fór á mót Þingeyinga og Aust- firöinga fermingarárið. — Eru íþróttirnar mikið áhuga- mál hjá þér, Guttormur? Já, það eru þær enn, og ég fylg- ist alltaf með. Mér finnst það þyrfti endilega að endurvekja þessi mót sem Þingeyingar og Austfirð- ingar höfðu með sér. — Hvað varstu lengi í íþróttun- um? Fimmtán ár, og keppti meðal annars á fimm landsmótum UMFÍ. j Mest í spretthlaupum. 50.000 lerkiplöntur — Þetta fallega umhverfi sem þú býrð í hlýtur að vera gott til útivistar. Ertu útivistarmaður? Já, maður er auðvitað mikið úti við. Ég hef verið með búskap hér frá 1950, var kennari fram til 1954, en fór þá alveg yfir í búskapinn. — Það er mikil trjárækt hjá þér, er það ekki? Jú, og hefur verið lengi talsverð. Stærsti kaflinn í henni er Fljóts- .y dalsáætlunin, sem byrjaði hér 1970. Þá samdi skógræktin við nokkra bændur um að taka land undir skógrækt og ég hef verið með í því. Við ræktum lerki, sem reynslan sýnir að hefur góðan ár- angur hér um slóðir. Það þarf á heitum dögum að halda á hverju ári, ekki endilega mörgum en vel • heitum og þessar aðstæður eru hér | fyrir hendi. Árangurinn hefur líka fariö fram úr björtustu vonum, nú eru 40—50.000 plöntur bara í því landi sem ég hef tekið í þetta, afföll hafa orðið minni en maður bjóst við. Það var byrjað að rækta tré á Hallormsstað nokkru fyrr en hér, en hér eru þó tré allt frá fyrstu árum aldarinnar. Hér er til dæmis fjallahlynur sem er á 14. metra og sá hæsti sinnar tegundar á landinu. Einnig blágreni sem danskur maður, Flensborg, kom með yfir Fjarðarheiði árið 1905, hann var mikill áhugamaður um skógrækt og þessi ferð hans þótti merkileg á sínum tíma. Og sem sagt eitt af fimmtán trjám hafnaði í garðinum hjá afa mínum, Gutt- ormi Vigfússyni. Síðan er faðir minn kom frá námi í Danmörku 1908 var hann mjög áhugasamur um skógræktina, en þeir höfðu hana nú aðallega sem hobbí. — Þannig að þú crt alinn upp við skógræktina? Já, það má segja að það hafi verið almennur áhugi á mínu heimili fyrir henni. Móðir mín sá um garðinn, og hér í nágrenninu eru nokkrir aðrir garðar sem eru fráþvífyrirl920. — Attu þér uppáhaldstrjátegund? Já, það á ég reyndar. Broddfuru. Hún er harðger og verður allra trjáa elst, en hún vex afar hægt. — Hvað er hún orðin hjá þér? Ætli hún sé ekki í átta metrum. — Má nokkuð spyrja skógræktar- mann þeirrar samviskuspurningar hvort hann geti höggvið tré, jólatré til dæmis? Jú, jú, ég hef nú einmitt velt því fyrir mér hvort ég ætti ekki að rækta jólatré. En það eru skóg- ræktarmenn sem segja að það sé ekki ræktun. Og þó það sé mikil jólatrjáarækt á Hallormsstað er ég hræddur um að honum Páli frænda mínum þar þyki það ekki mikil ræktun. Jólin hafa lítið breyst — Það er stutt fyrir ykkur aö ná í jólatré? Já, enda hafa jólin lítið breyst frá því ég man fyrst eftir mér, við höfum alltaf haft okkar jóiatré og svipað skraut lengst af. Jólatréð er venjulega fura eða greni. — Verður ekki jólalegt hér á Fljótsdalshéraði meö öll þessi tré þegar snjóar? Jú, en okkur finnst nú oft óþarf- lega snjólétt hérna. Það getur nefnilega sett strik í reikninginn og orðið vatnslaust ef það snjóar lítið. Hér á upphéraði er lítið um snjó á veturna og þegar hann kemur fýkur hann venjulega í skafla þannig að það er auðvelt að fara um, en ekki lengi jólalegt í einu. Ætli ég muni eftir fleiri en tveimur eða þrem snjóavetrum í allt. Þó við séum þetta langt inni í Iandi er miklu snjóléttara hér en á úthéraði til dæmis. — Hvað með jólamatinn? Venjulega eru það rjúpur sem einhver af heimilinu hefur skotið. — Er stutt að fara á rjúpu? Það er nú orðið lítið um rjúpu hérna, það þykir gott ef maður fær til jólanna. — Nú hef ég heyrt að þú hafir undir höndum gripi sem fornleifa- fræðingar hafa sýnt áhuga? Þú átt líklega við silfurhnapp- ana sem faðir minn fann rétt eftir aldamótin, líklegast 1908. Hvað þeir eru gamlir ber fornleifafræð- ingum nú ekki saman um, en þeir gætu verið frá því um sextán hundruð. Þeir hafa varðveist óskemmdir. Fyrir nokkrum árum kom hing- að bandarísk kona, sjáandi, og ég skrifaði upp eftir henni það sem hún hafði um þennan fund að segja. Hún féll í einhvers konar leiðslu eða trans og þetta er það sem ég skrifaði um hennar upplýs- ingar. Silfurhnappar fundnir skömmu eftir aldamót, finnandi sýning á Gullna hliðinu, þegar ég var í hlutverki Jóns.“ — Með þeim texta sem því fylg- ir? „Já, mér fannst hlutverkið skemmtilegt. Þetta hefur verið mér áhugamál og miki lífsfylling og ég held að fólk læri að taka meira tillit hvert til annars ef það tekur þátt í leik- listarstarfsemi." — Hvernig gengur að fá unga fólkið með? „Mjög vel. Næsta verkefni leik- félagsins er einmitt við þess hæfi, það er Láttu ekki deigan síga, Guðmundur." Hætt er við að Gísli hafi ekki séð það fyrir sem verða vildi er hann var lítill drengur í Mýrar- hreppi og las með föður sínum hlutverk í Skugga-Sveini. Hann las púkann en var of ungur til að taka þátt í leiksýningunni. Það kom í hlut annars drengs og eldri, sem var orðinn nógu gamall til að fara yfir vötnin sem lágu yfir sveitinni, vötn sem tækni, mannafli og ólíkt árferði hafa nú þurrkað um ókomna framtíð. Guttormur Þormar á langan og sig- ursælan íþróttaferil að baki. Vigfús Þormar. Bandarískur sjá- andi sem skoðaöi þá 1976 segir þá smíðaða í Þýskalandi 1585. Sá er þá smíðaði hafi lært á Ítalíu. Danskur eftirlitsmaður með yfir- völdum hér hafi glatað þeim er hann var hér á ferð, í opinberum erindum, árið 1621. Hann hafi dottið af hestbaki og slasast svo, að þurft hafi að bera hann til byggða. Við fallið hafi hnapparnir losnað af, það er að segja tveir af átta. Hinir séu í Danmörku og hafi gengið þar sem erfðagripir í tíu ættliði, síðast í beinan kvenlegg í sex ættliði. Þetta er nú svo sem ekkert frá- leitt því þeir fundust ekki langt frá gamalli merkisleið sem liggur milli Jökuldals og Fljótsdals. Svo það getur allt eins verið að þessi maður hafi verið að fara þar á milli. — Kitlar þaö ekki forvitnina aö rcyna aö hafa upp á hinum sex? Jú, börnin mín sem hafa verið í Danmörku eru með myndir af þeim og hafa eitthvað verið að reyna. — Fyrst maöur er kominn út í sérstæða lífsreynslu, hefurðu nokk- urn tíma séö Lagarfljótsorminn? Nei, en kemur fyrir að einn og einn þykist koma auga á hann. Við viljum ekki láta Lagarfljótsorm- inn deyja. — Þú kíkir kannski eftir honum? Já, auðvitað gerir maður það. Það eru ótrúleg svipbrigði á fljót- inu. Þetta er merkilegt vatnsfall, þar sem það er dýpst er það 90 metra undir sjó. Það er lægsti punktur á íslandi. Og breiddin á fljótinu er yfir tveir kílómetrar. — Hvað með virkjanaáætlanir? Ég held að sveitungar mínir séu nú bara ánægðir með frestunina sem orðið hefur. Þetta verður mikil röskun, ekki síst félagslega. Með þessum orðum kveðjum við Guttorm Þormar og vonum að hann fái ásamt sveitungum sínum að njóta þess besta sem falleg sveit hefur upp á að bjóða hvað sem breytingum af náttúru eða manna- völdum líður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.