Morgunblaðið - 19.01.1986, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR19. JANÚAR1986
I atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna I
TÖLVUIilidLUn Hr.
Hugbúnaðarþjónusta
Forritari óskast
Vegna aukinna verkefna vantar okkur forrit-
ara. Viðkomandi þarf að hafa góð tök á
FORTRAN eða sambærilegu máli.
Umsókn sem tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf sendist til Tölvumiðlunar hf., pósthólf
8425, 128 Reykjavík, fyrir föstudaginn 24.
janúar.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
„Ticketing11
Óskum að ráða vanan starfsmann við far-
seðlaútgáfu og tengd störf.
Áríðandi er að væntanlegur starfsmaður
hafi góða söluhæfileika, eigi auðvelt með að
umgangast fólk og sé stundvís.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðar-
mál. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 24. jan. '86 merktar: „AT — 6020“
otcíxvti*
Starfsmaður
Sérhæfð þjónustustofnun í borginni, vill
ráða starfsmann til alhliða starfa, sem fyrst.
Krafist er fágaðrar framkomu og snyrti-
mennsku. Reglusemi og stundvísi áskilin,
ásamt fúsleika til að veita sem besta þjón-
ustu. Æskilegur aldur 50-55 ára. Bílpróf.
Umsóknir er tilgreini aldur ásamt starfs-
reynslu, sendist skrifstofu okkar fyrir 25. jan.
nk.
ÓUDNI TÓNSSON
RÁÐCJÖF &RÁONINCARÞJÓNUSTA
TÚNCÚTU 5. 101 REVKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
5PARI5JDQUR
HAFNARFJARÐAR
Sparisjóðsstjóri
óskast
Staða sparisjóðsstjóra (önnur staða af tveimur)
hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar er laus til um-
sóknar.
Umsóknir um stöðu þessa ásamt upplýsing-
um, m.a. um menntun og fyrri störf skulu
sendar formanni sparisjóðsstjórnar Stefáni
Jónssyni, Hamarsbraut 8, Hafnarfirði eigi síð-
ar en 10. febrúar nk.
Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar.
Framtíðarstarf
Iðnaðardeild Sambandsins, skinnaiðnaður
Akureyri, óskar eftir að ráða flokksstjóra við
leðursútun. Starfið krefst þokkalegrar ensku-
kunnáttu: Umsóknir sendist starfsmanna-
stjóra, Glerárgötu 28, 600 Akureyri, fyrir 25.
janúar nk. og gefur hann nánari upplýsingar.
Sími 96-21900.
Pökkunarstörf
Óskum að ráða starfsfólk til pökkunarstarfa
sem fyrst. Góð vinnuaðstaða.
Umsóknir með helstu upplýsingum sendist
fyrir 25. janúar nk.
0S1A-0G
SMJÖRSALAN SE
Bitruhálsi 2 — Reykjavík — Sfml B2S11
Hagvangur hf
-- SÉRHÆFÐ RÁÐNINGARRJÓNUSTA
BYGGD Á GAGNKVÆMUM TRÚNAÐI
Ritari (304)
Fyrirtækið er heildverslun í miðbæ Reykja-
víkur.
Starfssvið: Útskrift reikninga, toll- og verðút-
reikningur, vélritun, skjalavarsla o.fl.
Við leitum að manni með haldgóða reynslu
af ofangreindum störfum. Vinnutími frá kl.
9.00-17.30. Laun samkomulag.
Vinsamlegast sendið umsóknir á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar númeri viðkomandi starfs.
Hagvangur hf
RÁÐNINCARPJÓNUSTA
GRENSÁSVECI 13, 108 REYKJAVÍK
SÍMAR: 83666 - 83472 - 83483
Rekstrar- og tækniþjónusta Námskeiðahald
Markaös- og söluráðgjöf Tölvuþjónusta
Þjóðhagfræðiþjónusta Ráöningarþjónusta
Skoðana- og markaðskannanir
Þórir Þorvarðarson
Katrín Óladóttir og Holger Torp.
Ungur
fjölskyldumaður
Með góða almenna menntun og margþætta
starfsreynslu óskar eftir líflegu og vel laun-
uðu ábyrgðarstarfi. Er núna starfandi sem
aðalgjaldkeri hjá stóru fyrirtæki. Tilboð
sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„P - 0429“
Rafiðnfræðingar
— Rafvirkjar
— Rafvélavirkjar
— Nemar
Viljum ráða:
Rafiðnfræðing eða rafvirkja með hliðstæða
menntun, til að annast viðhald og þjónustu,
ásamt því að vera yfirverkstjóra til aðstoðar.
Fjölbreytt vinna.
Rafvélavirkja til vinnu á rafvélaverkstæði í
almenna viðgerða- og viðhaldsvinnu.
Nema í rafvirkjun. Fyrstu mánuðirnir yrðu
vinna á efnislager. Þeir sem lokið hafa verk-
námi iðnskóla ganga að öðru jöfnu fyrir.
Upplýsingar um námsárangur óskast.
Getum boðið á leigu litlar einstaklingsíbúðir
skammt frá vinnustað. Munum aðstoða við
útvegun leigúhúsnæðis fyrir fjölskyldur.
Upplýsingar gefur Óskar Eggertsson, sími
94-3092.
Póllinn hf., safirði.
Sölu og
markaðsmál
Við leitum að konu 30-33 ára til starfa hjá
útgáfufyrirtæki að markaðsmálum.
Reynsla æskileg ásamt enskukunnáttu.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist okkur fyrir 25. janúar.
ftJÐNTÍÓNSSON
RÁÐG JÖF & RÁÐN I NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI621322
Lagermaður
Stórt fyrirtæki, vel staðsett vill ráða starfs-
mann til lagerstarfa og úrkeyrslu, strax.
Við leitum að ungum, áhugasömum og
duglegum aðila, sem vinnur sjálfstætt, er
reglusamur og stundvís.
Eiginhandarumsóknir sem tilgreini aldur og
fyrri störf, sendist okkur fyrir 25. jan. nk.
ft JÐNT ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐN I NGARÞJÓN LISTA
TUNGÖTU 5. I0l REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Aðstoðarmaður
rafvirkja
Laghentur maður með einhverja þekkingu á
rafmagni óskast til aðstoðar rafvirkjum við
víralagnir og fleira.
Umsóknir sendist til augl.deildar Mbl. merkt:
„Röskur-0604“ hið fyrsta.
Kennslustörf
íGhana
Þróunaraðstoð/menningarsamskipti
AFS lönd í Evrópu (EFIL) hafa tekið að sér
að útvega 25 kennara til starfa í Ghana
skólaárið 1986-1987 í samvinnu við AFS
International/intercultural Programs og AFS
í Ghana.
AFS á íslandi stefnir að því að gefa tveim
íslenskum kennurum kost á að taka þátt í
þessu starfi skólaárið 1986-1987.
Tveir íslenskir kennarar eru nú starfandi í
Ghana á vegum AFS á íslandi með stuðningi
Menntamálaráðuneytisins og Þróunarsam-
vinnustofnunar íslands.
Einkum vantar kennara til reynslu í raun-
greinum s.s. stærðfr., efnafr., eðlisfr. og á
sviði jarð- og búfjárræktar (agricultural sci-
ence). Væntanlegir kennarar starfa á fram-
haldsskólastigi (þ.e. við menntaskóla, land-
búnaðarskóla og kennaraþjálfunarskóla).
Aldur nemenda er 12-25 ára. Eingöngu koma
til greina einhleypir kennarar eða barnlaus
hjón sem bæði kenna.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin
skilyrði:
☆ Aldurslágmark 25 ára.
☆ Minnst 3ja ára kennslureynsla.
☆ Góð enskukunnátta.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar
fást á skrifstofu AFS milli kl. 15.00-17.00
virka daga, eða í síma 25450.
Umsóknarfresturertil föstudagsins 7. febrúar.
á íslandi
- alþjóðleg fraeðsla og samskipli -
iSlj LAUSAR STÖÐUR HJÁ
W REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
Gæslukonur óskast til starfa í Ásmundar-
safni.
Vinnutíminn í vetur er þriðjudaga, fimmtu-
daga, laugardaga og sunnudaga frá kl.
14.00-17.00.
Alla daga í sumar frá kl. 10.00-17.00.
Upplýsingar gefur Gunnar Kvaran í Ás-
mundarsafni í síma 32155.
Umsóknum ber að skila til starfsmanna-
halds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,
6. hæð á sérstökum umsóknareyðublöðum
sem þar fást fyrir kl. 16.00, mánudaginn 3.
febrúar 1986.