Morgunblaðið - 25.01.1986, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 25. JANÚAR1986
Hollustubyltingin/ Jón Óttar Ragnarsson
Næringin og hjartað
Fáir íslendingar gera sér grein
fyrir því að hjarta- og æðasjúk-
dómar, okkar helsta dánarorsök,
voru nær óþekktir fyrir 70 árum.
Mynd A hér á síðunni sýnir
hvemig þessi faraldur bókstaflega
„tókst á loft“ í kringum
1930—1935 uns hann var orðinn
algengasta banamein íslendinga.
Eins og sjá má náði faraldurinn
hámarki 1980 til 1975 eftir að
áróður Hjartanefndar og mat-
vælafræðinga fyrir bættu matar-
æði var farinn að hafa áhrif.
Enn stafa um 40% allra dauðs-
falla af hjarta- og æðasjúkdóm-
um, ýmist í kransæðum (krans-
æðastífla) eða heilaæðum (heila-
blóðfall)!
Beint í æð!
Rannsóknir sýna að ein megin-
orsök þessa faraldurs hérlendis
sem annars staðar á Vesturlönd-
um er ofneysla á harðri fitu og
vanneysla á fljótandi olíum.
Reyndist lykillinn að sjúkdóm-
inum vera svonefnd fitukenning
sem ofanritaður og fleiri hafa
haldið fram í áratug gegn háværri
andstöðu kerfiskarla.
Þegar við Bjami Þjóðleifsson,
Ársæll Jónsson o.fl. héldum ráð-
stefnu um Næringu og heilsu
1977 varð uppi fótur og fit í
landbúnaði og læknastétt.
í dag em aðrir tímar. í foiystu-
sveit íslensks landbúnaðar og
læknastéttar em nú þeir menn í
meirihluta sem vita að þessi þekk-
ing stóðst.
Þessi stefnubreyting veldur
því að nú er í fyrsta sinn hægt
að móta manneldisstefnu sem
byggir á alhliða heilsuvemd ís-
lensku þjóðarinnar.
Hjartað
Akkilesarhæll líkama okkar nú
á dögum er hjartað. Em hjarta-
og æðasjúkdómar (einkum krans-
æðasjúkdómar) algengasta dán-
arorsökin.
Sem betur fer hefur áróður
Hjartavemdar, matvælafræðinga
og fleiri augljóslega haft umtals-
verð áhrif í þá átt að sporaa gegn
sjúkdóminum.
Hins vegar eiga íslendingar
langt í land að ná sama árangri
í þessum efnum og Bandaríkja-
menn sem mest hafa lagt stund
á áróður af þessu tagi.
Því miður hafa þeir sem sífellt
em að tönnlast á háum meðalaldri
íslendinga ekki ýtt undir róttækar
breytingar á lífsvenjum þessar
þjóðar.
KRANS/H)ASJÚKDÓMAR
Ídánartdm á DÁNARTÍDNI í KÖRLUM
1911-1981
1811-15 ‘31-'36 ’SI-M '71-75
Áfí
Reyndin er sú að enn hrynur
flöldi íslendinga á besta aldri
niður úr þessum sjúkdómum. Án
þessara dauðfalla mundi meðal-
aldur hækka talsvert enn.
Og hár meðalaldur segir heldur
ekkert um allan þann mikla fjölda
sem fær hjartaáfall, lifir við skerta
heilsu, jaftivel í hjólastól!
Næringin og
æðakerfið
Rannsóknir hafa sannað að
mataræði skiptir sköpum fyrir
hjarta- og æðasjúkdóma.
Fyrsta áhættustigið felst í því
að borða fitu með vitlausa sam-
setningu, þ.e. of mikið af harðri
fitu og of lítið af fljótandi fitu.
Hörð fita (og kólesterol) hækka
svokallaðan LDL-þátt blóðfitunn-
ar sem aftur á mestan þátt í því
að kransæðamar (mynd B) (og
heilaæðamar) kalka og lokast.
Fljótandi fita, hvort sem það
em jurtaolíur eða fiskolíur (lýsi)
lækka aftur á móti LDL-þáttinn
og spoma því gegn því að æðamar
kalki.
Til allrar hamingju fyrir okkur
íslendinga hefur nú komið í ljós
að fiskolíur em jafnvel enn betri
vöm gegn þessum sjúkdómum en
jurtaolíur.
Næringin og blóðfitan
Næringarefni Áhrif á æðakerfið
Hörð fita Kólesterol Fljótandi jurtaolíur Fljótandi fiskolíur hækkar blóðfitu (LDL) Hækkar blóðfitu (LDL) Lækkar blóðfitu (LDL) Lækkar blóðfitu (LDL)
Annað áhættustigið er þegar
blóðfitan fer yfir hættumörk, þ.e.
jrfir 280 mg/100 ml blóðs eins og
gerst hefur hjá um fjórðungi full-
orðinna karla.
Þar með er hættan á hjarta-
og æðasjúkdómi orðin meira en
tvöfalt meiri en eðlilegt er. Þessir
einstaklingar verða því strax að
breyta um mataræði.
En næringin hefur einnig áhrif
á annan mikilvægasta áhættuþátt
þessara sjúkdóma: of háan blóð-
þrýsting sem einnig getur hæg-
lega tvöfaldað áhættuna.
Þriðji áhættuþátturinn em svo
sígarettureykingar. Þannig tvö-
faldast t.d. áhætta hjá þeim sem
reykir að jafnaði 20 sígarettur á
dag.
Áhættuþættimir margfaldast
saman þannig að hjá þeim sem
reykir, er með of háa blóðfitu og
háan blóðþrýsting er áhættan
a.m.k. 8 sinnum meiri en eðlilegt
er(2x2x2=8)!
Ástandið á íslandi
Því miður er mataræði íslend-
inga ennþá afar óheppilegt í þess-
umefnum.
Það sem íslendingar gera fyrst
og fremst vitlaust er að þeir borða
alltof mikið af harðri fitu og alltof
lítið af allri fljótandi fítu.
Hlutfallið milli fljótandi og
hörðu fitunnar hér á landi er
ennþá sérlega lágt, ekki nema ’/r.
sem er með því allra lægsta sem
þekkist í nokkm landi.
Þrátt fyrir það var þetta hlutfall
ennþá lægra fyrir 25 ámm, þ.e.
áður en áróður Hjartavemdar og
matvælafræðinga fór að hafa til-
ætluð áhrif.
Þetta er fyrst og fremst ástæð-
an fyrir því hve fitan (og LDL) í
blóði íslendinga er há og hve
æðakölkun og hjartasjúkdómar
em algengir.
Hverju þarf að breyta?
Ifyrst og fremst þurfum við að
breyta samsetningu fitunnar með
því að draga svo um munar úr
neyslu á allri fitu sem kemur hörð
úr ísskáp (harðfeiti).
I þessum flokki em allar feitar
kjötvömr og mjólkurvömr, djúp-
steikt fæða og allt súkkulaði og
konfekt, svo nefndir séu helstu
sökudólgamir.
Af kjötvömm ættu þessir þjóð-
félagshópar að halda sig við
magurt kjöt og forðast m.a.
spægipylsu, rúllupylsu, kinda-
kæfu, beikon og bjúgu.
Af mjólkurmat ættu þessir hóp-
ar að halda sig fyrst og fremst
við léttmjólk og undanrennu,
kotasælu og skyr, léttjógúrt og
aðrar fítuskertar vömr.
Um fiskinn gildir hið gagn-
stæða. Fitan í honum er mjúk og
hefur því jákvæð áhrif hvort sem
hún kemur úr feitum fiski eða
mögmm. Fiskneysla þyrfti því að
aukast!
En ekki nóg með það. íslend-
ingar borða líka allof mikla fitu.
Fá þeir um 42% orkunnar úr fitu
og þyrfti neyslan í heild að minnka
um þriðjung.
Þessi þriðjungslækkun á fitu-
neyslu gildir fyrir alla íslendinga,
en er sérlega brýn fyrir karlmenn
á öllum aldri og konur yfir fert-
ugu.
Þetta þýðir minna viðbit og fitu
í matseld (burt með djúpsteiktan
mat), skera fituna burt af kjöti
og minnka neyslu á öðmm feitum
mat.
Djúpsteikt fæða
Annar vágestur sem nýlega er
farið að bera æ meira á er djúp-
steikt fæða, ekki steikt í jurtaolíu,
heldur í gijótharðri fítu.
Þessi fita er nú seld í matvöm-
verslunum (sjá mynd C) og ættu
sem flestir að kynna sér innihald
hennar ef þeir vita ekki hvað hörð
fita er.
Það er í stuttu máli um þessa
afurð að segja að allir íslenskir
neytendur (sem og framleiðendur)
ættu að sneyða hjá henni og nota
eingöngu jurtaolíur til djúpsteik-
ingar.
I landi þar sem alltof mikið er
þegar framleitt af harðfeiti og
verið er að beijast við að auka
hlutfall fljótandi fitu er svona
harðfeiti óþörf.
Þar fyrir utan ættu neytendur
að gera sér ljóst að djúpsteikt
fæða er ávallt fíturík og því aldrei
heppilegur kostur fyrir þá sem
vilja huga að heilsunni.
Lokaorð
Hjarta- og æðasjúkdómar eru
enn algengasta dánarorsök ís-
lendinga. Til þess að draga úr
þessum skelfilegu sjúkdómum
þurfa íslendingar að breyta mat-
aræði sínu.
Því miður vita íslenskir karl-
menn oftast lítið um mataræði,
t.d. hvaða fita er hörð og hvaða
fita ekki. Það em engu að síður
þeir sem em í mestri hættu.
Heilbrigðisráðuneytið og land-
læknir þurfa að beijast fyrir því
að tekinn verði upp skipulagður
áróður gegn þessum ógnvaldi ís-
lensku þjóðarinnar... nú þegar!
ÆÐAKÖLKUN
Á FRUMSTIGI Á HÁU STIGI
INNRA LAG
(ÆÐAÞEL)
Vbitángahúsió SERENGISAMPOR
gerir kunnugt=Um síóustu helgi
var hamborgaraútsala - núna er
TVEGGJA DAGA
-KJUKLINGA-
UTSALA
OG (BITrNN’ VBRDVR A
45 KALL!!
VEITINGAHUSIÐ
SPRENGISANDUH
Bústaóavegi 153 © 6 88 0 88
Tómas A.'Iómasson
Grænlendingar
kynna Japönum
land ogþjóð
Kaupmannahðfn, 23. janúar. Frá Nils
Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
UMFANGSMIKIL Grænlanssýn-
ing verður sett upp í Japan í júll-
mánuði og mun hún standa í eitt
ár. Sýningarhaldið hefst í Tókýó
og verður síðan fram haldið í átta
japönskum borgum.
Að sögn grænlenska útvarpsins
verður lifandi náhvalur eitt af sér-
kennilegustu fyrirbæmm sýningar-
innar, þ.e.a.s. ef það tekst að flytja
dýrið til Japans.
En það, sem Japanir hafa mestan
áhuga á, em leiðangrar til norður-
heimskautsins, - en á sýningunni
verða einnig raktir þættir úr sögu
Grænlands, landafræði ogþróun.
Þar að auki ætla yfirvöld sjávar-
útvegsmála á Grænlandi að nota
tækifærið og kynna Japönum græn-
lenskar fiskafurðir.
m? n i>0