Morgunblaðið - 25.01.1986, Qupperneq 41
MORGUNBLABIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1986
41
dóttir afa, Þorbjörg móðir mín og
Eyjólfur stjúpfaðir minn, gættu
búsins á Suðurgötu 5 af miklum
kærleik í 15 ár. Þorbergur Friðriks-
son eiginmaður Sigurbjargar móð-
ursystur minnar var fyrsti lærlingur
afa í málaraiðn og traustur félagi
alla tíð. Afi var aufúsgestur á heim-
ilum bama sinna, sjálfsagður ferða-
félagi þeirra í sumarfríum og sterk-
ur bakhjarl í blíðu og stríðu. Ekki
er ofmælt að afi hafí notið sérstakr-
ar umönnunar Þorbjargar móður
minnar.
Afi lærði sína málaraiðn hjá
Guðna Magnússyni málarameist-
ara. Vináttan við Guðna var dýr-
mæt gersemi sem afi gætti vel. Afí
var þekktur af góðum og heiðarleg-
um vinnubrögðum. Málarar Suður-
nesja hafa margir notið leiðsagnar
hans og tryggrar vináttu. Á yngri
árum mínum vann ég og ýmsir fé-
lagar mínir á sumrin með afa. Hann
náði einatt mjög góðu sambandi við
æskuna og hafði ánægju af því að
fylgjast með glaðværum ungmenn-
um. Margir eiga góðar minningar
um málningardósir í kjallaranum á
Suðurgötu 5 og málningarstiga sem
fluttir voru milli staða í glæsilegum
Opel-bílum. Eg minnist sérstaklega
lærdómsríkra vinnudaga með afa
og Þorvaldi Guðjónssyni sem vann
um árabil hjá honum.
Afa auðnaðist, eins og hann þráði
mest, að búa í sínum helgidómi á
Suðurgötunni þar til yfír lauk. Hin
síðari ár hafði hin mikla sómakona
Ingibjörg Magnúsdóttir um tíma
umsjón með heimilinu. Þau áttu
sameiginlegar minningar um gamla
daga í Keflavík og var Inga ráðs-
kona góður félagi. Nú síðast fékk
afi góða aðstoð hjá Sigríði Jóhanns-
dóttur.
Afi á Suðurgötunni sem alltaf
heilsaði bömum okkar hlýjum og
vinnulúnum höndum er nú allur.
Afa mínum þakka ég veganestið
oggóða samfylgd.
Ingi Valur Jóhannsson
Alþýðusambandsforystan á undanhaldi,
segja Samtök kvenna á vinnumarkaði:
„Kjörin munu rýrna
stöðugt árið 1986“
KRÖFUR ASÍ miðast við að
kaupmáttur taxta skv. gildandi
taxtakerfi haldist á árinu sá sami
og 1985. Samtök kvenna á vinnu-
markaði benda á, að verðbólga
mælist nú 42%, en í kröfugerð
ASÍ er miðað við 30% verðbólgu.
Þar sem ekki er gert ráð fyrir
neinum dýrtíðarbótum þýða
kröfurnar einfaldlega að kjörin
munu rýma stöðugt árið 1986,
segir m.a. í ályktun frá Samtök-
um kvenna á vinnumarkaði.
Þar segir ennfremur: „Samtök
kvenna á vinnumarkaði harma að
forysta verkafólks skuli enn einu
sinni ætla að ganga til samninga
við atvinnurekendur án þess að nýta
þann styrk, sem felst í samtaka-
Lýst eftir þremur
stolnum bifreiðum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir þremur bifreiðum, sem
hefur verið stolið að undanfömu
og ekki fundist. Um áramótin var
Toyota Mark Il-bifreið árgerð
1972 stolið frá Ljósvallagötu 12.
Bifreiðin er blá að lit og ber
einkennisstafina R-10902.
Sunnudaginn 12. janúar var
Austin Mini-bifreið árgerð 1974
stolið frá Hverfisgötu 103. Bifreiðin
er gul að lit og ber einkennisstafína
R-69494. Daginn eftir var Daihatsu
station-bifreið árgerð 1978 stolið
frá Birkimel 10. Hún er rauð að lit
og ber einkennisstafína R-43806. í
bifreiðinni var trommusett.
mætti og þátttöku félaga verkalýðs-
hreyfíngarinnar. Samtök kvenna á
vinnumarkaði ítreka þau einföldu
sannindi, að við sigrum ekki í kjara-
baráttunni nema með breyttum
vinnubrögðum."
Síðan segir að kröfumar séu lýs-
andi vottur um undanhald forystu
verkalýðshreyfingarinnar. f fyrsta
lagi sé ekki krafist vísitölutrygging-
ar launa - fráleitt sé að treysta
stjómvöldum til að ábyrgjast verð-
lagsþróun ogtryggja „að umsaminn
kaupmáttur haldist", eins og það
sé orðað. í öðru lagi sé krafan um
20 þúsund króna lágmarkslaun of
lág og í þriðja lagi séu launakröf-
umar allt of lágar. Samkvæmt þeim
kröfum, segir í ályktun samtak-
anna, verða sex neðstu launaflokk-
amir undir 25 þúsund krónum á
mánuði. „Það em fyrst og fremst
konur sem fá greitt samkvæmt
neðstu launaflokkunum. Miðað við
kröfugerðina em þær konur um sjö
klukkustundir að vinna fyrir einni
krabbameinsskoðun," segir í álykt-
uninni.
Um þrjátíu þúsund
hafa séð Löggulíf
UM þijátíu þúsund manns hafa séð
kvikmyndina Löggulíf sem fmm-
sýnd var 19. desember s.l. Myndin
er sýnd í Nýja bíói í Reykjavík, en
auk þess hefur hún verið sýnd úti
á landi í Keflavík, Akureyri, Dalvík,
ÓLafsfirði, Bolungarvík, ísafírði og
Vestmannaeyjum.
Nú mega fleiri en Danir
fara að vara sig
Því við bjóðum afbragðsgóðar
spægipylsur og salami í úrvali, m.a.
Servelatpylsu, Franska pylsu, Þýska
spægipylsu, Danska laukpylsu, ölpylsu,
o.fl. o.fl.
Komið — smakkið — sannfærist
Ármúla og Eiðistorgi
^m^mmammmmmmmmmmmmm^mm
Vörumarkaðurinnhf.
73S
Renndu við
í reynsluakstur og þú
sannfœrist um aðiTERCEL 4WÐ
SPECIAL SERIES er hverrar krónu virði.
%
I TOYOTA TERCEL 4WD fer ótroðnar slóðir.
Hann er stórskemmtilegur bœjarbíll með mikið flutningsrými,
auk óvenjulegrar fjölhœfni, enda með drifi ó öllum hjólum.
Þegar fœrð og veður gera akstur erfiðan, ekur þú
leiðar þinnar þœgilega og óhyggjulaust.
Tœkni TOYOTA við smíði bílvéla sérTERCEL 4WD
fyrir nœgu afli en lógmarks eldsneytiseyðslu.
TERCEL4WD SPECIAL SERIES
ersérbúinn bíll, þarsemsamanfara
aukin þœgindi og útlit sem
vekur athygli.
*■ - j . -m* -.