Morgunblaðið - 29.01.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 29.01.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1986 25 gekni lafið Vesturlöndum, fara í gegnum Búlg- aríu og nota þá gjaman tækifærið til að græða peninga með því að selja svartamarkaðsbröskurum of- beldis- og klámmyndir á mynd- böndum. Nýlega gerðu yfírvöld í Búlgaríu upptækan smyglvaming og var hann sagður vera: „ .. við- bjóðslegar myndir sem ólögleg einkafyrirtæki framleiða í kjallara- holum og hóruhúsum einhvers stað- ar á milli Istanbúl og Kalkútta." Víst er, að slíkar fréttir eru síst til þess fallnar að slæva áhuga unga fólksins í Búlgaríu. Lokuð samfélög- Vandi kommúnistaríkjanna felst í sjálfri samfélagsgerðinni. Hvemig er unnt að samræma upplýsinga- flæði tæknialdar og lokað þjóðfé- lag? Tækniframförum fylgir pólitísk áhætta, einkum innan þeirra sam- félaga, þar sem takmörkun upplýs- inga er grundvöllur valdsins. Tölvuvæðingin er þegar tekin að valda stjómvöldum erfíðleikum. Pólskir andófsmenn nota margir hveijir tölvur og prentara og eiga þannig auðveldara en áður með að koma gagnrýni sinni á framfæri. Bæklingum og jafnvel heilum bók- um er smyglað inn í Pólland á diskl- ingum og þær síðan prentaðar þar. Og hvað gerist ef ungum tölvusnill- ingum tekst að „bijótast inn í“ tölvukerfí vamarmálaráðuneyta V arsj árbandalagsríkj anna? Tékkneskir andófsmenn hafa sagt, að myndbandstækni muni á næstu tíu ámm verða jafn mikilvæg fyrir frelsisbaráttu þeirra og ljósrit- unarvélin hefur verið síðustu tvo áratugi. í Tékkóslóvakíu eru um 5.000 myndbandstæki í einkaeign, í Ungveijalandi em þau 40.000 og u.þ.b. 10.000 í Búlgaríu. Hins vegar er talið að um 150.000 slík tæki séu í Póllandi. Stöðugt fleiri eignast myndbönd en ennþá em þau fyrst og fremst leikföng yfírstéttarinnar. Hinu má ekki gleyma, að eitt tæki getur haft ótrúleg áhrif. Gervihnattasendingar Loftnet til móttöku á gervihnatt- arsendingum em seld á svörtum markaði í vesturhluta Póllands. Einnig á því sviði eiga stjómvöld undir högg að sækja. Þegar sjón- varpssendingar í gegnum gervi- hnetti hefjast verður nánast óger- legt að trafla þær. Leiðtogar Aust- antjaldsríkjanna óttast mjög, að Bandaríkjamenn taki að framleiða sérstaka sjónvarpsþætti fyrir áhorf- endur í kommúnistaríkjunum og keppi þar með við innlendar dag- skrár. Jafnvel þótt Bandaríkjamenn láti nægja að sýna þætti eins og Dallas og Dynasty má telja ömggt að stór hluti sjónvarpsáhorfenda í Austur-Evrópu mun fylgjast með þeim myndaflokkum. Ráðamenn sjónvarpsmála í Aust- ur-Evrópu hafa þegar reynt að bregðast við þessari þróun með ví að auka sýningar á léttu efni. Austur-Þýskalandi eiga sjón- varpsáhorfendur þess kost að horfa á vestur-þýska sjónvarpið. Austur- Þjóðveijar hafa bmgðist við þessari samkeppni með því að fjarlægja svo til allan pólitískan áróður úr sjón- varpsdagskránni og sýna nú mikið af gömlum og góðum kvikmyndum. Pólska sjónvarpið hefur einnig leit- ast við að gera dagskrána léttari og hafa ráðamenn þess íhugað að taka kvikmyndina Emanuelle til sýningar. Ljóst er að nú er hafíð mikið kapphlaup á milli austurs og vesturs á sviði fjölmiðlunar og hátækni. Ríki Austur-Evrópu munu gera hvað þau geta til að vinna upp forskot Vesturlanda því keppnin snýst um hylli almennings handan járntjaldsins. (Grein þessi birtist í The Times í London.) leggja meiri alúð og markvissari vinnubrögð en flest málverkanna. Þær em býsna máttugar og hrif- miklar sumar hveijar og allar vel unnar. Nefni ég hér sérstaklega myndimar „Andlit" (4), „Janus og félagi“ (18) og „Skepnan" (36). í sumum þessara höggmynda em taktar sem ekki hafa sést áður í list Gunnars Amar svo sem skýr og klár form, sem em meitluð í steininn af yfírvegun og mikilli til- fínningu. Margt á þessari sýningu Gunnars Amar bendir til þess að hann standi á tfmamótum í listsköpun sinni og verður næsta fróðlegt að fylgjast með framvindunni. Hér fylgja honum allar frómar óskir. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÁGÚST ÁSGEIRSSON Robert Murdoch biaðaútgefandi. Hann telur sig hafa brodð veldi hinna herskáu prentsamtaka á bakaftur. Loksins náði prentbylt- ingin til Bretlands MEÐ ÚTKOMU dagblaðanna Sun og The Times f fyrradag var brotið blað í sögu brezkrar blaðaútgáfu, þvf þau eru fyrstu dag- blöðin, sem prentuð eru f Bretlandi án þess að félagsmenn brezku prentarafélaganna og bókagerðamenn kæmu þar nærri. Þessi þátttaskil kunna að marka upphaf mikilla og jafnvel ófyrirsjáan- legra breytinga f brezkri blaðaútgáfu. Ný útgáfutækni er að ryðja sér til rúms, verið er að leggja niður gömlu blýsetninguna en taka upp offset- og tölvutækni, samskonar tækni og beitt hefur verið við vinnslu Morgunblaðsins í röskan áratug. Félög prentlærðra hafa beitt sér gegn þessari tækni af mikilli hörku, en Robert Murdoch, eiganda Sun og The Times hefur nú tekizt að knésetja þau. Robert Murdoch tók um helgina f notkun nýtt blaðhús f Wapping á hafnarsvæðinu f austurhluta Lundúna. Hann reyndi árangurs- laust að ná samningum við prent- ara um starfsfyrirkomulag í nýju prentsmiðjunni en þær viðrœður fóm út um þúfur fyrir helgi. Prent- arar féllust ekki á ákvæði f nýjum samningi sem bönnuðu verkföll. Þeir segjast hins vegar hafa boðist til að samþykkja nýju prenttækn- ina gegn atvinnutryggingu. Þeir hafí boðið að gerðardómur úr- skurðaði um launamál þeirra, að sá úrskurður yrði bindandi og að ákvæði jnðu í samningi er fyrir- byggðu skæmverkföll. Murdoch kveður reynslu sína af prenturum f Fleet Street það slæma að hann hafí ekki treyst sér til að ráða þá f vinnu nema þeir afsöluðu sér verkfallsréttinum. Hann hafði um 6.000 prentara f Fleet Street en kvaðst þurfa aðeins „nokkur hundmð“ f Wapping. Samdi Murdoch á endanum við félag rafeindavirkja og gengu um hundrað rafeindavirkjar f störf, sem prentarar hefðu ellegar sinnt f nýju prentsmiðjunni, sem tekin var f notkun um helgina. Blaðamenn við The Times sam- þykktu á sunnudagskvöld með tveimur þríðju atkvæða að vinna áfram við blaðið og flytjast úr Fleet Street og út f Wapping, þar sem áður vom dokkir Lundúna. Murdoch setti blaðamönnunum tvo valkosti, flutning í Wapping eða uppsögn. Þeir sem tækju fyrri kostinum fengju sjálfkrafa launa- hækkun, sem næmi 2.000 sterl- ingspundum (120 þúsund krónur) á ári. Áður höfðu blaðamenn við Sun og helgarblöðin tvö, Sunday Times og News of the Worid, samþykkt sama tilboð. Stéttarfélög brezkra prent- verksmanna hafa f áratugi barizt einstrengingslega gegn nýjungum f prentlistinni, en hafa nú beðið ósigur f þeirrí baráttu. Hingað til hafa félögin verið f aðstöðu til að sljóma ráðningu prentara á vinnu- staði og þann rétt hafa þau ekki viljað gefa frá sér. Þau hafa svarað breytingum í starfsmannahaldi eða brottrekstri með aðgerðum af ein- hveiju tagi og það hefur verið ásetningur Murdochs að bijóta þetta ofrfki félaganna á bak aftur. Félögin hafa upp á sfðkastið látið í það skfna að þau séu ekki jafn ósveigjanleg og áður fyrir nýrri útgáfutækni, en vera kann að þessi 8tefnubreyting sé of seint á ferð- inni. Murdoch er ákveðinn f að hleypa ekki prentarafélögunum inn f blaðhúsið vfggirta f Wapping og í stórri fyrirsögn á forsíðu Sun á mánudag lýsir hann sigri yfír „verkfallsþijótunum", sem hann kallar prentarana. Arðbær útgáfa Murdoch kveðst hafa reynt í sex ár að semja við prentarafélögin en án árangurs. Hann vildi ekki fá prentara úr Fleet Street f Wapping. Því er haldið fram að meðalmenn- skan hafí verið orðin allsráðandi f Fleet Street. Gffurleg stöðnun hefur einkennt blaðaútgáfuna þar og þörf hafí verið á nýju blóði. Miklar breytingar séu nú hins vegar í uppsiglingu. Með nýrri prenttækni er hagn- aðarvonin í blaðaútgáfu mikil, fái stjóraendur blaðanna að brúka hagkvæmustu framleiðsluaðferðir. Miklir möguleikar em á að lækka tilkostnað með offset- og tölvu- tækninni. Frá 4. marz nk. munu t.d. um 500 menn framleiða 352 síður á viku af blaði Eddie Shah, (Today), en til samanburðar af- kasta 4.000 menn aðeins 288 sfð- um á viku af Mirror, SundayMirr- or og Sunday People með gömlu prenttækninni, þ.e. blýsetning- unni. Afköstin á hvera starfsmann Shah, í blaðsfðum talið, em því tfu sinnum meiri en hjá Mirror-blaða- fyrirtækinu. Ný blöð fæðast Afköstin segja þó ekki alla söguna, því með nýjum samning- um er komið f veg fyrir linnulausar vinnudeilur, sem valdið hafa blað- aútgefendum stórtjóni. í fyrra töpuðu t.d. 13 brezk blöð 96,5 milljónum eintaka f deilum, sem spmttu út af öðm en launamálum. Þá hefur töf sú, sem orðið hefur á innreið nýrrar tækni, valdið út- gefendum tjóni. Robert Murdoch heldur þvf t.d. fram að vaxtagjöld hans vegna Wapping-blaðahúss- ins, sem staðið hefur ónotað um skeið vegna deilna við prentara- samtökin, nemi 30 mil(jónum sterl- ingspunda (nær tveimur milljörð- um króna). Til samanburðar kost- aði blaðhúsið með öllu tilheyrandi 70 milljónir punda. Vaxtakostnað- urinn sé glatað fé, sem ellegar hefði mátt nota til frekari tækni- væðingar eða til að borga betri laun. Með nýrri tækni er von nýrra blaða og munu a.m.k sjö vera f deiglunni. Nær öruggt er að tvö þeirra hefli göngu sfna, Today, blað Eddie Shah, og London Post, sem Murdoch hefur senn útgáfu á. Báðum verður hleypt af stokkunum f marz. Því er reyndar haldið firam að auglýsingar geti ekki staðið undir öllu fleiri blöðum. Breyta litaauglýs- ingar blöðunum? Reyndar mun vera óplægður akur á sviði litaauglýsinga, en út- gefendur em misjafnlega trúaðir á að þar sé að fínna gjöful mið. Murdoch er vantrúaður á að þar sé auð að sækja, en Shah telur að litaauglý8ingar eigi eftir að breyta hlutdeild Qölmiðla f auglýsinga- markaðinum. Liturinn muni auka hlut blaðanna á kostnað sjónvarps. Blöð, sem ekki bjóði upp á litaaug- lýsingar, verði smám saman undir f harðri samkeppni um auglýsing- ar. Munu mörg brezku blaðanna nú búa sig undir að geta birt auglýsingar í liL Menn, sem velta framtíðinni fyrir sér, segja að innan fimm ára verði gífurlegar breytingar á brezkri blaðaútgáfu staðreynd. Nýjasta tækni verði allsráðandi, blöðin verði gefín út f lit, ódýr, unnið verði allan sólar- hringinn að útgáfu þeirra, sjö daga vikunnar. Allur þankagangur við blaðaútgáfu verði allt annar en verið hefúr, starfsmöguleikamir verði miklir og jarðvegur frjór fyrir sköpunargáfa stjóraenda og starfsmanna. Heimildir: AP. Spectmtor. TheEcoaomkt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.