Morgunblaðið - 30.01.1986, Síða 19
E'MMM
Witf
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986
B1
19
HINN MANNLEGI ÞATTUR / Ásgeir Hvítaskáld
Kysstu mig þegar ég
kem heim úr vinnunni
Ég stend við stofugluggann í
kjallara á Nesveginum og hlusta á
Tammy Wynette sjmgja Divorce.
Trén hristast í kvöldmyrkrinu.
Augu mín skjóta neistum er bfll
brunar hjá. Ég sakna hennar, tala
til hennar í hálfum hljóðum:
„Þú varst mín. Ljóshærð með
sólbrennd eyru. Það var sólríkt það
sumar. Þú læddist inn um gluggann
seint á kvöldin. Malaðir í fangi mínu
og ég fann ylinn frá líkama þínum.
Á nóttunum vaknaði ég við andar-
dráttinn þinn við nefið mitt. Á
morgnana eltir þú mig út á stoppi-
stöð og ég saknaði þín strax í
strætó. í leiðinlegu vinnunni innan
um ryðguð olíurör á ryðguðum
flotkrana, þráði ég að stijúka
kroppinn þinn silkimjúka.
Þú varst mín eina og sanna.
Sagðir aldrei mikið. En pjöttuð fram
úr hófi; borðaðir aðeins nýja ýsu
og súrmjólk. Sleiktir vatnið á
sturtubotninum eftir að ég hafði
verið í baði. Þú elskaðir mig þrátt
fyrir öll mistökin mín, elskaðir þrátt
fyrir álit annarra, þrátt fyrir að ég
væri fátækur og flla klæddur og
þó ég væri aðeins skáld.
Stundum fórstu ein eitthvað út
í buskann og ég kallaði á þig út í
kvöldmyrkrið. Þá varstu að fela þig
í tijánum til að veiða fiðrildi. Enginn
skildi ást okkar nema ég og þú.
Samt gátum við ekki elskast til
fúlls.
Þú vaktir á nóttunum en lúrðir
á daginn. Svafst stundum til fóta
mér. Það besta við þig var að þú
gafst aldrei fyrirskipanir og varst
ekki með neinar aðfinnslur. Elskað-
ir mig eins og ég var. Ég vildi við
hefðum getað elskast lengur.
Manstu, þegar ég kom heim úr
vinnunni, skítugur eftir erfiðan dag
á lásí kaupi, þá lást þú í sólargeisl-
anum á stofugólfinu og vildir að ég
stryki þér um kviðinn. Og manstu
þegar ég sagði upphátt:
„Já, kysstu mig nú kisa.“
Mér ieið vel þá.
Ég hrekk upp af íhugun minni
og hvæsi augunum á bflljós sem
bruna eftir Nesveginum. Þannig
taia ég oft til kisunnar minnar sem
er farin, ég veit hún heyrir til mín.
Hún hét Pfla, snjóhvít læða af
síamskyni, gáfuð, tignarleg, há-
fætt, grönn og liðug. Hún var sól-
brennd á eyrunum ef hún var mikið
út í sólskini. Það var mjög erfitt
að fá leiguíbúðir. En ég fékk kjallar-
ann ef ég tók köttinn að mér. Mér
var flla við ketti. Ég leyfði henni
að fara fijálst inn og út um eldhús-
gluggann á meðan ég var í vinn-
unni.
En brátt fórum við að skilja hvort
annað. Ég fór að sjá litia kosti og
hún fór að venjast mér, brátt fékk
ég að stijúka henni. Þegar ég var
einmana og horfði á trén hristast
í garðinum á dimmu sumarkvöldi,
lá hún í gluggakistunni og malaði
til mín. Við hlustuðum á Bob Mar-
ley, Supertramp og Tammy Wy-
nette.
Henni likaði að geta farið fijálst
inn og út um eldhúsgluggann. En
ég vissi ekki að kettir eru óklárir f
umferðinni; skynja ekki bfla sem
blússa eftir malbikinu. Og á Nes-
veginum var mikil umferð. Kisumar
í hverfinu fóru samt yfir götuna til
að komast ofan í flöru þar sem
grasið er hátt og margt að sjá.
Eina nóttina kom Pfla ekki heim.
Ég hélt hún væri á lóðaríi. En hún
var ekki komin um morguninn. Og
ekki hafði hún snert matinn er ég
kom heim úr vinnunni. Ég hringdi
á lögregluna. En fúli lögreglumað-
urinn á vaktinni sagði að ekkert
óhapp væri skráð í dagbókina þessa
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Um skoðanaleysi sagði spakvitur
maður.
Það eru aðeins dauðir fuglar
sem láta berast með straumnum.
Það ber ekkert á skoðanaleysi
þegar á borð eru borin
Bökuð
silung’sflök
600—700 gr silungsflök
hveiti, salt og pipar
1 lítill laukur finsaxaður
25 gr smjörlíki
1 bikar sýrður ijómi
■A bolli sýrðar gúrkur saxaðar
2 matsk. sftrónusafi
'A bolli tómatsósa (ketchup)
'Atsk. mustard duft
‘Atsk. basil
1 grein söxuð steinselja
Nú má fá hér í verslunum ágætan
silung í flökum, úr vötnum norðan
heiða. Verð er viðráðanlegt kr.
275.00 pr/kg. Því er silungsmáls-
verður kærkomin tilbreyting á köldu
vetrarkveldi.
nótt á Nesveginum. Þá hringdi ég
í Kattavinafélagið:
„Er nokkur hvítur köttur hjá
ykkur í vanskilum?"
„Nei, það er það nú ekki.“
„Ertu alveg viss, já ertu alveg
viss?“
Ég leitaði og leitaði, spurði alla
krakka í hverfinu. Kallaði á kvöidin
út í runnana, en kisa kom ekki. Á
hveijum degi er ég kom heim gáði
ég, en karfan var tóm. Það var
engin til að kyssa mig er ég kom
heim úr vinnunni. Lífið varð hund-
leiðinlegt og ég fór að sanka að
mér samkvæmisfólki og byijaði að
drekka.
Ein húsmóðir hafði séð eitthvað
út um eldhúsgluggann. Ég fór á
fund hennar. Hún hafði séð hvítan
jeppa með aftaní-vagni, stöðvast á
Nesveginum. Maður kom út og tók
hvítt hræ upp af götunni. Kerran
var full af drasli, iíkt og hann væri
á leið upp á öskuhauga. Síðan
kastaði hann hræinu í kerruna og
ók af stað. Engum tilkynnt um
atburðinn.
Svona er sagan um kisuna hvítu.
Sem ég rifja oft upp þegar ég
þarfnast hlýju. En mér er spum,
kyssir þú manninn þinn þegar hann
kemur þreyttur heim úr vinnunni?
Elskar þú flekklaust? Ertu blíð og
góð þegar hann þarfnast þess? Yrði
þín saknað ef bfll keyrði yfir þig?
Körfuknattleiks-
deild Fram:
Dregið í
happdrættinu
ÞANN 20. janúar var dregið
hjá Borgarfógetanum í Reykja-
vík í happdrætti körfuknatt-
leiksdeildar Fram. Upp komu
eftirtalin númen
1. vinningur: 2944.
2. vinningur: 3116.
3. vinningur 1701.
4. vinningur 2175.
5. -9. vinningar 3056, 3057,
4061,871,5
10.-15. vinningar: 2652, 525,
4869,3277,729, 4508.
(Birt án ábyrgðar.)
1. Fiökin eru roðflett, þerruð lítil-
lega og skorin í hæfilega stór stykki.
Stráð er salti og pipar á fískstykkin
svo og örlitlu hveiti. Þeim er síðan
raðað á velsmurðan eldfastan disk.
Ofninn er hitaður í 220 gráður.
2. Smjörlíkið er hitað í potti eða á
jiönnu og er fínsaxaður laukurinn
látinn krauma í feitinni þar til hann
er orðinn mjúkur og glær. Þá er fín-
söxuðum sýrðum gúrkum, sýrða
ijómanum, tómatsósu, mustard og
basil bætt út í, og steinselju ef til
er, og er öllu blandað vel saman.
3. Sósunni er smurt jafnt yfir fisk-
stykkin og þau síðan bökuð í 20—25
mínútur.
Berið fram með soðnum gijónum
og heitu hvítlauksbrauði.
Þessi bragðmikli silungsréttur
dillar bragðlaukum vanlátra sæl-
kera. Bragðið er nýtt og óvenjulegt,
og þykir harla gott.
Ferskir niðurskomir ávextir, vel
kældir, eru alltaf góður eftirréttur
virka daga, en líkjör-marineruð
hunangsmelóna þykir vera með því
betra sem boðið er upp á í ábæti til
hátíðarbrigða.
Melónan er skorin í 6—8 báta eða
stykki, þau em síðan stungin út með
gaffli, ekki mjög þétt. Ávaxtalíkjör
1 matsk. er sett yfir hvert stykki
og em þau síðan látin vera í kæli í
1 klukkustund áður en þau em borin
fram.
Verð á hráefni;
Silungsfl. 600 gr kr. 165.00
1 sítróna kr. 10.00
1 laukur kr. 2.50
sýrður rjómi kr. 50.10
Kr. 227.60
NÝTT
SKULDABRÉFAÍJTBOÐ
1. FLOKKUR1986
VEÐDEILD
IÐNAÐARBANKA
ISLANDS HF.
KRÓNUR
200.000.000
Verðgildi hvers bréfs er kr. 100.000,00 og eru bréfin 2000 talsins.
Skuldabréfin eru til fimm ára, með jöfnum árlegum afborgunum,
og bera 2% fasta vexti p.a. auk verðtryggingar.
Til tryggingar bréfum þessum eru eignir og tekjur Veðdeildar
Iðnaðarbanka íslands hf., auk ábyrgðar Iðnaðarbankans
sbr. 36. gr. reglugerðar fyrir bankann nr. 62/1982.
Útboðslýsing er fyrirliggjandi hjá öllum útibúum Iðnaðarbankans.
Reykjavík, 10. janúar 1986,
0
lónaóarbankinn