Morgunblaðið - 30.01.1986, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986
«tO»\ *<W0UA\SS*tI
AP/Símamynd
Shimon Peres (t.v.) leggur blómsveig að minnisvarða um fórnarlömb gyðingaofsókna nasista í
samkunduhúsi gyðinga í Vestur-Berlín á miðvikudag. Á vegginn eru letruð nöfn fangabúða nasista.
Shimon Peres í Vestur-Berlín:
„Múrar rísa og hrynja en
mannsandinn heldur velli“
Vestur-Berlin, 29. janúar. AP.
„Múrar rísa og múrar hrynja,
en mannsandinn heldur velli,“
sagði Simon Peres, forsætis-
ráðherra ísraels, þegar hann
heimsótti hina tvískiptu Berlín-
arborg í dag. Oryggisgæsla
hefur aldrei verið jafn mikil í
Vestur-Berlín af tilefni opin-
berrar heimsóknar og haft er
eftir ónafngreindum lögreglu-
foringja í borginni að hótað
hefði verið að ráða forsætisráð-
herrann af dögum meðan á
heimsókn hans stæði.
Peres hitti leiðtoga Vestur-
Þýskalands í Bonn á þriðjudag
og átti við þá langar viðræður.
Markmið viðræðnanna var að
bæta sambúð ríkjanna, sem enn
er í skugga minninganna frá
gyðingaofsóknum nasista.
Peres snæddi á þriðjudag morg-
unverð með Richard von Weiz-
sácker, forseta Vestur-Þýska-
lands. Þar bauð Weizsácker
Chaim Herzog, forseta ísraels, að
koma til Vestur-Þýskalands og
er haft eftir áreiðanlegum heim-
ildum að Peres hafi þegið boðið
fyrir hönd Herzogs.
Honduras:
Azcona Hoyo tekur
við forsetaembætti
Tegucigalpa, Honduras, 27. janúar. AP.
Jose Azcona Hoyo sór emb-
ættiseið sem forseti Honduras á
mánudag og í ræðu sem hann
héit við það tilefni lofaði hann
að Ieysa efnahagsvanda þjóðar-
innar, sem hann sagði hinn
versta i 50 ár. Azcona Hoyo er
75. forseti landsins og hinn fyrsti
í 55 ár sem nær völdum án ihlut-
unar hersins.
Að sögn sendiráðsmanna í Wash-
ington og Tegucigalpa er álitið að
fyrsta stjómaraðgerð Azeona verði
að aflétta siglingabanni Honduras
á skip Bandarílq'amanna, sem flytja
hjálpargögn til skæruliða er beijast
gegn sandinistastjóminni í Nik-
aragúa. Siglingar þessar hafa legið
niðri síðan í október er stjóm Suazo
Cordova setti siglingabann á þessa
flutninga á þeim forsendum að
hjálpargögnin væru ætluð uppreisn-
armönnum.
Jose Azcona Hoyo.
Svíþjóð:
Tekist á um fram-
lög til varnarmála
Stokkhólmi. 29. janúar. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsina.
BÚAST má við nokkrum átökum á þingi um framlögin til vamar-
mála. Hægriflokkurinn lagði í dag fram tillögur um allverulega
hækkun, sem er nokkm minni en Lennart Ljung, yfirmaður sænska
heraflans, hefur farið fram á.
Hægriflokksmenn leggja til, að
framlögin til vamarmála verði
hækkuð um 2% frá og með næsta
ári. í því felst, að á fimm ára tíma-
bili, 1987—1992, fengi herinn sjö
milljörðum s.kr. meira en gert er
ráð fyrir í tillögum stjómarinnar. I
þeim eru hernum ætlaðir 24,5 millj-
arðar s.kr. á ári.
Þjóðarflokkurinn hallast að því
að auka framlögin um 2,5 milljarða
kr. á fimm ára tímabilinu og Mið-
flokkurinn um þrjá milljarða. Tals-
maður varnarmálanefndarinnar,
Per Borg, telur ekki ólíklegt, að
jafnaðarmenn reyni að ná mála-
miðlun við þessa tvo flokka en úti-
lokað, að reynt verði að nálgast
tillögur Hægriflokksins.
Lennart Ljung, yfirmaður
sænska heraflans, vill, að framlögin
á fímm ára tímabilinu verði aukin
um níu milljarða s.kr. en jafnvel
Hægriflokkurinn telur það ófram-
kvæmanlegt að sinni.
Kasparov og Karpov:
Einvígið hefst
um Olafsmessu
Luzem, Sviss, 29. janúar. AP.
Alþjóðaskáksambandið, FIDE, ákvað í dag að fresta einvíginu
milli þeirra Garris Kasparov og Anatolys Karpov fram á sumar en
fyrirhugað hafði verið, að það færi fram í febrúar.
Florencio Campomanes, forseti
FIDE, og stórmeistaramir tveir
undirrituðu skjal þar sem segir, að
einvígið skuli heú’ast einhvem tíma
milli 28. júlí og 4. ágúst en ein-
vígisstaðurinn hefur enn ekki verið
ákveðinn.
Kasparov var andvígur því að
gefa Karpov tækifæri til að endur-
heimta titilinn svona fljótt en regl-
umar um það em mnnar undan
rifjum Campomanes sjálfs. Hafði
Kasparov tvisvar sinnum verið
veittur frestur til að fallast á nýtt
einvígi en í hvomgt skiptið hafði
hann sinnt því. Þeir stórmeistaram-
ir vilja báðir tefla í Leningrad en
Campomanes vill, að London og
Leningrad skipti einvíginu með sér.
Búist er við, að úr þessu fáist skorið
á næstu dögum.
Afganistan:
Harðar loftár-
ásir Sovétmanna
Islamabad, 29. janúar. AP.
TUGIR sovézkra skriðdreka studdir sprengjuþotum gerðu mikla
árás á stöðvar skæruliða í Afganistan fyrir nokkrum dögum. Gerð-
ist þetta í austurhluta landsins. Um 140 skæruliðar féllu eða særðust
i þessum bardögum, sem voru þeir hörðustu í landinu um langt
skeið. Halda skæruliðar því fram, að mikið mannfall hafi einnig
orðið í liði Sovétmanna og jafnframt hafi þeir eyðilagt fyrir Sovét-
mönnum 6 skriðdreka og skotið niður tvær þyrlur þeirra og eina
herþotu.
Nokkmm dögum áður höfðu mannfall hafa orðið í liði sínu, en
Sovétmenn gert mikla loftárás á einnig hafí margir óbreyttir borgar-
borgina Herat í vesturhluta Afgan- ar fallið eða særzt í þessum árásum.
istans. Segja skæmliðar mikið
Kanadískir slysafræðingar um hvarf þotu Air India:
Sprengja indverskra
síkha grandaði þotunni
Delhi, 28. janúar. AF.
SPRENGING olli því að indversk þota fórst suðvestur af ír-
landi 23. júní sl. með 329 manns innanborðs, samkvæmt
skýrslu aðila, sem rannsakað hafa fyrir kanadísk stjórnvöld
hvað oUi þvi að þotan fórst. Ríkisstjórn Kanada birti skýrsluna
í dag. Þar er haldið fram að sprengjan hafi verið í ferðat-
ösku. sem sett var um borð í þotuna í Toronto.
í skýrslunni segir að menn að
nafni M. og L. Singh hafí samtímis
tékkað inn farangur sinn í Tor-
onto. Hafi þar verið að verki ind-
verskir síkhar, sem búsettir em í
Kanada. Taska M. Singh fór um
borð í indversku þotuna, sem síðar
millilenti í Montreal á leið sinni
til Lundúna og Bombay. Taska
L. Singh fór hins vegar um borð
í þotu kanadíska flugfélagsins
Cathay Pacific og átti að fara
yfir í indverska þotu í Tókýó. Sú
taska sprakk á flugvellinum í
Tókýo er verið var að flytja hana
milli flugvéla og biðu tveir hlað-
menn bana. Sprengingin varð
aðeins um einni stundu áður en
indverska þotan fórst undan ír-
landi, þegar taska M. Singh
sprakk, að því er fram kemur í
skýrslunni. Hvoragur töskuhaf-
anna tóku sér far með þotunum.
Bein tengsl era talin milli þessara
atburða.
í skýrslunni kemur einnig fram
að gegnumlýsingarbúnaður á
flugvellinum í Toronto hafí bilað
er tekið var á móti farangri um
borð í indversku þotuna. Starfs-
menn hafí þá gripið til bráða-
birgðabúnaðar, sem einnig reynd-
ist vera í ólagi. Töskumar hafí
því auðveldlega sloppið fram hjá
sprengjuleit.
Frá því er greint í skýrslunni
að ummerki á braki, sem náðist
upp af hafsbotni, styðji ótvírætt
kenninguna um að sprengja hafí
sprungið um borð og grandað
þótunni.
Lilli Palmer látin
Lob Angeles, 29. janúar. AP.
LEIKKONAN Lilli Palmer lést
á mánudag á heimili sinu í Los
Angeles. Hún var 71 árs að
aldri. Palmer lék í meira en 50
kvikmyndum á móti stjörnum
eins og Clark Gable, Fred Ast-
aire, William Holden að
ógleymdum Rex Harrison, sem
hún var gift um skeið.
Fyrsta þekkta kvikmyndin, sem
Lilli Palmer lék í, var mynd Alfred
Hitchcocks, „Secret Agent", sem
gerð var 1936. Síðan hefur hún
leikið í fjölda af frægum kvik-
myndum og sjónvarpsþáttum.
Ennfremur gaf hún út sjálfsævi-
sögu og fímm skáldsögur, sem
náðu miklum vinsældum.
Lilli Palmer fæddist í Posen í
Þýzkalandi og kom fyrst fram á
sviði í Berlín 1932. Er nazistar
komust til valda, flýði hún til
Parísar og síðan til London, þar
sem hún tók að leika 1935. Hún
giftist enska leikaranum Rex
Harrison 1943 og árið 1944 eign-
uðust þau einn son. Síðar skildu
Lilli Palmer.
þau og árið 1957 giftist hún
Carlos Thompson, argentínskum
leikara og rithöfundi, sem lifir
konu sína.
Sjálfsævisaga Lilli Palmer hef-
ur verið þýdd á íslenzku og var
lesin í útvarpinu sem framhalds-
saga á sínum tíma.