Morgunblaðið - 30.01.1986, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986
35
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
„Kæri stjömuspekiþáttur!
Mig langar til að vita hvemig
kona fædd 05.07.’55 kl. 04.10
og rnaður fæddur 21.11.’50
kl. 01.30 bæði í Rvík eiga
saman og hvað þú getur sagt
mér um hæfíleika, atvinnu og
persónuleika okkar? Með fyr-
irfram þakklæti.“
Svar
Þið eigið í grundvallaratriðum
vel saman. Hann er Sporð-
dreki og þú ert Krabbi. Það
em skyld merki og táknar að
tilfinningalegur skilningur er
á milli ykkar, að þið t.d. skynj-
ið sjálfkrafa líðan hvors ann-
ars. Þið emð einnig bæði fost
fyrir og viljið varanleika.
Daglegt líf
Um spennu er að ræða milli
ykkar á tilfinningasviðinu og
hvað varðar daglegt líf. Þessi
spenna birtist reyndar innra
með ykkur báðum, þannig að
þegar allt kemur til alls þarf
hún ekki að valda ykkur vand-
ræðum. Hann hefur tungl í
Hrút og Júpíter í spennuaf-
stöðu við Sól sem táknar að
hann er eirðarlaus.og þarf á
töluverðri hreyfingu að halda.
Hann er einnig nýjungagjam,
þarf að færa út sjóndeildar-
hringinn og ferðast. Hann er
kraftmikill og sjálfstæður, er
ráðríkur og vill fara sínu fram.
A miklu veltur hvernig hann
heldur á þessari orku sinni.
Pf hann er í sjálfstæðu starfí
sem gefur kost á einhverri
hreyfíngu er líklegt að hann
fái útrás fyrir orku sína.
Iþróttaiðkun er einnig góð
fyrir hann. Þú ert íhalds-
samari og þarft á meira öryggi
að halda. Þú ert formfastri
og hefur sterkari ábyrgðar-
kennd. Reyndar hafíð þið bæði
sterka ábyrgðarkennd, en ef
hann fær ekki útrás fyrir kraft
sinn gæti komið til árekstra.
Þú ert „mýkri" persónuleiki.
Þið emð bæði tilfínningalega
næm en hann brynjar sig
meira og er „grófari“. Hann
er skapstór og getur átt það
til að vera gagnrýninn og
hvass.
Lík hugsun
Þið hafíð ekki ólíka hugsun,
emð bæði fijálslynd og eirðar-
laus í hugsun og hafíð gaman
af því að pæla í ýmsu. Þið
eruð bæði jákvæð og forvitin,
emð hress og hrein og bein í
tali. Þú hefur Merkúr í Tví-
bura en hann Merkúr í Bog-
manni.
Lík starfsorka
Þið hafíð Úranus tengdan við
Mars. Það táknar að þið viljið
bæði vera sjálfstæð og ráða
ykkur í vinnu. Þið þolið ekki
að aðrir segi ykkur fyrir verk-
um. Vanastörf henta ykkur
ekki. Það sem þið gerið verður
að vera spennandi. Munurinn
á milli ykkar er sá að hann
hefur Mars í Steingeit og er
því skipulagðari. Hann gæti
notið sín í viðskiptum, verk-
stjómar- og framkvæmda-
stjómarstörfum. Þú hefur
Mars í Krabba og því er orka
þín sveiflukennd og misjöfn.
Starfsorka þín tengist einnig
ímyndunarafli þínu og gæti
hæglega nýst þér á listrænum
sviðum. Kennslu- og uppeldis-
svið gætu einnig hentað þér.
Góð saman
í heild má segja að þið eigið
ágætlega saman. Hins vegar
er svona samanburður flókn-
ari en svo að hægt sé að gera
honum skil í stuttu máli. Það
sem endanlega skiptir höfuð
máli er það hvemig þið vinnið
úr orku ykkar. Reynið að skilja
hvort annað og umfram allt,
lærið að virða það sem er ólíkt
í fari hvors annars.
CONAN VILLIMAÐUR
fí06BR. tíVAÐ ÉtGUM
VlÞ Af> <}£PA y/P
VöNDU KAÍIA/VA
EF ÞEWSLEPPA
\ 7A-HA~$TKAX AV
/jö&óí/ /\ KðNf/) ■ X
S?#£M/R!ly/& SiáR///i-S7%AXj
K£//f£//? ,
© I9M King Fealures Syndicele. Inc World righls reser vcd
:::::::: r>Vím Æk i—
DYRAGLENS
LJÓSKA
'liM'x.e. ÍIF- JOT— úiiv N/cipio. pm íiun v mr Va m
HVAÞ EIQU/yi (//£> AD &BKA
V/& B.INA BÓKASTOO ?
FERDINAND
.............................................. ........................................................................................................................................................................ ................................................................................................................................................................................................. ...................................................................... ..................................................................................................................................................................................................................... . ............................................................................................................................................................................................................'
SMÁFÓLK
að standa upp í póstkassa!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sveit Delta uppskar vel í eftir-
farandi spili sem kom upp í
Reykjavíkurmótinu sem nú
stendur yfír, í leik sveitarinnar
við Hermann Lámsson og fé-
laga. Hermann vann þó leikinn
17-13:
Suðurgefur; enginn á hættu.
Norður
♦ K942
VÁ7
♦ Á9762
+ D8
Vestur
♦ G7
VD542
♦ DG8
♦ 10954
Austur
♦ D10865
V KG986
♦ 3
♦ G3
Suður
♦ Á3
V 103
♦ K1054
♦ ÁK652
Á öðru borðinu dobluðu þeir
bræður Hermann og Ólafur
Þorlák Jónsson og Þórarin Sig-
þórsson í þremur hjörtum.
Sagnirgengu:
Vestur Norður Austur Suður
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tígull
Pass 1 spaði 2 hjörtu 3 lauf
3 hjörtu Dobl Allir pass
Þijú hjörtu fóru tvo niður, 300
ÍN/S.
Sagnir tóku aðra stefnu á
hinu borðinu. Þar sátu þeir
Guðm. Sv. Hermannsson og
Bjöm Eysteinsson í Deltunni í
N/S á móti Isaki Sigurðssyni og
Sturlu Geirssyni.
Vestur Norður Austur Suður
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tígull
21auf
3 lauf
3 spaðar
1 spaði Pass
2 hjörtu Dobl
3 tíglar Pass
6 tíglar Allir pass
TOMMI OG JENNI
Sagnir eru samkvæmt Pre-
cision, tígulopnunin lofar í fyrstu
ekki meira en einspili í tígli. En
þegar Bjöm í suður segir tvö
lauf er hann kominn með níu
spil í láglitunum, eins og þeir
félagar spila það. Tvö hjörtu
kröfðu í geim, þijú lauf við
doblinu lögðu áherslu á að spilin
væru góð og laufíð lengra.
Guðmundur tekur svo undir tíg-
ulinn, Bjöm segir frá spaðafyrir-
stöðu og meira þurfti ekki til.
Sex tíglar era auðvitað létt-
unnir; það tapaðist aðeins slagur
á tromp. N/S tóku því inn 920,
eða 620 nettó.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á móti í Frakklandi í haust kom
þessi staða upp í skák þeirra
Vegh, Ungveijalandi, sem hafði
hvftt og átti leik, og Ryan, Eng-
landL
25. Bxh6! — gxh6, 26. Dxh6+ —
Ke7, 27. Rxf7! - Dh5 (Svarta
staðan er vonlaus eftir 27. —
Kxf7,28. Dg6+ - Ke7,29. Dg7+)
28. Rxd6! og svartur gafst upp,
því 28. — Dxh6 er auðvitað svarað
með 29. Rf5+.