Morgunblaðið - 30.01.1986, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 30.01.1986, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986 I í ! i í : 4 I fclk í fréttum Jóhanna Þórhallsdóttir sem í kvöld kemur fram á tónleikum Islensku hljómsveitarinnar Hún var í hljómsveitinni „Dia- bolus in Musica" hér í eina tíð og söng þá meðal annars lögin, Gaggó-gæi og Pétur Jónatansson. Þá var hún í nokkur ár blaðamað- ur á Helgarpóstinum og sá um þátt- inn „Stuðarann". Jóhanna Þórhallsdóttir er nú stödd hér heima í leyfi frá söngnámi sínu sem hún stundar í Manchester og kemur fram með íslensku hljóm- sveitinni í Langholtskirkju í kvöid kl. 20.30. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni var hugsun blaðamanns þegar Hildigunnur dóttir Jóhönnu kom syngjandi til dyra og bauð inn í kaffí. En eftir að hafa sannfært hana um að slík fyrirhöfn væri óþarfi var mamman tekin tali. „Ég hef verið að syngja undan- farin kvöld á Akranesi, Selfossi og syng einnig'í Keflavík áður en tón- leikamir fara fram í Reykjavík. Þetta er annars í fyrsta skipti sem ég kem fram með hljómsveit sem þessari. — Hvernig stóð á því að þú vaidir að fara út í sígildan söng? „Það leiddi eitt af öðru. Áhugi á sígildri tónlist vaknaði fyrir alvöru þegar ég var í Hamrahlíðarkómum hjá Þorgerði Ingólfsdóttur. Upp úr því fór ég í Tónskóla Sigursveins að læra söng hjá John Speight. En maður lærir ekki að syngja á einum degi, og ég sá að það var bara að duga eða drepast og dreif mig í inntökupróf í Royal Northem Col- lege of Music í Manchester. Ég er nú á öðm ári en þetta er fjögurra ára nám. Ég er á svokölluðum „perform- ance-kúrs“. Þar er lögð áhersla á leiklist, framkomu, tungumál, beit- ingu raddar og líkama og svo fram- vegis. Minni áhersla er aftur á móti lögð á tónfræði og slíkar fræði- greinar. Ég er mjög ánægð með kennar- ann minn, hún er ítölsk og heitir Iris Dell’Acqua og auk þess að vera starfandi við skólann minn þá leið- beinir hún við Covent Garden- óper- una í London.“ — Hefur áhuginn á dægurtón- listinni dofnað? „Um leið og maður kynnist sí- gildri tónlist nánar, þá er í svo mörg hom að líta, því það svið sem klassíkin spannar er svo viðamikið. Ég verð að játa að áhuginn hefur dvínað með tímanum á dægurlögum enda hef ég ekki fylgst með þeim í nokkum tíma. Sígild tónlist er svo skemmtileg Batnandi mönnum Mbl/Ámi Sæberg Jóhanna Þórhallsdóttir á æfingu. Verkin sem hún syngur í eru, „Eins og skepnan deyr“ eftir Hróðmar Sigurbjörnsson og „Alt rapsó- día“ eftir Brahms þar sem Jóhanna syngur ásamt karlakórnum Fóstbræðrum. Einnig verður flutt verk Wagners, „Sigfried IdyII“. Stjórnandi er Ragnar Björnsson. Keith Richard, sem þekktur er úr Rolling Stones og löngum fyrir skrautlegt lífemi, hefur nú tekið sig á svo um munar. Eftir að konumar hans tvær komu í líf hans, þær Patti eiginkona hans og dóttirin Theodora, er drengurinn orðinn fyrirmyndareiginmaður og faðir og fylgir þeim hvert fótmál. og tilbreytingarík að maður gleymir sér alveg í henni.“ — Hvemig er syo að koma heim og halda tónleika með heilli hljóm- sveit? „Þetta er bara góð tilfinning og ég er afskaplega þakklát forráða- mönnum Islensku hljómsveitarinnar fyrir að fá tækifæri til að koma fram með henni. Þeir eiga í raun hrós skilið fyrir framtak sitt í ís- lensku menningarlífi. — Liggur leiðin út á ný að loknu tónleikahaldi? „Já fljótlega. Sambýlismaður minn, Einar Einarsson, sem er ytra við gítamám er með tónleika hér heima í byijun febrúar, en að því loknu höldum við utan.“ Ónýtt drasl sem fer í ruslið? Nei... Wolfang Holzleiter er sorp- tæknir að atvinnu og hefur tekið eftir því í gegnum árin að mikið af því sem fólk hendir er ekki ónothæft drasl. Wolfang tekur stundum leikföng sem hann sér lenda í ruslinu hjá fólki og gerirþauupp. Þegar þau em orðin heil og fín sendir hann þau til fátækra bama um allan heim. Hingað til hafa um fjögur þús- und drengir og stúlkur notið góðs af þessari tómstundaiðju Wolf- angs, og trúlega eiga fleiri eftir að gera það. Julie Belmonte I . i i i í ! i t i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.