Morgunblaðið - 02.02.1986, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
27. tbl. 72. árg._______________________________ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR1986____________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
I
Clint Eastwood
býður sig fram
til borgarstjóra
Carmel, Kalifomíu, 1. febrúar.
LEIKARINN Clint Eastwood, sem
hefur getið sér orðstir fyrir að
leika harðsoðnar hetjur óhræddar
við að taka lögin i sinar hendur,
ætlar að bjóða sig fram til borgar-
stjóra í borginni Carmel í Kali-
forniu.
„Vandamál blasa við þorpinu
okkar og hvorki núverandi borgar-
stjóri né bæjarráð hafa reynst þess
megnug að leysa þau,“ sagði East-
wood þegar hann gekk frá framboði
sínu á fimmtudag.
Á kránni „Andardráttur villigalt-
arins" hangir þegar slagorðið „kjósið
Eastwood borgarstjóra" á vegg.
Kosningarnar verða 8. aprfl.
Mexíkanar
lækka olíuverð
Mexíkóborg, 1. febrúar. AP.
MEXÍKANAR lækkuðu í dag
verð á olíu til að halda hlutdeild
sinni í olíumarkaðinum.
Eftir lækkunina selja Mexíkanar
tunnu af fínni hráolíu, Ishtmus-
olíuna, á 20 dollara miðað við 25,85
dollara i desember, og tunnu af
þyngri hráolíu, Maya-olíu, á 16,25
dollara, miðað við 21,75 dollar í
desember.
Mexíkanar eru mjög háðir olíu-
sölu vegna gífurlegra erlendra
skulda. Mun verðlækkunin því ein-
ungis verða til þess að auka á
vandann.
SKRAFAÐ EFTIR SKÓLA
Rannsóknin á orsökum sprengingarinnar í Challenger:
Blossi úr hliðar-
flauer aðalorsök?
V__t
Kanaveralhöfða, 1. febrúar. AP.
SÉRFRÆÐINGAR bandarísku geimvísindastofnunarinnar, NASA,
telja nú líkiegast að eldtungur úr hægri hjálparflaug geimfeijunnar
Challenger hafi brennt gat á eldsneytistankinn með þeim afleiðingum
að tankurinn splundraðist. Rannsóknarmenn hafa skoðað rækilega
kvikmyndir af feijunni og virðist þeim þar koma fram að logar
standi út um rifu efst á hjálparflauginni, að sögn heimildarmanna,
sem ekki vildu láta nafns síns getið.
Þá er haft eftir Sam Bedding-
field, föður geimferjuáætlunarinn-
ar, sem nú hefur látið af störfum
vegna aldurs, að „blússlampakenn-
ingin“ væri líklegasta skýringin á
slysinu, þ.e. að blossi úr annarri
hjálparflauginni hefði brennt gat á
eldsneytistankinn. Hann sagði að
taka mundi í mesta lagi hálft ár
að leiða í ljós hvað gerðist, en jafn-
vel kynni svo að fara að aldrei
kæmi í ljós hvers vegna.
Annar möguleiki er að blossi úr
hjálparflaug hafi kveikt í kveikju-
þræði sérstaks sprengibúnaðar á
eldsneytisflauginni. Búnað þennan
skyldi nota ef granda þyrfti feijunni
með fjarstýringu af jörðu niðri, t.d.
ef hún tæki upp á því að fara af leið.
New York Times skýrir frá því
í dag að athuganir NASA hafi leitt
í ljós að afl hafi minnkað skyndilega
um 10 sekúndum áður en feijan
splundraðist. Segir blaðið að sér-
fræðingar telji líklegustu skýring-
una vera að logað hafi út
um
sprungur á hægri hjálparflauginni.
NASA gefur á morgun, sunnudag,
út fréttatilkynningu um gang rann-
sóknarinnar.
Leit að braki úr feijunni verður
haldið áfram í dag og verða frosk-
menn og fjarstýrðir dvergkafbátar
notaðir til að ganga úr skugga um
hvort stór þúst, sem fundist hefur
á hafsbotni, sé áhafnarklefi feij-
unnar.
CLINT EASTWOOD
Ösló:
Neitað um áritun
til Sovétríkjanna
Ósló, 1. febrúar. KráJan Erik Uure, fréttaritara Morgunblaðsins,
þjóða ( milli en í því efni hafi Stein-
feldt brugðist þegar hann var
dag til Indlands. Kvaðst hann
vera kominn „sem þjónn samein-
ingar og friðar til lands, sem er
rist djúpum sárum vegna trúar-
ofstækis." Herskáir hindúar
brenndu brúður af páfa og hróp-
uðu: „Syndugi páfi, snúðu heim.“
Páfinn hélt ræðu á flugvellinum
í Nýju Delhí við komuna. „Ég get
fullvissað ykkur um að kirkjan er
ætíð reiðubúin að leggja sitt af
mörkum til að stuðla að sameiningu
og bræðralagi meðal þjóðarinnar,
og efla réttlæti, kærleik og frið.“
Lauk Jóhannes Páll ræðu sinni á
hindí-orðunum ,jai Hind“ eða „lengi
lifi Indland",
Herskáir hindúar hafa mótmælt
heimsókn páfa og sagt að hann sé
eingöngu kominn til að vinna mú-
hameðstrúarmenn til kristinnar trú-
ar. Múhameðstrúarmenn eru um
80 prósent þjóðarinnar, en kristnir
aðeins 3 prósent.
Rúmlega 200 lögreglumenn
bældu niður óeirðir um 70 öfga-
manna. Þeirra á meðal var Gopal
Godse, bróðir tilræðismannsins,
Jóhannes Páll páfi II
sem skaut Mohandas Gandhi til
bana.
Öfgamennimir brenndu brúðu af
páfa og hrópuðu „fari páfinn fjand-
ans til“ og „páfinn er á mála hjá
CIA“.
Vegna þeirrar andstöðu, sem
heimsókn páfa hefur mætt á Ind-
landi, verður öryggisvarsla tvíefld
þar til hann fer frá Bombay 10.
febrúar.
SOVESKA sendiráðið f Ósló
hefur neitað sjónvarpsfrétta-
manninum Hans Wilhelm Stein-
feldt um vegabréfsáritun til
Sovétríkjanna. Þangað ætlaði
Steinfeldt til að fylgjast með
þingi kommúnistaflokksins.
Sovétmenn vísa til lokaákvæða
Helsinki-sáttmálans og segja, að
þar sé ekki gert ráð fyrir, að sér-
hvert land ráði því hveijir sendir
séu til einhvers annars lands. Þar
sé þvert á móti tekið fram, að vinna
skuli að friði og auknum skilningi
fréttaritari norska ^jónvarpsins í
Moskvu fyrir tveimur árum. Þá
vann Steinfeldt ekki að því að
treysta friðinn, segir sovéski sendi-
herrann.
Bjartmar Gjerde, útvarpsstjóri,
vísar þessum orðum sovéska sendi-
herrans á bug og segir, að Stein-
feldt hafi staðið sig frábærlega sem
fréttaritari í Moskvu þótt Kremlar-
herramir hafi ekki alltaf kunnað
að meta skrifin.
Páfi á Indlandi:
Kem sem þjónn sam
einingar og friðar
Nýju Delhí, 1. febrúar. AP.
JÓHANNES Páll páfi II kom f