Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR STOFNAÐ1913 28. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Khadafy: Hvetur til hryðjuverka — í Evrópu og Bandaríkjunum Trípolí, 3. febrúar. AP. MOAMMAR Khadafy, Líbýu- leiðtogi, hvatti herskáa arabaleiðtoga í dag til að falta þátt í „baráttunni við heims- valdasinna" i Evrópu og Bandaríkjunum. Fjórir Sovétmenn reknir frá París París, 3. febrúar. AP. FRANSKA stjórnin visaði af landi brott um helgina fjórum sovéskum stjórnarerindrek- um, sem allir voru starfs- menn hernaðarupplýsinga- þjónustunnar GRU. Brottvis- anirnar sigla í kjölfarið á þvi að starfsmaður franska flughersins, sem nú er kom- inn á eftirlaun, var hand- tekinn í síðustu viku fyrir njósnir i þágu Sovétmanna. Talsmaður franska utanríkis- ráðuneytisins sagði að fjórir stjórnarerindrekar hefðu verið beðnir um að yfirgefa Frakkland eftir nýlegar rannsóknir. Hann veitti ekki frekari upplýsingar um málið og nafngreindi ekki Sovét- mennina. Því hefur aftur á móti verið haldið fram í dagblöðum að þeir hafí verið ráðunautar á sviði hermála og viðskipta. Talsmaðurinn vildi ekki segja hvort samband væri milli brottvís- ananna og fangelsunar Bernards Sourisseau í síðustu viku. Sour- isseau er sakaður um að hafa njósnað um ferðir franskra her- skipa í hafnarborgunum Brest og Lorient og á eynni Longe, þar sem kjamorkukafbátar koma til hafn- ar. Haft er eftir háttsettum heim- ildarmönnum að málin séu skyld. Nokkrir arabaleiðtogar, þar á meðal George Habash, Nayef Hawat- meh og Ahmed Abu Moussa, höfnuðu kröfum Khadafys um að K. . . he§a nýja Khadafy hryðjuverkaher- ferð í Evrópu og Bandaríkjunum. Khadafy hefur þráfaldlega neit- að ásökunum Bandaríkjamanna um að hann veiti sveitum hryðju- verkamanna á borð við Fatah - byltingarráð Sabri E1 Banna, sem einnig gengur undir nafninu Abu Nidal, brautargengi. Heimildir herma að Khadafy hafí lagt til að hryðjuverk yrðu aukin á skyndiráðstefnu „Samein- aðra leiðtoga byltingarsveita araba" í Trípolí á sunnudag og hlotið dræmar undirtektir. Khadafy kom þreytulegur og órakaður til fundarins. Fréttamönnum var meinaður aðgangur að fundinum. Rúmlega 20 harðsvíruðustu andstæðingar Yassers Arafats, leiðtoga A1 Fatah - Frelsissamtaka Palestínu, sátu fundinn. PLO var ekki boðið og Lýðræðisfylking Hawatmehs til frelsunar Palestínu hundsaði hann. Khadafy flutti ræðu sína fullur heiftar, að sögn viðstaddra Palest- ínumanna. Hann kvað stefnu Reagans gera það óumflýjanlegt að allar herskáar hreyfíngar í Miðausturlöndum sameinuðust í eina heild og veittu Bandaríkja- mönnum þá ráðningu, sem þeir ættu skilið. Páfinn ogmóðir Teresa Kalkútta, 3. febrúar. AP. JÓHANNES PáU páfi II. kom i dag til Kalkútta og hitti þar móður Teresu. Báðu þau fyrir fátækum og dauðvona á heim- ili hennar. Páfínn var í dag í fylkinu Bihar. Þar hélt hann guðsþjón- ustu og fór m.a. fram á aukin réttindi til handa verkamönnum. Fátækt er mikil í Bihar og vinnuþrælk- un. 200 þúsund manns sóttu messuna. Jóhannes Páll hitti Dalai Lama í Nýju Delhí á sunnudag. Þeir hafa hist tvisvar áður. Síðar um daginn var maður handtekinn fyrir að henda púður- kerlingu í átt að páfa. Kvaðst maðurinn hafa viljað ná athygli hans. AP/Símamynd Ágreiningfur milli olíuráðherra í Vín Olíklegt að samstaða náist Kuwait, 3. febrúar. AP. OLÍURÁÐHERRAR þeirra ríkja, sem aðild eiga að samtökum olíuútflutningsríkja, OPEC, eru ekki á eitt sáttir um það hvernig skuli vernda hlut OPEC á heimsmarkaði. Olíuráð- herramir sitja nú í Vínarborg og ræða hvemig bregðast skuli við lækkandi olíuverði. ríki hefðu komist að samkomulagi um, með því að minnka fram- leiðslu úr 16 miljónum tunna á dag, hins vegar væru þeir, sem vildu auka framleiðsluna í 18 milljónir tunna, þótt það hefði í for með sér að verð lækkaði, til þess að tryggja hlut aðildamlg'a OPEC á heimsmarkaði. Að sögn fréttastofunnar í Kuwait skiptast ráðherramir í tvær fylkingar að minnsta kosti. Ágreiningsefnið er hvemig skuli bregðast við verðhmni á olíu- markaðinum og viljaleysi þeirra ríkja, sem ekki em aðiljar að OPEC, til samvinnu við aðildarríki samtakanna. Að sögn háttsetts embættismanns í Kuwait kom ágreiningurinn mjög skyndilega upp. Annars vegar vildu ráðherram- ir halda því olíuverði, sem OPEC- Meðal þeirra rfkja, sem viþ'a minnka framleiðslu, em íran, Ir- ak, Líbýa og Alsír. Þessi ágreiningur dregur úr vonum til þess að samstaða náist á fundinum í Vín. Franska gagnnjósnastofnunin DST handsamaði Sourisseau í borginni Rennes og sakaði um njósnir. Talsmaður sovéska sendiráðs- ins í París segir að Frakkar hafí engar sannanir í höndum og brott- vísunin sé skaðleg ögmn gegn Sovétríkjunum. „Slíkar aðgerðir af hálfu Frakka samræmast ekki yfírlýs- ingum þeirra um góðan vilja til að bæta sambúðina við Sovét- rnenn," sagði talsmaðurinn „og Frakkar bera alla ábyrgð á afleið- ingum þessa athæfís." Frakkar ráku 47 sovéska stjómarerindreka frá París í apríl 1983. Sovétmenn svömðu ekki með því að reka franska stjómar- erindreka frá Moskvu. Verður Shcharansky látinn laus í skiptum fyrir sovéska njósnara? Bonn og Jcrúsalem, S. febrúar. AP. FREGNIR frá Vestur-Þýskalandi og Bandaríkjunum herma að Bandaríkjamenn og Sovétmenn hyggist skipta á allmörgum föngum og í hópi fanganna að austan verði sovéski andófsmað- unnn Anatoly Shcharansky. Þýska blaðið Bild bar háttsetta sovéska heimildarmenn fyrir því að bandarískir, vestur-þýskir og sovéskir embættismenn hefðu fallist á fangaskipti þar sem skipt yrði ótilteknum Qölda fanginna sovéskra njósnara fyrir Shcharan- sky og tólf vestræna njósnara. í New York Times er í dag haft eftir ónefndum bandarískum ráðamönnum að sovéskir og bandarískir embættismenn hafi komið sér saman um fangaskipti er snerti Shcharansky og sjö til níu menn aðra. Haft er eftir tveimur bandarískum talsmönn- um að skiptin fari fram 11. febrú- arnk. Stjómvöld í Bonn og Wash- ington hafa hvorki viljað staðfesta fréttimar né vísa þeim á bug. Útvarpið í Jerúsalem sagði í dag að _ Bandaríkjamenn hefðu tilkynnt ísraelum að Shcharansky yrði látinn laus að þremur dögum liðnum og yrði það liður í fanga- skiptum Sovétmanna og Banda- ríkjamanna. Shcharansky, sem er 37 ára, var leiðtogi mannréttindahreyf- ingarinnar { Sovétríkjunum þar til hann var handtekinn 1978, sakað- ur um njósnir fyrir bandarísku leyniþjónustuna CIA. Anatoly Shcharansky Hann er sagður vera í haldi í þrælkunarbúðum í Úralfjöllum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.